Dræmar viðtökur á yfirtökutilboði 18. mars 2006 00:01 Actavis þreifar fyrir sér í Króatíu. Hefur gert óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé samheitalyfjafyrirtækisins Pliva.
Actavis Group hefur sent stjórnendum króatíska semheitalyfjafyrirtækisins PLIVA óformlegt tilboð um kaup á öllu hlutafé félagsins, sem skráð er í kauphöllinni í Króatíu og London. Tilboðið kveður á um að greitt verði HRK 570 fyrir hvern hlut í félaginu, sem er um 35 prósenta yfirverð miðað við meðalgengi hlutabréfa félagsins síðustu þrjá mánuði. Markaðsvirði félagsins, að teknu tilliti til yfirverðs, er sagt vera um 1,6 milljarðar dollara eða um 110 milljarðar króna. PLIVA var stofnað árið 1921 og sérhæfir sig í þróun, framleiðslu og sölu samheitalyfja, eftir að hafa selt frá sér frumlyfjastarfsemi sína á síðasta ári. Hjá félaginu starfa rúmlega 6000 manns. Velta félagsins í fyrra nam 1,2 milljörðum dollara. Félagið er sagt hafa góða markaðsstöðu í Króatiu, Póllandi og Rússlandi, auk þess að selja lyf til Þýskalands, Ítalíu, Spánar og Bandaríkjanna. Á heimasíðu Pliva er staðfest að yfirtökutilboð hafi borist en haft eftir stjórnendum fyrirtækisins að tilboðið sé of lágt og endurspegli ekki virði og framtíðarmöguleika þess. Robert Wessman, forstjóri Actavis, sagði í viðtali við Dow Jones-fréttastofuna að til greina kæmi að hækka tilboðið.
Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira