Apple aftur verðmætasta fyrirtæki heims Apple er aftur orðið verðmætasta fyrirtæki heims, eftir að hlutabréf í Nvidia lækkuðu um fimm prósent í gær. Apple er nú metið á um 4,9 billjónir dala en Nvidia á um 4,8 billjónir. Viðskipti erlent 28.7.2026 07:20
Birtu tíu tillögur að nýjum seðlum Seðlabanki Evrópu hyggst breyta útliti peningaseðla sinna. Íbúar í Evrópusambandinu geta greitt atkvæði um tíu tillögur að nýju seðlunum. Viðskipti erlent 27.7.2026 19:40
Olíuverð fellur í kjölfar sprengjuhlés Verð á Brent-hráolíu hefur fallið um níu prósent það sem af er degi eftir að hafa einnig lækkað í gær. Verðið stendur nú í 88 Bandaríkjadölum eftir að hafa rofið 100 dala múrinn fyrir helgi. Ástæða lækkunarinnar er sú að Bandaríkin og Íran hafa gert hlé á átökum sínum og flutningaskip geta því siglt um Hormússund. Viðskipti erlent 27.7.2026 11:32
Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Tæknirisinn Microsoft tilkynnti að fimmtungi starfsmanna við Xbox-leikjatölvudeild hans yrði sagt upp störfum. Alls var tveimur prósentum starfsliðs Microsoft sagt upp en fyrirtækið eys nú fúlgum fjár í þróun gervigreindar. Viðskipti erlent 6.7.2026 14:32
Sky ætlar að festa kaup á ITV Breska fjölmiðla- og fjarskiptafélagið Sky hefur samið um kaup á ITV, stærstu einkareiknu sjónvarpsstöð Bretlands. Samruni félaganna á að geta keypt við alþjóðlegar streymisveitur. Viðskipti erlent 6.7.2026 10:05
Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur verið skikkað til þess að breyta reglum sínum um sætaskipan fyrir fjölskyldur og leyfa foreldrum að sitja við hlið ungra barna sinna án þess að greiða gjald fyrir sætapöntun. Er þetta í kjölfar rannsóknar sem breska samkeppnis- og markaðseftirlitið (CMA) hóf nýverið til að kanna hvort stefna flugfélagsins, sem eftirlitið segir að leiði venjulega til gjalds upp á átta pund, eða þrettán hundruð krónur, hvora leið, sé „ósanngjörn“ samkvæmt neytendalögum. Viðskipti erlent 25.6.2026 19:29
Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Heimsmarkaðsverð á olíu hefur ekki verið lægra frá því áður en Bandaríkjamenn og Ísraelar hófu árásir á Íran í febrúar. Olíuflutningar um Hormússund hafa aukist umtalsvert frá því að Íranir og Bandaríkjamenn gerðu samkomulag sín á milli í síðustu viku. Viðskipti erlent 25.6.2026 11:00
Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Auðkýfingurinn Elon Musk hefur misst stöðu sína sem eini billjónamæringur heims. Það gerist um tveimur vikum eftir að hann varð sá fyrsti í sögunni, auðævi hvers voru metin á yfir billjón Bandaríkjadala. Viðskipti erlent 25.6.2026 07:43
Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Fyrrverandi forsætis- og utanríkisráðherra Katar er sagður hafa fest kaup á sveitasetri Silvio Berlusconi heitins á eyjunni Sardiníu. Setrið var eitt af nokkrum þar sem þáverandi forsætisráðherra Ítalíu hélt alræmdar „bunga bunga“-veislur sínar. Viðskipti erlent 24.6.2026 13:46
Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Málsvarar gervigreindariðnaðarins segja að stjórnvöld í Evrópu verði að gera upp á milli hvort þau vilja ná loftslagsmarkmiðum sínum eða tapa kapphlaupi um þróun gervigreindar við Kína. Evrópa þurfi að brenna jarðefnaeldsneyti til þess að knýja ný gagnaver fyrir gervigreind. Viðskipti erlent 18.6.2026 11:42
Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Verð á olíu lækkaði þegar markaðir í Asíu opnuðu í nótt eftir að tilkynnt var um að Bandaríkjastjórn og klerkastjórnin í Íran hefðu náð samkomulagi um að opna Hormússund. Töluverð óvissa ríkir þó enn um hvað samkomulagið felur í sér og hvort það haldi. Viðskipti erlent 15.6.2026 06:28
Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Kaup Paramount á Warner Bros hafa verið samþykkt af dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna en salan hefur verið umdeild, meðal annars vegna tengsla forstjóra Paramount og Donalds Trump forseta. Þrátt fyrir samþykkið eru kaupin ekki frágengin og enn er mögulegt að ríki höfði mál til að stöðva söluna. Viðskipti erlent 13.6.2026 08:55
Heimsins fyrsti billjónamæringur Auðkýfingurinn Elon Musk varð í dag heimsins fyrsti billjónamæringur eftir að hlutabréf í fyrirtæki hans SpaceX ruku upp við stærstu útgáfu hlutabréfa í sögunni. Viðskipti erlent 12.6.2026 23:12
Sögulegri skráningu SpaceX lokið SpaceX, geimferða- og tæknifyrirtæki Elons Musk, hefur verið skráð á markað vestanhafs eftir 75 milljarða dala hlutafjárútboð, sem var það stærsta í sögunni. Útboðið og skráning SpaceX gæti gert Musk, sem er fyrir auðugasti maður jarðarinnar og vel það, að fyrsta billjónamæringi heims (í dölum talið). Viðskipti erlent 12.6.2026 15:31
Hefja rannsókn á Ryanair Samkeppnis- og markaðseftirlit Bretlands hefur hafið rannsókn á breska lággjaldaflugfélaginu Ryanair vegna gjalda sem farþegar þurfa að greiða svo foreldrar og börnin þeirra geti setið saman í flugferð. Viðskipti erlent 11.6.2026 22:38
Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Seðlabanki Evrópu (ECB) hefur nú hækkað stýrivexti í fyrsta sinn í nærri þrjú ár í von um að sporna gegn verðbólgu. Bankinn er sá fyrsti af mörgum stærstu seðlabönkum heims til að bregðast við hinu svokallaða orkuáfalli en eldsneytisverð hefur rokið upp undanfarna mánuði vegna stríðsins í Íran. Hagfræðingar hafa undanfarið deilt um hvort ákvörðunin sé réttlætanleg. Viðskipti erlent 11.6.2026 18:52
Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum Breska samkeppniseftirlitið (CMA) hefur hafið rannsókn á gjaldtöku Ryanair. Málið varðar reglu flugfélagsins sem skyldar foreldra til að bóka sæti við hlið barns eða barna sinna á aldrinum tveggja til ellefu ára og rukkar fyrir sætið. Viðskipti erlent 11.6.2026 07:40
OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins OpenAI hófu í gær formlega ferli hlutafjárútboðs, sem gæti átt sér stað í haust. Þá gæti reynt á það hve mikið fjárfestar eru sólgnir í að fjárfesta í gervigreindarfyrirtækjum en forsvarsmenn fyrirtækisins Anthropic, sem rekur gervigreindina Claude, stefna einnig að hlutafjárútboði um þetta leyti. Það sama má segja um SpaceX, sem rekur meðal annars gervigreindina Grok. Viðskipti erlent 9.6.2026 11:48
Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Norska raftækjaverslunarkeðjan Elkjøp hefur verið sektuð í Noregi fyrir persónuverndarlagabrot á viðskiptavinum í svokölluðum kúnnaklúbbi. Brotið er sagt varða tæplega 6,7 milljónir viðskiptavina félagsins vítt og breitt um Norðurlöndin. Íslendingar þekkja verslanir vörumerkisins sem Elko. Persónuvernd á Íslandi kveðst ekki hafa haft aðkomu að málinu. Viðskipti erlent 9.6.2026 11:47
Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Jack Clark, einn af stofnendum Anthropic, segir nauðsynlegt að geta hægt á þróun gervigreindar ef illa fer. „Þú vilt geta tekið fótinn af bensíngjöfinni og sett hann á bremsuna. Gervigreindariðnaðurinn er með bensíngjöf en er án bremsu,“ sagði hann í viðtali við BBC Newsnight. Viðskipti erlent 5.6.2026 07:12
Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Forsvarsmenn geimferða- og tæknifyrirtækisins SpaceX ætla að verðleggja hvern hlut í félaginu, þegar hlutafjárútboð verður haldið, á 135 dali. Stefnt er að því að selja 555,6 milljónir hluta fyrir alls 75 milljarða dala. Það samsvarar um 9,3 billjónum króna. Viðskipti erlent 3.6.2026 08:45
Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Forsvarsmenn gervigreindarfyrirtækisins Anthropic hófu í gær formlega undirbúning fyrir hlutafjárútboð. Fyrirtækið gæti verið komið á hlutabréfamarkað fyrir haustið en eigendur þess og eigendur OpenAI eru í keppni um hverjir verða fyrstir. Viðskipti erlent 2.6.2026 12:16
Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Jensen Huang, forstjóri Nvidia, opinberaði í morgun nýja tölvuflögu sem á að gera fólki kleift að nýta sér gervigreind án þess að þurfa að treysta á skýjaþjónustu. Búist er við því að flagan muni geta leitt til grundvallarbreytinga þegar kemur að því hvernig fólk notar gervigreind. Viðskipti erlent 1.6.2026 10:32
Bora eftir jarðhita á Tenerife Reykjavík Geothermal, í samstarfi við stjórnvöld og orkufyrirtæki á Tenerife, hefur hafið jarðhitaboranir til raforkuframleiðslu á Kanaríeyjum. Verkefnið er sagt marka stór tímamót í vegferð eyjanna í átt að hreinni, öruggari og staðbundinni orkuframleiðslu. Viðskipti erlent 28.5.2026 15:13