Víkingur semur við serbneskan framherja Tómas Þór Þórðarson skrifar 6. júlí 2015 10:15 Vladimir Tufegdzic þarf að skora mörk fyrir Víkinga.
Pepsi-deildarlið Víkings er búið að ganga frá samningi út tímabilið við serbneska framherjann Vladimir Tufegdzic. Hann kemur til Víkinga frá serbneska 1. deildar liðinu Sindelic Beograd þar sem hann skoraði sex mörk í þrettán leikjum á seinni helming síðustu leiktíðar. „Hann kemur til landsins í dag og verður löglegur þegar glugginn opnar 15. júlí,“ segir Heimir Gunnlaugsson, formaður meistaraflokksráðs Víkings, í samtali við Vísi. Tufegdzic æfir með 2. flokki fyrstu dagana þar sem Víkingar halda til Slóveníu á morgun og mæta FC Koper í seinni leik liðanna í fyrstu umferð forkeppni Evrópudeildarinnar á fimmtudaginn. Víkingar vonast vitaskuld til að Serbinn aðstoði liðið við markaskorun, en Fossvogsliðinu hefur gengið erfiðlega fyrir framan markið að undanförnu. Víkingar hafa aðeins skorað eitt mark í síðustu þremur leikjum í öllum keppnum, en markahæstu leikmenn liðsins í Pepsi-deildinni eru Rolf Toft og Igor Taskovic með þrjú mörk hvor. Víkingur féll úr leik í bikarnum í gærkvöldi þegar liðið tapaði fyrir Val, 2-1, en Víkingar eru einnig í fallbaráttu í Pepsi-deildinni með níu stig eftir tíu umferðir.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum Íslenski boltinn Handtekin fyrir að lemja kærastann en hann vildi ekki kæra Sport „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ Íslenski boltinn „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ Íslenski boltinn Stjórnendur NBA reyna að sannfæra Real Madrid og fleiri forrík félög Körfubolti Fékk vægt áfall: „Með fullt af missed calls“ Körfubolti Isak snýr aftur til æfinga með Newcastle Enski boltinn Sveindís spilaði fyrsta leikinn fyrir Angel City Fótbolti Luka framlengir til þriggja ára í Los Angeles Körfubolti Stórt tap á Ítalíu Körfubolti Fleiri fréttir „Lélegasti leikurinn okkar í sumar“ „Hefðum ekki átt að tapa þessum leik“ „Ég vona að tjaldið mitt sé ennþá þarna, það verður gaman í kvöld“ Uppgjörið: ÍBV - KR 2-1 | Fyrirliðinn tryggði fögnuð í Eyjum „Einhver blástur en ekkert sem á að hafa svakaleg áhrif“ ÍBV fær liðsstyrk úr Laugardal Jóhannes ræddi ekki við Val: „Ef ég ætlaði að fara frá KR var það alltaf bara út“ Kristján hættur sem þjálfari Vals en Matthías verður áfram Skoraði ekki í leiknum en dómararnir skráðu samt á hana tvö mörk Orri Hrafn í KR og getur spilað í Eyjum Alfreð og fleiri jálkar með óvænt félagaskipti yfir í Augnablik Selvén aftur í Vestra „Sætt að þetta gerðist á 91. mínútu“ KR sækir Arnar Frey af bekknum hjá HK Uppgjörið: Breiðablik - ÍBV 3-2 | Blikar í úrslit eftir ótrúlega endurkomu „Nákvæmlega það sem ég hef verið að sjá fyrir mér“ KSÍ sektar Árbæ um 250 þúsund krónur ÍR aftur á toppinn Hin efnilega Rebekka Sif til Nordsjælland frá Gróttu Sunna Rún til liðs við Íslandsmeistarana Uppbótartíminn: Hvernig lið er Stjarnan? „Ætlum að fara þarna og sækja þennan bikar“ Njarðvík á toppinn Uppgjörið: Valur - FH 2-3 | Hafnfirðingar í úrslit í fyrsta sinn FH konur ætla að skrifa söguna í kvöld KR missir sinn efnilegasta mann „Rosalega vitlaust á þessum tímapunkti í leiknum“ Trúnaðarbrestur og formaðurinn hættur Ekroth skúrkurinn í Stúkunni: „Hann grípur um andlitið, hann veit af þessu“ Sjáðu markið sem var stolið, rauða spjaldið og alla markaveislu Stjörnunnar Sjá meira