Vill verða viðurkenndur Gaflari 8. júní 2006 14:00 Daði Lárusson hefur spilað lykilhlutverk í velgengni FH undanfarin ár.
Daði Lárusson, markvörður FH, hefur verið valinn leikmaður fimmtu umferðar af Fréttablaðinu. Daði hefur verið traustur milli stangana það sem af er leiktíðar og var hetja liðsins gegn Keflavík á mánudag. „Ég geri bara það sama og allir aðrir markmenn. Ég vel mér horn til að fara í og vona það besta," sagði Daði Lárusson, leikmaður fimmtu umferðar, en hann varði tvær vítaspyrnur í leik gegn Keflavík á mánudaginn. Önur vítaspyrnan kom í uppbótartíma en þar fengu Keflvíkingar gullið tækifæri til að jafna metinn en Daði sá til þess að það gerðist ekki og FH vann 3-2. Íslandsmeistararnir eru með fullt hús stiga eftir fimm umferðir og eru strax komnir með sex stiga forskot. „Maður gat vissulega ekki séð það fyrir að við næðum strax svona góðu forskoti í deildinni. Úrslitin hafa spilast okkur í hag, við siglt lygnan sjó meðan allir aðrir hafa verið unnið alla," sagði Daði en hann hefur aðeins fengið á sig þrjú mörk í fyrstu fimm umferðunum. „Vörnin hefur verið mjög traust hjá okkur. Við erum vel settir með miðverði og ekki verið í vandræðum þrátt fyrir að hafa misst Auðun Helgason og Sverri Garðarsson. Þá hefur Tommy Nielsen ekki verið heill. Ármann Smári hefur verið hreint magnaður og átt eina óvæntustu endurkomu íslenska boltans," Þrátt fyrir að hafa misst marga góða menn frá því í fyrra virðist það ekki hafa komið niður á FH. „Við höfum bara breytt leikslipulaginu samhliða þessu. Nýju mennirnir hafa komið sterkir inn í þetta. Venni (Sigurvin Ólafsson) hefur verið að spila fantavel á miðjunni og Allan Dyring er duglegur og berst vel fyrir liðið. Svo höfum við endurheimt leikmenn sem voru í láni síðasta sumar og þeir koma reynslunni ríkari inn í hópinn hjá okkur," Daði er 32 ára hefur alla tíð spilað með FH og búið lengi í Hafnarfirði þó hann sé fæddur í Reykjavík. „Ég lít á mig sem gaflara þó hörðustu gaflararnir geta kannski ekki samþykkt það. Ég stefni þó á að verða viðurkenndur sem gaflari," sagði Daði í léttum tón. „Það hefur verið frábært að fá að taka þátt í því að vekja risann og uppgangur liðsins hefur verið ótrúlegur síðustu ár. Stjórnin hefur staðið sig vel og þá hafa stuðningsmenn okkar spilað ómetanlegt hlutverk og eiga hrós skilið," Stuðningsmenn FH hafa verið duglegir við að hrópa „Daða í landsliðið" en sjálfur segist hann líta á það sem bónus ef hann nær því að komast þangað. „Mín stefna er bara að halda áfram að standa mig fyrir FH í öllum leikjum. Svo væri ekki leiðinlegt ef við næðum árangri í Evrópukeppnninni eftir vonbrigðin í fyrra þar sem við fengum drátt dauðans og lékum gegn liði frá Fjarskanistan. Það lið var mjög sterkt en vonandi verðum við heppnari með dráttinn í ár," sagði Daði.
Íslenski boltinn Innlendar Íþróttir Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Íslenski boltinn Eiður fann til með Liverpool Enski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Segir félagið í skítnum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Einmana á botninum í hléinu Athletic Club - Real Sociedad | Heldur Orri áfram að skora á Spáni? „Viss um að við gerðum alla ákaflega stolta“ Góðar fréttir fyrir landsliðið og Mikael Egill á uppleið Fram steinlá gegn nýliðunum og FH vann Þór Meistararnir á toppnum eftir langþráðan sigur á Anfield Júlíus með ný skilaboð til landsliðsþjálfarans Real heldur sig nálægt Barcelona Eiður fann til með Liverpool Ísland náði fram hefndum og fagnaði titlinum Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Eiður með gæsahúð á Anfield Ída Marín og Guðrún skoruðu í stórsigri Atli Steinn kláraði Stjörnuna Marc McAusland tekur við Njarðvík Ekki unnið á Anfield í 14 ár Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Hildur skoraði í sigri Fabregas hafði betur gegn Þóri Tryggvi hafði betur gegn Rubio Í hvínandi gír í Noregi Emelía tryggði Köge sigur Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjá meira