Enex virkjar í Ungverjalandi Óli Kristján Ármannsson skrifar 8. mars 2006 06:00 Frá undirritun samstarfssamnings í Ungverjalandi. Béla Szanyi frá Hercules/Vulcan, Ferenc Utassy, heiðurskonsúll Íslands í Ungverjalandi, Lilja Tryggvadóttir hjá Enex, Lárus Elíasson Enex, Gyorögy Szucs hjá MOL, Attila Kujbus MOL, Attila Holoda MOL, Charles Morgan Hercules/Vulcan, Clair Birgin, sendiherra Ástraliu í Ungverjalandi, Stephen Keeninhan Hercules/Vulcan og Kántor Sándor MOL.
Íslenska orkufyrirtækið Enex, ungverska olíu- og gasfélagið MOL og ástralska fjárfestingarfyrirtækið Hercules/Vulcan hafa skrifað undir samning sem markar upphafið að byggingu fyrstu jarðvarmastöðvar í Ungverjalandi sem ætluð er til raforkuframleiðslu. Samkvæmt upplýsingum Enex verður stöðin þrjú til fimm megavött að stærð. Áætlaður heildarkostnaður verkefnisins nemur um 18,3 milljónum evra, tæpum einum og hálfum milljarði íslenskra króna. Hlutur Enex í fjárfestingunni er sagður vera 32 prósent. Enex lítur á samstarfið við sterkan ungverskan aðila og sérhæfðan alþjóðlegan fjárfesti sem mikilvægt skref í að virkja jarðvarma í Ungverjalandi til raforkuframleiðslu. Þetta er aðeins upphafið en gert er ráð fyrir að virkja megi um 100 til 500 MW af raforku úr jarðvarma í Ungverjalandi á næstu árum, segir Lárus Elíasson, framkvæmdastjóri Enex. MOL á um 8.000 borholur í Ungverjalandi og hefur verið í samstarfi við Enex frá 2003. Hercules er sérhæft ástralskt fjárfestingarfyrirtæki sem fjárfestir í orkulindum víðs vegar um heiminn. Vulcan kft. er svo ungverskt dótturfélag Hercules.
Viðskipti Mest lesið Hækka stýrivexti Viðskipti innlent Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Viðskipti innlent „Kristrún, það er ljótt að plata“ Viðskipti innlent Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Viðskipti innlent Pringles Páskaegginu stolið Samstarf Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Viðskipti innlent Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Viðskipti innlent Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Viðskipti innlent Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Viðskipti innlent „Það er aukaatriði í þessu hvað ég var lengi þarna“ Neytendur Fleiri fréttir „Kristrún, það er ljótt að plata“ Stjórnendur svartsýnni en þeir hafa verið frá 2020 Bein útsending: Sitja fyrir svörum vegna vaxtahækkunar Ráðinn sviðsstjóri fyrirtækjasviðs Olís Hækka stýrivexti Genis á Siglufirði í söluferli: Ekki forsendur fyrir vexti á Íslandi Telja útboð á heilsurækt í Eyjum sniðið að World Class Spáir hækkun stýrivaxta í fyrramálið Skiptastjóri Play kærir úrskurð um vanhæfi Spá óbreyttum stýrivöxtum Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Sjá meira