Dagsbrún móðurfélag 365 miðla 4. ágúst 2005 00:01
Og fjarskipti hf. ráðgera að nýtt skipulag samstæðunnar muni taka gildi 1. október nk. Hið nýja nafn samstæðunnar mun verða Dagsbrún hf. Fjarskiptarekstri félagsins verður komið fyrir í dótturfélaginu Og fjarskipti (Og Vodafone) sem heyra mun undir móðurfélagið ásamt 365 prentmiðlum ehf. og 365 ljósvakamiðlar ehf. Dagsbrún hf. mun verða hið skráða félag í Kauphöll Íslands. Dagsbrún mun marka sér stöðu á sviði fjarskipta, fjölmiðlunar og afþreyingar og stefnir að því að verða leiðandi í umbreytingum á þessum sviðum hérlendis og leiða útrás íslenskra fjarskipta- og fjölmiðlafyrirtækja á erlenda markaði. Fjármálaumsýsla móður- og dótturfélaga verður innan Dagsbrúnar en að öðru leyti verður reynt að tryggja sjálfstæða þróun dótturfyrirtækjanna og viðhalda þeim frumkvöðlaanda sem drifið hefur áfram uppbyggingu Og Vodafone og 365 miðla, að því er segir í tilkynningu. Stefnt er að því að vöxtur Dagsbrúnar verði jöfnum höndum innan núverandi dótturfyrirtækja og með kaupum á öðrum félögum á sviði fjarskipta, fjölmiðla og afþreyingar. Þegar hefur verið markað upphaf að vexti á erlendri grund með kaupum á fjarskiptafélaginu P/F Kall í Færeyjum. Forstjóri Dagsbrúnar hf. verður Eiríkur S. Jóhannsson en hann er í dag forstjóri Og fjarskipta hf. Eiríkur mun jafnframt verða stjórnarformaður dótturfélaganna. Viðar Þorkelsson verður framkvæmdastjóri fjármálasviðs Dagsbrúnar auk þess að vera staðgengill forstjóra félagsins. Gunnar Smári Egilsson er forstjóri 365 miðla. Nýr forstjóri Og Vodafone verður Árni Pétur Jónsson, fyrrum framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Haga. Þessir fjórir mynda framkvæmdastjórn Dagsbrúnar.
Innlent Viðskipti Mest lesið Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Bláa lónið á markað í nóvember Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira