Samið við hæstbjóðendur 18. maí 2005 00:01 MYND/Páll Bergmann
Fjórtán tilboð bárust í Landsíma Íslands. Þeir sem uppfylla skilyrði fá að bjóða aftur og verður þá verðið eitt látið ráða. Kögun, sem ætlaði að bjóða ásamt erlendum fjárfestum var meinað um útboðsgögn. Frestur til að skila inn tilboðum rann út klukkan þrjú í gær. Fjórtán tilboð bárust en að baki þeim standa 37 fjárfestar. Tilboðin í gær voru ekki bindandi. Næstu daga munu framkvæmdanefnd um einkavæðingu og ráðgjafafyrirtækið MorganStanley fara yfir tilboðin. Það sem helst verður horft til við mat á tilboðunum er verð, fjárhagslegur styrkur, fjármögnun, reynsla af rekstri og sú framtíðarsýn sem menn hafa varðandi Símann og þjónustu í þéttbýli og drefibýli næstu fimm árin. Nöfn bjóðenda verða gefin upp að því loknu eða innan viku. Eftir að búið verður að fara yfir þetta allt saman verður þeim sem uppfylla almennar kröfur og skilyrði boðið að fá frekari upplýsingar um fyrirtækið þannig að á grundvelli þeirra upplýsinga geti þeir gert bindandi tilboð. Þegar svo bindandi tilboð í Símann verða skoðuð verður aðeins litið til þess verðs sem boðið er og gengið til samninga við hæstbjóðendur. Öllum bjóðendum og fjölmiðlum verður boðið að vera viðstaddir opnun þeirra tilboða. Ef munur á hæstu tilboðum er minna en fimm prósent verður viðkomandi gefinn kostur á að bæta tilboð sitt og skila því inn samdægurs. Meðal þeirra sem ætluðu að skila inn óbindandi tilboði í gær var Kögun ásamt þremur erlendum stórfyrirtækjum. Félagið fékk ekki útboðsgögn afhent þar sem Kögun á Skýrr, en síðarnefndar fyrirtækið er með rúmlega fimm prósenta markaðshlutdeild á netmarkaði á landinu en einkavæðingarnefnd telur að þar með sé Skýrr í samkeppni við Símann og megi ekki bjóða.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent „Stærsta tölvuinnbrot sögunnar“ hjá rafmyntarisa Viðskipti erlent Getur ekki lengur orða bundist Viðskipti innlent Tekjur Nova í hæstu hæðum Viðskipti innlent Gervigreindin: „Fólki fannst eins og ég væri að koma úr framtíðinni“ Atvinnulíf Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Ráðin mannauðsstjóri Advania Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Sjá meira