Nýr forstjóri Samskipa frá Mærsk 24. maí 2005 00:01
Fyrrverandi forstjóri Mærsk-skipafélagsins, Michael F. Hassing, verður næsti forstjóri Samskipa við hlið Ásbjörns Gíslasonar sem flytur sig um set til Íslands. Núverandi forstjóri, Knútur G. Hauksson, tekur við forstjórastarfi hjá Heklu. Ásbjörn Gíslason forstjóri, sem leitt hefur útrás Samskipa erlendis undanfarin ár, hefur tekið við rekstri félagsins á Íslandi. Undir Ásbjörn heyrir einnig stjórn Íslandsdeildanna erlendis og frystivöruflutningar félagsins. Michael F. Hassing, sem verið hefur forstjóri Mærsk skipafélagsins á Bretlandseyjum, mun einkum sinna ört vaxandi gámaflutningastarfsemi Samskipa erlendis og flutningsmiðlunarþjónustu félagsins. "Með þessum breytingum á yfirstjórninni og skýrari verkaskiptingu forstjóranna erum við að styrkja félagið enn frekar og skerpa áherslurnar í starfseminni," segir Ólafur Ólafsson, starfandi stjórnarformaður Samskipa. "Ásbjörn hefur leitt af krafti þá hröðu uppbyggingu sem orðið hefur hjá okkur erlendis og vænti ég þess að sami kraftur einkenni störf hans hér heima. Þá er það gríðarlegur ávinningur að fá í okkar raðir jafn reynslumikinn mann í alþjóðlegum siglingum og flutningastarfsemi og Michael Hassing er." Báðir forstjórarnir munu gerast hluthafar í Samskipum sem styrkir félagið enn frekar að mati stjórnarformannsins. Michael F. Hassing er með 25 ára reynslu hjá AP Møller-Mærsk Group í alþjóðlegum siglingum og flutningastarfsemi. Hann hefur gegnt fjölmörgum ábyrgðarstörfum hjá félaginu, t.d. í Singapore, Hong Kong, Hollandi og Japan. Áður en Michael gekk til liðs við Samskip var hann forstjóri Mærsk á Bretlandseyjum. Hann hefur einnig sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum í stjórnum fyrirtækja sem tengjast flutningastarfsemi á alþjóðavettvangi. "Við Ólafur Ólafsson höfum þekkst lengi og því veit ég hvaða væntingar hann er með um framtíð Samskipa. Því stóðst ég ekki freistinguna þegar mér var boðið að slást í hópinn," segir nýi forstjórinn, sem jafnframt er þriðji Daninn í stjórnunarteymi Samskipa. Stutt er síðan Flemming R. Jacobs, fyrrum samstarfsmaður Michaels hjá Mærsk, tók sæti í stjórn Samskipa og þar átti sæti fyrir landi þeirra Karsten M. Olesen. "Við hjá Samskipum höfum sett markið hátt og ætlum okkur að verða eitt stærsta flutningafyrirtækið á okkar sviði í Evrópu en um leið að verða afburðafyrirtæki í greininni," segir Ólafur Ólafsson "og þar mun umfangsmikil reynsla Michaels F. Hassing svo sannarlega nýtast okkur. Áherslurnar eru líka skýrar og vel afmarkaðar. Við ætlum að vera leiðandi í gámaflutningum innan Evrópu og munum innan skamms flytja yfir eina milljón gámaeininga á ári. Jafnframt erum við að efla frystivöruflutninga félagsins, sérstaklega milli Asíu og Evrópu, og nýta til fullnustu þá afburða þekkingu sem er fyrir hendi hjá félaginu á þeirri starfsemi." Það var árið 1998 að Samskip hófu skipulega útrás með kaupunum á Bruno Bishoff í Þýskalandi. Þar með var varðaður sá vegur sem félagið hefur fetað örugglega síðan. Samskip hafa skipulega eignast að fullu eða hluta ýmis fyrirtæki sem styðja og styrkja þessa útrás og þá stefnu sem félagið hefur markað sér. Skemmst er t.d. að minnast kaupanna á hollenska skipafélagsinu Geest North See Line í febrúar sl. og á Kloosterboer frystigeymslunum í Hollandi, Noregi og Færeyjum nú í lok apríl. Frystiflutningar Samskipa verða áfram á ábyrgð Ásbjörns Gíslasonar, þó svo hann færi sig um set frá Rotterdam og heim til Íslands og taki við resktri starfseminnar þar af Knúti G. Haukssyni, sem er að taka við sem forstjóri bifreiðaumboðsins Heklu eftir að hafa verið forstjóri Samskipa á Íslandi sl. tvö ár og þar áður aðstoðarforstjóri í rúm tvö ár. "Samhliða forstjóraskiptunum erum við að breyta áherslum í stjórnun félagsins," segir Ásbjörn. "Við hverfum frá þessari hefðbundnu skiptingu verkefna milli Íslands og útlanda og einbeitum okkur að hverju þjónustusviði fyrir sig. Þannig mun ég halda áfram að stjórna uppbyggingu frystiflutninganna sem og starfsemi Íslandsdeildanna erlendis. Jafnframt verður lögð áhersla á að tengja þá starfsemi enn betur við reksturinn á Íslandi," segir Ásbjörn, sem nú snýr heim eftir sex ára dvöl ytra. Samskip reka nú 49 skrifstofur í 21 landi, auk þess sem umboðsmenn eru starfandi um allan heim. Starfsmenn félagsins eru um 1.300 talsins. Áætluð velta Samskipa og dótturfélaga á þessu ári er um 45 milljarðar króna. Á þeirra vegum eru alls 21 gámaskip í föstum áætlunarsiglingum og eru áætlaðir heildargámaflutningar félagsins á þessu ári ríflega 900 þúsund gámaeiningar. Samskip og dótturfélagið Silver Sea eru einnig með 15 frystiskip á sínum snærum og er gert ráð fyrir að flutningar félagsins á frosnum fiski nemi 1,1 milljón tonna á þessu ári. Þar til viðbótar eru Samskip nú með önnur 15 skip í ýmsum öðrum verkefnum, þ.á.m. í þungaflutningum fyrir olíuiðnaðinn í Noregi og í löndunum í kringum Svartahaf.
Innlent Viðskipti Mest lesið Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Live verður Lifa Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Viðskipti innlent Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Viðskipti innlent Sorpa lætur sautján róa Viðskipti innlent Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Sjá meira