„Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ „Mér finnst þetta fyrst og fremst bara sorglegt,“ segir Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, sem telur ummæli Þorgerðar Katrínar Gunnars utanríkisráðherra í sinn garð vart svaraverð. „Af því að ég er nú búinn að fylgjast í áratugi með utanríkisráðherrum Íslands og ég hef aldrei fyrr upplifað að sá sem gegnir þeirri trúnaðarstöðu í íslenska lýðveldinu leyfi sér svona bull.“ Innlent 3.11.2026 17:36
„Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisáðherra segist hafa þurft að svara fyrir ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar fyrrverandi forseta um Rússa í samtölum við kollega hennar erlendis. Innlent 3.11.2026 14:41
Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Rússneska sendiráðið á Íslandi segist afar undrandi á orðum Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra á Alþingi í gær þar sem hún sagði tíst Ólafs Ragnars Grímssonar hafa verið alvarlegri en skrif Heimis Más Péturssonar framkvæmdastjóra þingflokks Flokks fólksins. Rússar skrifa þó að orð Þorgerðar Katrínar gefi ástæðu til varlegrar bjartsýni. Innlent 3.11.2026 08:45
Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Heimir Már Pétursson framkvæmdastjóri þingflokks Flokks fólksins biðst afsökunar á færslu sinni á samfélagsmiðlinum X, sér í lagi til vísunar til kjarnorkuvopna. Hann segir orðin eiga sér engar málsbætur, um sé að ræða persónulega færslu sem tengist á engan hátt störfum hans fyrir Flokk fólksins. Innlent 30. október 2026 15:59
Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Úkraínumenn gerðu í morgun umfangsmikla árás á stóra olíuvinnslu í Samara-héraði. Þar með bundu þeir enda á tveggja vikna árásahlé sem Úkraínumenn höfðu komið á vegna þrýstings frá ríkisstjórn Bandaríkjanna. Árásin var gerð eftir að Rússar felldu fjölda óbreyttra borgara í árásum í Úkraínu í gær. Erlent 30. október 2026 09:47
Blóðbað á lestarpalli Að minnsta kosti þrettán eru látnir eftir að rússneskur sjálfsprengidróni lenti á lestarpalli í Dnípró í Úkraínu í morgun. Þrettán til viðbótar eru særðir en fólkið var að bíða eftir því að komast um borð í farþegalest sem stefnt var til Sapórisjía þegar árásin var gerð. Erlent 29. október 2026 11:16
„Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Kristrún Frostadóttir segist ekki gera athugasemd við að starfsbræður hennar í Noregi og í Finnlandi hafi rætt símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Hún viti í grófum dráttum hvað kom fram í símtalinu og að lykilatriðið sé að samtalið sé átt á forsendum Úkraínumanna og með vitund og vilja Úkraínuforseta. Innlent 27. október 2026 18:06
Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Mette Frederiksen forsætisráðherra Danmerkur segist efins um nytsemi símtals starfsbræðra hennar í Noregi og í Finnlandi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Volodomír Selenskí Úkraínuforseti segist þakklátur stuðningi Norðmanna og Finna í stríðinu, hann hafi verið upplýstur um efnislegt innihald samtalsins. Pútín er sagður hafa kennt stefnu NATO og ESB um lengd stríðsins. Erlent 27. október 2026 13:29
Stubb og Støre ræddu við Pútín Forseti Finnlands Alexander Stubb og forsætisráðherra Noregs Jonas Gahr Støre ræddu símleiðis við Vladimír Pútín Rússlandsforseta í morgun. Þeir segja samtalið hafa verið hreinskiptið og viðamikið þar sem þeir hafi gagnrýnt framferði Rússa í Úkraínu. Erlent 27. október 2026 10:09
Musk segi ósatt um Starlink Serhii Sternenko, ráðgjafi úkraínska varnarmálaráðuneytisins, hafnar fullyrðingum Elons Musk um að Úkraínumenn hafi brotið gegn notkunarskilmálum Starlink með því að nota kerfið við drónaárásir. Erlent 24. október 2026 23:11
Geta notað drónana til fulls á ný Tenging úkraínskra hermanna við Starlink-tæknina er aftur orðin stöðug samkvæmt varnarmálaráðherra landsins. Herinn hafði takmarkaða tengingu við tæknina í nokkra daga en hermenn reiða sig mikið á hana í hernaði gegn Rússum. Erlent 24. október 2026 14:27
Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Melania Trump, forsetafrú Bandaríkjanna, er sögð hafa tryggt staðbundið mannúðarvopnahlé í Úkraínu. Vopnahlé þetta er bundið við bæinn Oleshky í Kherson-héraði, suður af Dnípróá. Þaðan hafa um nokkuð skeið borist fregnir af hræðilegum aðbúnaði íbúa og harðræði sem þeir eru beittir af Rússum. Erlent 23. október 2026 14:16
Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Rússar skutu mörgum skotflaugum og flugu fjölda sjálfsprengidróna að Kænugarði og öðrum borgum Úkraínu í gærkvöldi og í nótt. Að minnsta kosti 21 skotflaug lenti í höfuðborginni í þremur mismunandi bylgjum en samkvæmt Úkraínumönnum bar allavega ein þeirra klasasprengjur, sem hannaðar eru til að dreifa tugum smærri sprengja yfir stórt svæði. Erlent 22. október 2026 11:08
„Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Ráðgjafi Vladimírs Pútín segir að Rússar séu tilbúnir til þríhliða viðræðna milli Rússlands, Bandaríkjanna og Úkraínu. Þingmenn Repúblikanaflokksins hafa mótmælt ummælum erindreka Donalds Trump um að Pútín sé mannvinur. Erlent 21. október 2026 14:56
Björguðu særðum hermanni með dróna Úkraínskir hermenn notuðu á dögunum stóran dróna til að bjarga særðum hermanni af víglínunni. Maðurinn hafði varið nærri því fimm hundruð dögum á víglínunni en hann tilheyrir 30. stórfylki Úkraínuhers. Drónar hafa verið notaðir til að flytja til hans matvæli, vatn og skotfæri en eftir að hann særðist alvarlega var ákveðið að flytja hann á brott. Erlent 21. október 2026 13:54
Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar hyllti Vladímír Pútín, forseta Rússlands, sem „mannvin“ á fundi þeirra í Pétursborg í dag. Bandaríkjastjórn hefur færst æ nær stjórnvöldum í Kreml á undanförnum dögum. Erlent 21. október 2026 12:18
Musk setti Úkraínumönnum takmörk á tengingar við Starlink Auðkýfingurinn Elon Musk gaf fyrirmæli um að takmörk yrðu sett á notkun Úkraínuhers á Starlink-kerfinu í síðustu viku. Innlent 20. október 2026 21:12
Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Volodýmýr Selenskí, forseti Úkraína, ásamt evrópskum bandamönnum fundar nú með fulltrúa Bandaríkjastjórnar í Osló í skugga áframhaldandi harðra árása Rússa á landið. Bandaríkjastjórn hefur nálgast verulega stjórnvöld í Kreml að undanförnu. Erlent 20. október 2026 15:18
20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu Stuðningur Íslands við Úkraínu nam 20,4 milljörðum króna frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í febrúar 2022 til september síðastliðins. Framlög og samningar um stuðning við Palestínu nema samtals um 1,76 milljörðum samkvæmt samantekt á fjárhæðum í skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025. Sú fjárhæð nær yfir nokkur ár og felur einnig í sér greiðslur á næstu árum. Innlent 19. október 2026 22:02
Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Vladimír Pútín hefur lagt til við Donald Trump að þeir og Xi Jinping komi saman í næsta mánuði og ræði hvernig binda eigi enda á stríðið í Úkraínu. Pútín er sagður vilja nýta bætt samband sitt og Trumps og versnandi samband Trumps og Vólódímírs Selenskí, forseta Úkraínu. Þessar vendingar hafa leitt til mikilla áhyggja í Evrópu og í Úkraínu, sem munu ekki eiga fulltrúa á fundinum, verði af honum. Erlent 19. október 2026 08:17
Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Bandaríkjaforseti segir að vilji Úkraínuforseta til að binda enda á stríðið milli Úkraínu og Rússlands sé enginn og að lög um refsiaðgerðir og viðskiptaþvinganir gegn Rússum gætu hrakið þá frá samningaborðinu. Erlent 18. október 2026 21:47
Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Donald Trump forseti Bandaríkjanna undirritaði í gær forsetatilskipun um að fresta gildistöku umfangsmikilla nýrra refsiaðgerða og viðskiptaþvingana gegn rússnesku efnahagslífi. Hann tilkynnti á þinginu í gær að hann væri að fresta gildistökunni í þágu þjóðarhagsmuna en útskýrði það ekki nánar. Erlent 17. október 2026 08:17
Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Vólódímír Selenskí segir að Úkraínumenn eigi rétt á því að verja sig og að hann sé einungis að standa vörð um hagsmuni þjóðarinnar. Er það eftir gagnrýni Donalds Trump í hans garð vegna árása á rússneska olíuvinnsluinnviði. Selenskí varaði líka við því að Vladimír Pútín væri að skapa Rússland sem líktist Norður-Kóreu og að öðrum ríkjum myndi áfram stafa ógn af Rússlandi í framtíðinni. Erlent 16. október 2026 22:03
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Donald Trump hefur gert Vladimír Pútín mikla greiða á undanförnum dögum, með því að grafa undan vörnum Úkraínumanna og samstöðu meðal bakhjarla Úkraínu. Þá hefur forsetinn gagnrýnt Vólódímír Selenskí harðlega og sakað hann, en ekki Pútín, um að standa í vegi friðar með því að verða ekki við kröfum Rússa, sem fela í sér lítið annað en uppgjöf. Erlent 16. október 2026 08:02