Markaðsvirði félaga um 1500 milljarðar 6. ágúst 2005 00:01
Markaðsvirði skráðra félaga í Kauphöll Íslands jókst um tæplega 61 milljarð króna í júlí. Markaðsvirði félaganna nemur því í dag um 1500 milljörðum króna. Mest jókst markaðsvirði Landsbankans eða um 19,5 milljarða en þar á eftir kemur Actavis sem bætti við sig um 19,4 milljörðum króna. Þetta kemur fram í Hálffimm fréttum KB banka í gær. Þar segir að aukning á markaðsvirði Actavis stafi þó aðallega af útgáfu nýs hlutafjár í mánuðinum fyrir um 14 milljarða í kjölfar kaupanna á bandaríska lyfjafyrirtækinu Amide. Mest lækkun varð hins vegar á markaðsvirði Mosaic Fashions í mánuðinum en hún nam 3,2 milljörðum og þar á eftir dróst markaðsvirði Icelandic Group saman um 1,7 milljarða eftir að félagið sendi frá sér afkomuviðvörun. Í lok júlí nam markaðsvirði skráðra félaga um 1500 milljörðum króna og hafði þá aukist um 378 milljarða frá áramótum. Þróunin það sem af er ágúst hefur þó ekki verið verri í því samhengi og hefur markaðsvirði félaganna í Kauphöllinni nú aukist samtals um 58,3 milljarða króna. Meirihluti fyrirtækja í Kauphöllinni sem hafa birt afkomutölur fyrir annan ársfjórðung hefur skilað mun betri afkomu en greiningardeildir bankanna gerðu ráð fyrir og skýrir það vafalaust að hluta til ofangreindar verðhækkanir félaganna síðustu daga.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent „Þetta eru bara hótanir“ Neytendur Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Fleiri fréttir Apótek opnað í fyrsta sinn á Flúðum Stórhækkun á verði áls jákvæð fyrir samfélagið Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Sjá meira