DeCode tapar 2,7 milljörðum króna 10. ágúst 2006 06:45 Kári Stefánsson, forstjóri DeCode Hlutabréf í deCode hækkuðu á NASDAQ í gærmorgun þrátt fyrir að tilkynnt væri um 2,7 milljarða tap á fyrri helmingi árs.
DeCode Genetics tapaði 2,7 milljörðum króna á fyrri helmingi árs samkvæmt nýbirtu uppgjöri félagsins. Tap deCode jókst um tæplega tuttugu og tvö prósent sé miðað við sama tímabil í fyrra. Tekjur félagsins námu tæpum 1,46 milljörðum króna fyrstu sex mánuði ársins og drógust saman um 35,5 milljónir króna frá því í fyrra. Heildarrekstrarkostnaður var rúmir tveir milljarðar króna og jókst um 667 milljónir frá fyrra ári. Í tilkynningu frá deCode segir að aukið tap megi rekja til hærri rannsóknar- og þróunarkostnaðar. Þá kemur fram að í lok júní hafi félagið átt 8,2 milljarða króna í lausafé til rekstrar félagsins. Hlutafjáraukning í deCode, sem fram fór í júlí, skilaði félaginu 19,7 milljörðum króna í lausafé. Kári Stefánsson, forstjóri deCode, segir í tilkynningunni að félagið sé komið vel á veg í klínískum prófunum á ýmsum lyfjum; sérstaklega gegn astma og hjartasjúkdómum. Hlutabréf í deCode hækkuðu um rúm tvö prósent á NASDAQ-markaðnum í gærmorgun og stóðu í 4,88 Bandaríkjadölum á hlut síðast þegar fréttist.
Viðskipti Mest lesið Framleiðslustöðvunin högg fyrir fyrirtækið og viðskiptavini Neytendur „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Ný gervigreindargrafík Nvidia strax umdeild Viðskipti erlent Spá óbreyttum stýrivöxtum Viðskipti innlent Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Fleiri fréttir Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Sjá meira