Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran

Fréttamynd

Gerðu á­rásir á Íran sjötta daginn í röð

Bandaríkjaher hélt árásum sínum á Íran áfram í nótt, sjöttu nóttina í röð og fullyrða miðlar í Íran að nú hafi verið ráðist að borgaralegum innviðum á borð við brýr, lestarstöð og flugvöll.

Erlent
Fréttamynd

Trump boðar gjald­töku á Hormússundi

Bandaríkjamenn gerðu árásir á skotmörk í Íran í nótt, þriðju nóttina í röð. Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að árásirnar yrðu harðar og að Bandaríkjastjórn myndi í kjölfarið koma aftur á hafnarbanni gegn Írönum á Persaflóa.

Erlent
Fréttamynd

Lítil bjart­sýni á úr­slitastundu

Olíuverð hefur hækkað um rúm níu prósent í dag eftir að átök Bandaríkjanna og Írans hörðnuðu og óvissa jókst um Hormússund. Hækkunin getur skilað sér í íslenskt verðlag einmitt þegar úrslitamæling vegna kjarasamninga er handan við hornið.

Innlent
Fréttamynd

Íran og Banda­ríkin skiptast á á­rásum

Íranir gerðu árásir á bandarískar herstöðvar á Persaflóa í nótt og segja aðgerðirnar svar við árásum Bandaríkjanna fyrr í nótt. Íranski byltingarvörðurinn (IRGC) sagðist í gær hafa lokað fyrir alla umferð á Hormússundi. 

Erlent
Fréttamynd

Þúsundir fylgja æðsta­klerkinum til grafar í skugga á­rása

Þúsundir Írana fylgja fyrrum æðstaklerkinum Ali Khamenei til grafar á lokadegi útfarar hans í borginni Mashhad í norðaustur Íran í dag. Fjórtán létust í árásum Bandaríkjanna síðustu nótt og þá hafa Íranir svarað með árásum gegn herstöðvum Bandaríkjanna í Kúveit, Katar og Barein.

Erlent
Fréttamynd

Á­rásir á báða bóga og um­ferð um sundið dregst saman

Bandaríkjaher hélt áfram árásum á Íran í gær, eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sagði að tímabundið vopnahlé væri úr sögunni. Samkvæmt írönskum miðlum heyrðust sprengingar í hafnarborgunum Bandar Abbas og Sirik, auk þess sem gerðar voru árásir á skotmörk í Bushehr héraði, þar sem er að finna kjarnorkuinnviði.

Erlent
Fréttamynd

Krist­rún um Trump: „Það er hlýtt á milli okkar“

Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag en þar fór Bandaríkjaforseti mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og vel fór á milli hennar og Donalds Trump. 

Innlent
Fréttamynd

Boðar fleiri á­rásir

Bandaríkjaher ætlar að halda áfram árásunum sínum á Íran í kvöld. Þetta tilkynnti Donald Trump Bandaríkjaforseti á blaðamannafundi á leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins.

Erlent
Fréttamynd

Íranir svara fyrir sig með á­rásum á Kúveit og Barein

Íranir gerðu árásir á hernaðarinnviði Bandaríkjanna í Kúveit og Barein í nótt, í kjölfar árása Bandaríkjamanna á skotmörk í Íran í gærkvöldi. Yfirvöld í Bandaríkjunum sögðu árásir sínar svar við árásum Írana á flutningaskip á Hormuz-sundi.

Erlent
Fréttamynd

Banda­ríkin hefja á­rásir á Íran á ný

Bandaríkin segjast hefja árásir á Íran á ný í kjölfar árásar Írans á þrjú olíuflutningaskip á Hormússundi. Bandaríkjastjórn afturkallaði í dag heimild um sölu á íranskri olíu en hún var hluti af bráðabirgðasamkomulagi um endalok átaka milli Bandaríkjanna og Írans. 

Erlent
Fréttamynd

Mætti ekki í út­för föður síns

Mojtaba Khamenei, sem tók nýlega við sem æðstiklerkur Írana, var hvergi að sjá í jarðarför föður síns, Ali Khamenei fyrrverandi æðstaklerks. Bræður hans mættu samt. Hann hefur verið í felum frá því að hann tók við sem æðstiklerkur eftir að Bandaríkjaher felldi föður hans í loftárás í lok febrúar.

Erlent
Fréttamynd

Trump sparkar í banda­menn í að­draganda Nató-fundar í Ankara

Donald Trump Bandaríkjaforseti tók sér tíma í gær til að gagnrýna bandamenn á samfélagsmiðlinum Truth Social, þar sem hann sagði meðal annars að Bandaríkin hefðu veitt mun meiri fjármunum til Atlantshafsbandalagsins en nokkuð annað ríki án þess að fá nokkuð fyrir.

Erlent
Fréttamynd

Sammælast um að bera klæði á vopnin

Bandaríkjamenn og Íranir eru sagðir hafa ákveðið að leggja niður vopn eftir átök síðustu daga og ætti því skipaumferð um Hormússund að geta hafist að nýju.

Erlent
Fréttamynd

Íran gerir á­rásir á Barein og Kúveit í kjöl­far á­rása Banda­ríkjanna

Enn eykst spenna í Mið-Austurlöndum en Íslamska byltingarvarðliðið í Íran (IRGC) hefur staðfest dróna- og loftskeytaárásir á Barein og Kúveit. Árásirnar hafi beinst að flugstöð Bandaríkjanna í Kúveit og flota Bandaríkjanna í Barein en hersveitir Bandaríkjahers héldu árásum sínum áfram og skutu á írönsk skotmörk í gær, laugardaginn 27. júní.

Erlent
Fréttamynd

Hnakk­rifust á bak við luktar dyr

Donald Trump Bandaríkjaforseti átti í dag spennuþrunginn fund með þingflokki Repúblikanaflokksins í öldungadeild eftir að hann aflýsti skyndilega undirritunarathöfn fyrir húsnæðisfrumvarp sem bæði Demókratar og Repúblikanar stóðu að. Rifrildin snerust aftur á móti að mestu um stríðsrekstur Bandaríkjahers í Íran.

Innlent