Sigur fyrir stjórnarandstöðuna 27. nóvember 2004 00:01
Stjórnarandstaðan í Úkraínu þykir hafa unnið táknrænan sigur í dag eftir að þjóðþingið ógilti forsetakosningarnar í landinu þar sem þær endurspegluðu ekki vilja kjósenda. Þingið lýsti yfir vantrausti á yfirkjörstjórn landsins. Á neyðarfundi þingsins var fjallað um leiðir til þess að koma í fyrir vaxandi ólgu í Úkraínu, en landið rambar á barmi borgarastyrjaldar, eftir að Viktor Janúkóvits, forsætisráðherra, sem er hliðhollur stjórnvöldum í Moskvu, var lýstur sigurvegari. Viktor Júsjenkó, leiðtogi stjórnarandstöðunnar, sakar stjórnvöld um kosningasvindl og krefst þess að kosið verði aftur 12. desember næstkomandi, en hæstiréttur landsins tekur á mánudag fyrir fyrir kæru hans um meint kosningasvik. Þingið samþykkti einnig að lýsa vantausti á yfirkjörstjórnina, þar sem henni hefði mistekist að sinna lögformlegum skyldum sínum. Þingið, sem slíkt, hefur ekki vald til þess að ógilda kosningarnar, en með vantraustsyfirlýsingunni getur það haft pólitísk áhrif. Um hundrað þúsund stuðningsmenn Júsjenkós voru fyrir framan þinghúsið í Kænugarði, meðan þjóðþingið fundaði. Á sama tíma efndu stuðningsmenn Janúkóvits, forsætisráðherra, til mótmæla í austurhluta landsins. Úkraínska þingið gagnrýndi Leóníd Kútsma, fráfarandi forseta, harkalega og sagði stjórnvöld bera ábyrgð á því að almenningur hefði misst alla trú á stofnunum ríksins. Javier Solana, yfirmaður utanríkismála Evrópusambandsins, er meðal þeirra sem reynt hafa að miðla málum í Úkraínu. Hann segir að Júsjenko og Janukovits verði að vinna saman að því að koma málum í góðan farveg í Úkraínu.
Erlent Fréttir Stj.mál Mest lesið Nafn unga mannsins sem lést á Vesturlandsvegi Innlent Sex hundruð miðar á vettvangi morðsins: „Fokking hálfvita fífl bæði tvö!!!!“ Innlent Ríkisstjórnin sendi leiðréttingu inn í beina útsendingu Innlent „Gjörsamlega samfélagslega ótækt“ að hafna kröfunni Innlent „Það voru bara slagsmál, viltu senda bíl“ Innlent Tvö og hálft ár fyrir að nauðga dóttur nágranna síns Innlent Höfðu haldið til í ruslageymslunni dagana á undan Innlent Halldór Blöndal er látinn Innlent Foreldrar hafa áhyggjur af börnum sínum með Sergio í Dúbaí Innlent Deildar meiningar um tölvupóst sem óvart var sendur á alla í nefndinni Innlent Fleiri fréttir Sér eftir að hafa ekki sagt Eli oftar hve heitt hann elskaði hann Segir „evrópsk svín“ vilja hagnast á falli Rússlands Auðgaðist ævintýralega á svikum og prettum Eldur í Tívolí Meina fólki frá fjölda ríkja að ferðast til Bandaríkjanna Nuddari gerði dóttur Reiner-hjónanna viðvart Bondi morðinginn formlega ákærður í 59 liðum Trump setur hafnbann á olíuskip á leið til og frá Venesúela Nick Reiner ákærður fyrir að myrða foreldra sína Segir Trump hafa persónuleika alkóhólista Brestir í MAGA-múrnum Lögðu lengi á ráðin um herlög Tólf ára drengur grunaður um morð í Malmö Heimta enn héruð Úkraínu sem þeir halda ekki Ósátt við lögreglu sem leitar enn morðingjans Segjast hafa myrt átta sæfarendur til viðbótar FDA samþykkir tvö ný lyf gegn ónæmum lekandabakteríum Vill fimm milljarða Bandaríkjadala frá BBC Rannsaka hvort feðgarnir fengu herþjálfun á Filippseyjum Úkraína fái tryggingar sem jafngilda 5. greininni Hafi hnakkrifist í teiti hjá Conan stuttu fyrir morðið Lögðu á ráðin um sprengjuárásir í Kaliforníu Grönduðu kafbát í fyrsta sinn með neðansjávardróna Segir Reiner hafa verið myrtan vegna andúðar í sinn garð Krefjast þess enn að Úkraínumenn hörfi frá Donbas Spjótin beinast að syni Reiners Ætla að herða lög um byssur enn frekar eftir árásina Starfsmenn Louvre mótmæla slæmum aðstæðum Hálfíslensk hljómsveit skilgreind öfgasamtök í Rússlandi Morðinginn í Brown gengur enn laus Sjá meira