Atvinnuleysi ekki minna í 4 ár 24. ágúst 2005 00:01
Atvinnuleysi hefur ekki verið minna í fjögur ár og mælist nú tvö prósent. Bankarnir segja þenslu og verðbólgu á næsta leiti. Atvinnuleysi mældist aðeins tvö prósent í júlímánuði og hefur ekki mælst minna frá því í desember árið 2001. Bankarnir spá því að atvinnuleysi fari undir tvö prósent og launaskriði og verðbólgu í framhaldinu. Björn Rúnar Guðmundsson, hagfræðingur hjá Landsbankanum, segir mikla spennu vera á innlendum vinnumarkaði og bendi allt til að verðbólga verði meiri hér á landi en í viðskiptalöndunum í kringum okkur. Hann segir enn fremur að það sé aldrei slæmt að hafa lítið atvinnuleysi, það sé betra að hafa mikla vinnu en litla. Hins vegar aukist hættan á þenslu á vinnumarkaði eftir því atvinnuleysið minnki. Bankarnir sjá fyrir sér áframhaldandi þenslu. Verðbólgunan muni síðan klippa af auknum kaupmætti sem myndast hefur en kaupmáttur fólks hefur aukist um rúm 3 prósent síðasta árið, mest á almennum markaði. Þá hafa laun hækkað, um rúmlega 6,8 prósent á almennum markaði og um 6,1 prósent hjá hinu opinbera. Á þessu sama 12 mánaða tímabili var verðbólga um 3,5 prósent sem þýðir að hrein kaupmáttaraukning hefur verið 3,1 prósent síðasta árið. Bankarnir benda á að hækkandi húsnæðisverð er það sem skiptir langmestu máli í verðbólgunni en án húsnæðisverðsins er verðbólgan innan við eitt prósent. Miðað við þá tölu er kaupmáttaraukningin í raun mun meiri. Hvað fasteignaverð varðar spá bankarnir áframhaldandi hækkunum út árið. Þá muni markaðurinn hins vegar hægja á sér og standa í stað um tíma. Síðan muni verð lækka, þó mismunandi mikið eftir staðsetningum og tegund húsnæðis.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Live verður Lifa Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Fleiri fréttir Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Sjá meira