Metverð á kaffibaunum 23. ágúst 2006 06:45 kaffibaunir Heimsmarkaðsverð á kaffibaunum hefur hækkað um 35 til 50 prósent síðastliðna 12 mánuði vegna uppskerubrests í helstu útflutningslöndum.
Heimsmarkaðsverð á kaffibaunum hefur hækkað mikið það sem af er árs vegna úrhellis í Asíu en þurrka í Suður-Ameríku sem spillt hefur kaffibaunauppskeru í helstu útflutningslöndunum og er svo komið að verðið hefur ekki verið hærra í sjö ár. Vegna áhrifa veðurfars á kaffibaunauppskeru hafa birgðir af kaffibaunum minnkað á helstu mörkuðum og er útlit fyrir frekari hækkanir á næsta ári vegna uppskerubrests á Indlandi. Verð á grófmöluðu og þurrkuðum kaffibaunum, sem notaðar eru í skyndikaffi, og fer á markað í næsta mánuði, hefur hækkað um 50 prósent á síðastliðnum 12 mánuðum og kostar tonnið nú um stundir 882 pund, jafnvirði 117.500 króna. Þá hefur verð á fínmöluðum kaffibaunum hækkað um 35 prósent á sama tímabili aðallega vegna þurrka í Brasilíu, sem hefur um 65 prósenta markaðshlutdeild á kaffibaunamarkaðnum. Verðhækkanir á kaffibaunum hafa ekki skilað sér út í verðlag á unnu kaffi en Alþjóðasamtök um kaffiframleiðslu (ICO) sem hefur aðsetur í Lundúnum í Bretlandi, segir kaffiskortinn tímabundinn og býst við lítilsháttar verðhækkunum til neytenda á næstunni.
Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira