Nýtt lyf á markað í Þýskalandi 1. júlí 2005 00:01
Actavis hefur sett nýtt samheitalyf á markað í Þýskalandi í gegnum dótturfélag sitt, Medis. Er það blóðþrýstingslyfið Benazepril Hydrochlorothiazide sem framleitt er í töfluformi. Í fyrstu atrennu voru framleiddar 10 milljónir taflna. Er búist við að lyfið verði mikilvæg viðbót við lyfjasafn Actavis þó að ekki sé reiknað með að það verði meðal tíu mest seldu lyfja félagsins. Benazepril HCT er aðallega notað við meðferð á háum blóðþrýstingi. Lyfið kom fyrst á markað í Evrópu árið 1992. Einkaleyfið í Þýskalandi rann út 29. júní síðastliðinn en Þýskaland er mikilvægasti markaður fyrir lyfið. Þróun lyfsins, sem hófst fyrir fimm árum, fór fram hjá Actavis á Íslandi og frásogsrannsóknir fóru fram í Kanada. Lyfið er framleitt í verksmiðju Actavis á Íslandi en dótturfélag félagsins, Medis, mun sjá um sölu þess til þriðja aðila sem munu markaðssetja lyfið undir eigin vörumerkjum. Guðbjörg Edda Eggertsdóttir, framkvæmdastjóri alþjóðlegrar sölu til þriðja aðila hjá Actavis, segir undirbúninginn að markaðssetningu lyfsins hafa tekið langan tíma. „Við erum nú að setja enn eitt blóðþrýstingslyfið á markað en það tilheyrir flokki ACE-hemla, flokki lyfja sem Actavis hefur lagt mikla áherslu á og telur lyf eins og Ramipril, Lisinopril og Enalapril. Ekki er um að ræða jafn umfangsmikla markaðssetningu og á fyrrnefndum lyfjum en lyfið er okkur mjög mikilvægt þar sem það á ekki í eins harðri samkeppni og von er um stærri markaðshlutdeild,“ segir Guðbjörg.
Innlent Viðskipti Mest lesið Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Viðskipti innlent Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Viðskipti innlent Steinunn frá UNICEF til Festu Viðskipti innlent Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Viðskipti innlent Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Viðskipti innlent Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Viðskipti innlent Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Viðskipti innlent Sýn tapaði 239 milljónum Viðskipti innlent Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Viðskipti innlent Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Viðskipti innlent Fleiri fréttir Ómögulegt sé fyrir fólk á Eflingarlaunum að komast á húsnæðismarkað Bein útsending: Kanónur ræða sjávarútveginn í Hörpu Farþegum fjölgaði um 14 prósent í október Steinunn frá UNICEF til Festu Ætla í hart vegna ákvörðunar Fjarskiptastofu Sýn tapaði 239 milljónum Engin u-beygja vegna pillu forstjóra Icelandair Segja fulla ástæðu til að hafa áhyggjur af stöðu efnahags og vinnumarkaðar „Óveðurský á lofti í ferðaþjónustu“ Engir sérfræðingar að verki og sá yngsti um tvítugt Fullyrðingar Sigurðar um minni verðbólgu standist ekki Bein útsending: Í hvað á orkan að fara? Sækja á fjórða milljarð króna Afreksíþróttamenn sendast með tvö þúsund matarskammta á dag Fjölda fólks sagt upp hjá Icelandair Amaroq staðfestir merkilegan fund sjaldgæfra jarðmálma Af hverju hefur lánið ekki lækkað? Vextir geti lækkað fyrr og lækkað meira Eyddu illa fengnum milljónum í bíla og rafmyntir Segja Tango Travel verða að fara í gjaldþrot Stálu hundruðum milljóna hjá Landsbankanum Gengi Alvotech aldrei lægra 25 sagt upp í fiskvinnslu „Hætt við því að það muni bitna á leigjendum“ „Nær engar líkur á vaxtalækkun“ Uppsagnir hjá Morgunblaðinu Gengi Alvotech hrynur „Misvitrir stjórnmálamenn“ skattleggi útgerðina í drep Alvotech fær ekki leyfi fyrir hliðstæðu Simponi að svo stöddu „Ástand sem við getum ekki búið við til lengdar“ Sjá meira