Viðskipti innlent

Vill fresta at­kvæða­greiðslunni til að greiða fyrir vaxtalækkun

Forstjóri Icelandair telur að með markvissum aðgerðum sé hægt að koma í veg fyrir að Seðlabankinn sjái sig knúinn til að hækka stýrivexti í maí og hann lækki í stað vexti. Til þess þyrfti að umbylta vinnumarkaðsmódelinu, efla valdheimildir Ríkissáttasemjara og leggja alla áherslu á að lækka ríkisútgjöld. Til að sýna áherslurnar í verki mætti fresta þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhaldandi aðildarviðræður við ESB um ár.

Viðskipti innlent

Þrota­bú Wow air verður af hundruðum milljóna króna

Landsréttur hefur sýknað sjö kröfuhafa Wow air af kröfum þrotabús félagsins um riftun á mörg hundruð milljóna króna greiðslum sem félagið greiddi þeim skömmu fyrir gjaldþrot þess. Skúli Mogensen og stjórnarmenn í félaginu voru einnig sýknaðir af skaðabótakröfu upp á rúma tvo milljarða króna.

Viðskipti innlent

Ingunn nýr innri endur­skoðandi borgarinnar

Borgarráð samþykkti í dag ráðningu Ingunnar Ólafsdóttur sem innri endurskoðanda Reykjavíkurborgar. Í tilkynningu kemur fram að Ingunn hafi verið starfandi innri endurskoðandi Reykjavíkurborgar í tæp tvö ár en þar áður var hún fagstjóri innri endurskoðunar og staðgengill innri endurskoðanda frá árinu 2021.

Viðskipti innlent

Vaxta­hækkun í maí blasi við

Verðbólga hækkaði á milli mánaða og hafa hagfræðingar verulegar áhyggjur af þeirri miklu óvissu sem hækkun eldsneytisverðs gæti haft á næstu mánuðum og allri líkur á hækkun stýrivaxta á næsta fundi peningastefnunefndar Seðlabanka Íslands í maí. Jákvæðu teiknin eru þó þau að hægt hefur umtalsvert á hækkun fasteignaverðs og leigu og þá hefur matvara ekki hækkað jafn ört og í fyrra.

Viðskipti innlent

Verð­bólga eykst enn

Verðbólga mælist 5,4 prósent í mars, miðað við 5,2 prósent í febrúar. Greiningardeildir viðskiptabankanna höfðu spáð 5,4 til 5,5 prósenta verðbólgu.

Viðskipti innlent

Lindex opnar þar sem Next var áður

S4S ehf. hefur undirritað leigusamning við Kringluna um nýtt verslunarrými fyrir Lindex á Íslandi. Verslunin mun opna í maí og verður staðsett í 955 fermetra rými við hlið H&M þar sem Next hefur verið til húsa undanfarin ár.

Viðskipti innlent

Þörf á að koma á kortaviðskiptum án net­tengingar sem fyrst

Í nýrri yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar segir að þörf sé á að koma á kortaviðskiptum á Íslandi án nettengingar sem fyrst. Þar segir einnig að fjármálakerfið standi traustum fótum og sé vel í stakk búið að mæta ófyrirséðum áföllum. Í yfirlýsingunni segir enn fremur að stríðið við Persaflóa hafi leitt til framboðstruflana og verðhækkana og óvissa sé meiri í alþjóðamálum. 

Viðskipti innlent

Isavia ANS hefur ham­skipti og verður Avians

Flugleiðsöguþjónusta Isavia yfir Norður-Atlantshafi fékk nýja nafnið Avians í dag. Dótturfélagið hefur fram að þessu gengið undir heitinu Isavia ANS en breytingin er sögð eiga að aðgreina ólíka starfsemi samstæðunnar skýrar og ganga betur í erlenda viðskiptavini.

Viðskipti innlent

Hvernig safna ég fyrir húsnæðis­kaupum?

30 ára karlmaður spyr: „Blessaður Björn, við konan erum að flytja til Íslands frá Danmörku og viljum kaupa okkur hús, helst utan höfuðborgarsvæðisins. Við þurfum því að safna okkur töluverðum pening. Spurning mín til þín er því hvað þurfum við að hafa í huga? Eru einhver tips & trick fyrir fyrstu kaupendur? Eigum við að safna pening á sparnaðarreikning (sem í dag hefur góða vexti)? Allar hugmyndir vel þegnar. Bestu kveðjur.”

Viðskipti innlent

Lands­bankinn hækkar einnig vexti

Forsvarsmenn Landsbankans tilkynntu í dag að vextir yrðu hækkaðir. Hækkanirnar eru á milli 0,15 upp í 0,35 prósentustig eftir því hverslags lán er um að ræða en fyrstu breytingarnar tóku gildi í dag og hinar taka gildi á föstudaginn.

Viðskipti innlent

Rekstur Hörpu stöðugur þrátt fyrir krefjandi að­stæður

Rekstur samstæðu tónlistar- og ráðstefnuhússins Hörpu ohf. var stöðugur á árinu 2025 þrátt fyrir ýmsar krefjandi ytri aðstæður, þar á meðal aukinn kostnaðarþrýsting á flestum sviðum, segir í tilkynningu. Þar segir að á síðasta ári hafi verið um 1,6 milljónir heimsókna í Hörpu og haldnir 1.344 viðburðir.

Viðskipti innlent