Ógilding samruna staðfest 20. október 2006 07:15
Áfrýjunarnefnd samkeppnismála hefur staðfest ákvörðun Samkeppniseftirlitsins frá því í sumar um að ógilda samruna lyfsölu- og lyfjaskömmtunarfyrirtækjanna DAC og Lyfjavers. Samruninn var sagður myndi raska samkeppni og skaða hagsmuni almennings. DAC er systurfélag lyfsölukeðjunnar Lyfja og heilsu. „Samruninn hefði leitt til þess að tvær lyfsölukeðjur, Lyf og heilsa annars vegar og Lyfja hins vegar, hefðu rúmlega áttatíu prósent allrar lyfjasmásölu í landinu," segir Samkeppniseftirlitið og taldi keðjurnar tvær deila sameiginlegri markaðsráðandi stöðu á smásölumarkaði lyfja. Mat Samkeppniseftirlitsins var að sameiginleg markaðsráðandi staða keðjanna gerði þeim kleift að samhæfa hegðun sína á markaði án þess að þurfa að taka tillit til keppinauta eða neytenda. „Lyfjaver hefur verið öflugur keppinautur stóru lyfjakeðjanna og lagt áherslu á að bjóða lyf á lágu verði. Brotthvarf Lyfjavers af markaðnum hefði haft í för með sér umtalsverða röskun á samkeppni," segir Samkeppniseftirlitið og telur úrskurð áfrýjunarnefndar hafa talsvert fordæmisgildi og geti auðveldað vinnu gegn skaðlegri fákeppni á ýmsum mörkuðum hér. Lyf og heilsa segist harma niðurstöðu áfrýjunarnefndar. „Okkar mat er að með niðurstöðunni hafi íslenskir neytendur misst af tækifæri til hagræðingar þeim til hagsbóta," segir Guðni B. Guðnason, framkvæmdastjóri Lyfja og heilsu og kveður fyrirtækið halda áfram að leita leiða til hagræðingar og bættrar þjónustu.
Viðskipti Mest lesið Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Viðskipti innlent Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Viðskipti erlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Fleiri fréttir Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Sjá meira