Og Vodafone kaupir allt hlutaféð 7. desember 2004 00:01
Stjórnir Og Vodafone og Norðurljósa, sem eiga meðal annars Bylgjuna og Stöð 2, hafa komist að samkomulagi um kaup Og Vodafone á öllu hlutafé tveggja dótturfélaga Norðurljósa, Íslenska útvarpsfélagins ehf. og Fréttar ehf. Þetta er breyting frá því fyrirkomulagi sem kynnt var í tilkynningu til Kauphallar Íslands þann 28. október sl. þar sem gert var ráð fyrir að Og Vodafone myndi kaupa allt hlutafé í Norðurljósum. Samkomulagið er gert með fyrirvara um samþykki hluthafafundar og afstöðu samkeppnisyfirvalda. Heildarkaupverð er samtals 5.800 milljónir króna, miðað við markaðsgengi bréfa Og Vodafone í lok dags í gær. Það greiðist að hluta með útgáfu nýrra hluta í Og Vodafone að nafnverði 810 milljónir króna og hins vegar með peningum. Skattamál Norðurljósa og tengdra félaga hafa verið til skoðunar um nokkurt skeið. Í áreiðanleikakönnun sem framkvæmd var í tengslum við kaupin er tekið á mögulegum skattaskuldbindingum ÍÚ. Endanleg niðurstaða varðandi skattaskuldbindingarnar liggur ekki fyrir en verði staðfest af yfirskattanefnd, og eftir atvikum dómstóla, athugasemdir skattyfirvalda er það mat stjórnenda Og Vodafone að samanlögð fjárhæð þessara skuldbindinga geti ekki orðið hærri en 460 milljónir króna og er í kaupverði tekið tillit til þessa. Stjórnendur Og Vodafone telja að með þessu sé mætt ýtrustu kröfum opinberra aðila án þess að um viðurkenningu á ofangreindum kröfum sé að ræða, samkvæmt yfirlýsingu sem birt var í Kauphöllinni.
Fréttir Innlent Viðskipti Mest lesið Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Viðskipti innlent Unnendur hamsatólgar geta andað léttar Neytendur Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki Viðskipti innlent Eigandi Toblerone í mál við breskan súkkulaðiframleiðanda Viðskipti erlent Verðbólga stendur í stað Viðskipti innlent Kólnun framundan: Það hættulega við að vera á góðum launum Atvinnulíf Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Gagnrýnir að ekkert bóli á aðgerðum varðandi skattlagningu tæknirisa Kaldvík fær enn frekari frest Umboð til breytinga á eignarhaldi Ljósleiðarans Hjúkrunarheimili í Nýherjahúsið Minni áfengisneysla í takt við markmið ríkisins ÁTVR segir upp og sparar 150 milljónir Pólfarinn verður yfir starfsstöðvum á jöklum Stjórnarlaun hækkuðu 75 prósent meira en önnur laun Fyrsta konan sem kjörin er formaður Hafnarsambandsins Ella frá Marel til Landsbankans Fráfarandi forstjóri Landsvirkjunar opnar sig um starfslokin Sjá meira