Umfjöllun, viðtöl, einkunnir og myndir: Þróttur - Valur 0-4 | Auðvelt dagsverk hjá Valsmönnum Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 22. ágúst 2016 23:00 Valsmenn fagna einu marki sinna í kvöld. Vísir/stefán
Valur vann stórsigur á Þrótti, 0-4, í 16. umferð Pepsi-deildar karla í kvöld. Með sigrinum komust Valsmenn upp í 5. sæti deildarinnar en Þróttarar eru svo gott sem fallnir, með átta stig á botninum og níu stigum frá öruggu sæti. Leikurinn var nokkuð jafn í fyrri hálfleik en mark Kristins Freys Sigurðssonar skildi liðin að í hálfleik. Valsmenn byrjuðu seinni hálfleikinn svo af fítonskrafti og skoruðu þrjú mörk á fyrstu 20 mínútum hans. Andri Adolphsson skoraði annað mark Vals á 48. mínútu, Kristinn Freyr bætti því þriðja við á 62. mínútu og Kristinn Ingi Halldórsson negldi svo síðasta naglann í kistu Þróttara þremur mínútum síðar.Af hverju vann Valur? Fyrri hálfleikurinn var jafn og bæði lið áttu sín augnablik. Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, stillti upp með tígulmiðju sem gafst ágætlega í fyrri hálfleik. Þróttarar nýttu yfirtöluna á miðjunni á köflum vel og komust í álitlegar stöður á síðasta þriðjungnum sem þeir hefðu átt að nýta betur. Varnarleikurinn var þó alltaf tæpur og sérstaklega þegar Þróttarar töpuðu boltanum. Valsmenn áttu góða spilkafla en fóru ekki almennilega í gang fyrr en í upphafi seinni hálfleiks þegar þeir keyrðu hreinlega yfir heimamenn. Þróttarar réðu ekkert við Valsmenn í seinni hálfleik og eftir 65 mínútur var staðan orðin 0-4 og leik þar með lokið.Þessir stóðu upp úr Kristinn Freyr hefur verið sjóðandi heitur að undanförnu og gaf ekkert eftir í kvöld. Hann skoraði tvö mörk og er því kominn með níu mörk í síðustu sjö leikjum Vals. Mörkin í sumar eru alls orðin 14 og Kristinn Freyr er þegar búinn að skora níu mörkum meira en allt tímabilið í fyrra. Andri hélt líka uppteknum hætti frá því í síðustu leikjum og skilaði marki og stoðsendingu. Guðjón Pétur Lýðsson var einnig góður og lagði upp tvö mörk og Kristinn Ingi skoraði sitt sjötta mark í síðustu sjö leikjum Vals. Þá átti Anton Ari Einarsson flottan leik í marki gestanna. Hjá Þrótti var Christian Nikolaj Sörensen góður í fyrri hálfleik og var óheppinn að skora ekki þegar skot hans small í stönginni á 38. mínútu. Dion Acoff var svo að venju ógnandi og það er sama hversu slakir Þróttarar eru alltaf gerir Bandaríkjamaðurinn sig gildandi.Hvað gekk illa? Vörn Þróttar hélt hvorki vatni né vindum frekar en fyrri daginn. Einbeitingar- og andvaraleysið er algjört og varnarmenn liðsins virðast hafa afar takmarkaða tilfinningu fyrir leiknum. Þróttarar spiluðu sem áður sagði ágætlega í fyrri hálfleik en þú færð ekkert fyrir að spila vel í 45 mínútur. Um leið og Valsmenn gáfu aðeins í kom getumunurinn á liðunum í ljós og gestirnir kafsigldu þá rauðu og hvítu í byrjun seinni hálfleiks.Hvað gerist næst? Valsmenn hafa unnið tvo síðustu deildarleiki sína með markatölunni 11-0. Þeir munu þó væntanlega ekki hafa sömu yfirburði í næstu fjórum leikjum sínum sem eru gegn KR, Stjörnunni, Breiðabliki og FH. En miðað við spilamennskuna að undanförnu þurfa strákarnir hans Ólafs Jóhannessonar ekki að kvíða neinu. Þróttur sækir ÍBV heim í næsta leik sínum. Staða liðsins er vond og aðeins meiriháttar kraftaverk virðist geta bjargað liðinu frá falli.Ryder: Getum ekki spilað heilan leik vel Gregg Ryder, þjálfari Þróttar, horfði upp á sína menn tapa enn einum leiknum í kvöld. „Mér fannst við vera betra liðið í fyrri hálfleik en ég hef sagt það margoft í sumar. Við erum ófærir um að spila heilan leik vel,“ sagði Gregg eftir leik. „Í mínum huga snýst þetta ekki um getu, þetta er andlegt vandamál.“ Þrátt fyrir 0-4 tap sá Gregg nokkra jákvæða punkta í leik Þróttar í fyrri hálfleik. „Ég sá jákvæða punkta í fyrri hálfleik eins og ég hef gert í næstum því öllum leikjum í sumar. Ég er jákvæður maður. „En þú verður að gera þetta almennilega í 90 mínútur, annars er þér refsað,“ sagði Gregg sem er orðinn þreyttur á slökum varnarleik sinna manna. „Við gerðum mistök í vörninni. Þetta er alltaf sama vandamálið, sama hvaða leikaðferð við spilum,“ sagði Englendingurinn að endingu.Ólafur: Ánægður með mína menn Það var létt yfir Ólafi Jóhannessyni, þjálfara Vals, eftir stórsigur hans manna á Þrótti í kvöld. „Við spiluðum fínan leik hérna í dag og ég er ánægður með mína menn,“ sagði Ólafur í leikslok. Fyrri hálfleikurinn var nokkuð jafn en í þeim seinni voru Valsmenn mun sterkari aðilinn og kláruðu leikinn af öryggi. „Mér fannst við hafa góð tök á leiknum en í hálfleik töluðum við um að bæta okkur aðeins og þá myndum við fá fleiri opnanir. Og það gekk eftir,“ sagði Ólafur sem brýndi fyrir sínum mönnum að halda einbeitingu í leiknum. „Okkar leikur snýst alltaf um okkur. Við leggjum meiri áherslu á okkur en andstæðinginn. Þegar menn spila við lið í neðri hlutanum er hætt við að þeir gleymi sér og tapi einbeitingunni en það gerðist ekki í dag.“ Valsmenn eru þegar búnir að tryggja sér Evrópusæti með sigrinum í Borgunarbikarnum og hafa þannig séð að litlu að keppa í síðustu umferðum Pepsi-deildarinnar. Ólafur vill þó sjá sína menn klára mótið af krafti. „Við förum í hvern leik til þess að vinna hann og þannig verður það,“ sagði Ólafur að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu Íslenski boltinn Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Íslenski boltinn Tilbúinn að bjarga Tottenham: „Kranjcar, Crouchy og Defoe koma allir aftur“ Enski boltinn Aberg með vallarmet og meiddur McIlroy bjargaði sér Golf Antonelli yngstur til að vera á ráspól í sögu Formúlu 1 Formúla 1 Verstappen segir Red Bull-bílinn ömurlegan Formúla 1 Yfirlýsing íranska landsliðsins: „Enginn getur bannað okkur að fara á HM“ Fótbolti Formúlu 1 keppnum í Mið-Austurlöndum aflýst Formúla 1 Guardiola hreinskilinn: „Ef við töpum stigum er þetta búið“ Enski boltinn Stappar stálinu í Kinsky og segir leikmönnum að fara ekki að grenja Enski boltinn Fleiri fréttir Fimmtán ára skoraði tvö þegar KR fór í úrslit Íslenskukunnáttan takmarkast við „kjúklingawingers“ Tilfinningarík kveðjustund eftir þriggja ára baráttu David James þjálfar markverði Vals Sektir fyrir klúður í skýrslu og brotthvarf í hálfleik Föstudagsfjör hjá KA: Svíi mættur í kjölfar Danijels Danijel Djuric gerir þriggja ára samning við KA Valsmenn hafi sýnt vanvirðingu: „Gamla góða kjaftæðið“ „Gátum ekki látið hann stjórna því“ Baldé snýr aftur til bikarmeistaranna Fylkir á barmi undanúrslita eftir sigur á ÍBV Sjáðu fimmu Atla Sigurjóns á móti Val í gær Fleury fór á kostum gegn FH Atli Sigurjóns skoraði fimm mörk og fór illa með Val Víkingurinn fljótur að láta til sín taka í Keflavík Meistararnir skoruðu sjö mörk gegn Víkingi Mættur til Skagamanna á Tenerife og gæti spilað gegn KR um helgina Fram fær hávaxna Hvergerðinginn Þróttarar fyrstir til að vinna Fylki og enn barist um efsta sætið Kani í mark Víkinga „Talaði við nokkur lið en á endanum var Víkingur mest heillandi“ Ejub látinn fara af fjárhagslegum ástæðum Dramatík í Nettóhöllinni FH-ingar kláruðu leikinn en töpuðu Jóhannes Kristinn gengur til liðs við Víking „Hvað er hann að gera hér?“ Keflavík fær víking að láni HM-farinn Cisse strax búinn að kveðja Vestra „Þetta voru orðnar hættulegar aðstæður“ Stjörnukonur burstuðu Þrótt og Þór/KA vann stórt fyrir austan Sjá meira