Tæp tvöföldun á veltu 4. október 2006 06:00 Kauphöll Íslands Heildarvelta Kauphallarinnar á fyrstu níu mánuðum ársins nam 3.082 milljörðum króna en það er 89 prósentum meiri velta en í fyrra. MYND/GVA
Heildarvelta Kauphallar Íslands það sem af er ári nam 3.082 milljörðum króna. Lítið vantar upp á að þetta sé tvöfalt meiri velta en á sama tíma í fyrra því heildarvelta á fyrstu níu mánuðum síðasta árs nam 1.630 milljörðum króna og nemur munurinn 89 prósentum. Þá jók skráning Exista í Kauphöllina í september heildarvirði skráðra félaga um tíu prósent. Þrír stærstu viðskiptabankarnir eru á lista yfir þau fimm veltumestu hlutabréf í Kauphöllinni á tímabilinu en þar er einnig að finna bréf í Straumi-Burðarási og FL Group. Heildarvelta með bréf í félögunum fimm nam rúmum 1.169 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Þá voru nokkur met slegin í Kauphöllinni á tímabilinu. Veltuaukning á hlutabréfamarkaði nam 82 prósentum en 95,7 prósentum á skuldabréfamarkaði á fyrstu níu mánuðum ársins. Velta með skuldabréf og víxla nam tæpum 229 milljörðum króna í september en það er mesta velta á skuldabréfamarkaði í einum mánuði frá upphafi. Auk þessa nam velta með skuldabréf og víxla 28,7 milljörðum króna 19. september síðastliðinn og er það metvelta á skuldabréfa- og peningamarkaði á einum degi frá upphafi mælinga.
Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira