Flokksþing Framsóknar 2026

Fréttamynd

Kominn undan feldi og svarið er nei

Valdimar Víðisson bæjarstjóri í Hafnarfirði ætlar ekki að gefa kost á sér til varaformennsku í Framsóknarflokknum. Hann segist hafa tekið áskoranir um slíkt alvarlega en á þessum tímapunkti þurfi fókus hans að vera á starfi flokksins í Hafnarfirði.

Innlent
Fréttamynd

For­mann eða leið­toga?

Þegar Framsóknarflokkurinn gengur til formannskjörs um helgina eru tveir kostir í boði: tvær konur bjóða sig fram til embættisins og hvor um sig táknar ákveðna sýn á leiðtogahlutverkið.

Skoðun
Fréttamynd

Leið­toginn Lilja

Nú stendur Framsókn á tímamótum og kjósum við Framsóknarfólk okkur nýjan formann og forystu um helgina. Á slíkum tímamótum er gott að hugleiða hvað leiðtogi þarf að hafa til brunns að bera, hvaða færni sé ákjósanlegust þegar kemur að því verkefni að leiða samvinnuflokkinn Framsókn.

Skoðun
Fréttamynd

Pepparinn og átta­vitinn

Flokksþing Framsóknar verður haldið í Reykjavík um helgina og þar munum við kjósa okkur nýjan formann. Við systur ætlum að mæta og styðja Lilju Dögg Alfreðsdóttur til að leiða Framsókn inn í nýja og spennandi tíma – og það gerum við af mikilli sannfæringu.

Skoðun
Fréttamynd

Hvað þarf Fram­sókn?

Nú um helgina komum við Framsóknarfólk saman til flokksþings í Reykjavík þar sem við veljum okkur nýja forystu og nýjan formann.

Skoðun
Fréttamynd

Ingi­björg fljót að rífa upp boxhanskana

Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar, sem verður nú um helgina. Á sunnudaginn verður leiðtoginn kjörninn en valið stendur á milli þeirra Lilju D. Alfreðsdóttur, sem er varaformaður flokksins, og Ingibjargar Isaksen þingmanns Norðausturkjördæmis en hún er formaður þingflokks Framsóknar.

Innlent
Fréttamynd

Í­hugar að bjóða fram til vara­for­manns

Valdimar Víðisson, bæjarstjóri í Hafnarfirði, íhugar nú að bjóða sig fram til varaformanns Framsóknarflokksins. Stefán Vagn Stefánsson þingmaður flokksins er sá eini sem hefur gefið kost á sér til embættisins en tvær hafa boðið fram til formanns.

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan um for­manns­em­bætti Fram­sóknar

Framsóknarmenn velja sér næsta formann Framsóknarflokksins á 38. flokksþingi Framsóknar um helgina. Tvær eru í framboði til formanns og berjast um að verða arftakar Sigurðar Inga Jóhannssonar núverandi formanns.

Innlent
Fréttamynd

Hvað þýðir það að vera leið­togi?

Ég kaus Framsókn í fyrsta skipti í Alþingiskosningunum árið 2021. Það gerði ég vegna þess að ég tók langt og ítarlegt kosningapróf á heimasíðu RÚV og það sagði mér að af öllum þeim frambjóðendum sem tóku prófið hafi ég verið mest sammála oddvita Framsóknar í Reykjavíkurkjördæmi suður, yfir 95% sammála. 

Skoðun
Fréttamynd

Hart var barist um kjör­bréf en línur á milli fylkinga ekki eins ljósar og áður

Ríflega 860 manns eru á kjörskrá fyrir 38. flokksþing Framsóknarflokksins sem fram fer í Reykjavík um helgina. Þar mun flokkurinn velja sér nýjan formann en ólíklegt þykir að allir sem eiga sæti muni mæta. Hörð barátta hefur verið um að tryggja kjörbréf, en samkvæmt heimildum fréttastofu eru dæmi um að stuðningsmenn formannsframbjóðenda hafi tryggt kjörbréf í gegnum flokksfélög til að koma í veg fyrir að stuðningsmenn hins frambjóðandans geti stutt sína konu. Þá eru allmargir flokksþingsfulltrúar sagðir óákveðnir og ekki eins skýrar línur á milli fylkinga líkt og stundum hefur verið áður.

Innlent
Fréttamynd

Nú þarf Fram­sókn sterka for­ystu

Kæra Framsóknarfólk. Flokkurinn okkar stendur nú á tímamótum. Næstkomandi helgi komum við saman á flokksþingi og veljum nýja forystu fyrir Framsóknarflokkinn.

Skoðun
Fréttamynd

Fram­sókn til fram­tíðar – Með Lilju í for­ystu

Á flokksþinginu næstu helgi stöndum við Framsóknarfólk frammi fyrir mikilvægri ákvörðun. Við veljum okkur ekki aðeins nýjan formann, heldur ákveðum við hvert við viljum að Framsókn stefni til framtíðar og hvaða gildi við viljum hafa að leiðarljósi.

Skoðun
Fréttamynd

Úr hverju er þessi kona gerð?

Þetta er setning sem mér dettur í hug þegar ég hugsa um Lilju Dögg Alfreðsdóttur. Henni fylgir mikill kraftur, hún getur haldið fjölmörgum boltum samtímis á lofti, hún er með skýra framtíðarsýn, hefur brennandi áhuga á einstökum verkefnum, er klók og útsjónarsöm þegar koma þarf hlutum í framkvæmd, er með stórt og gott tengslanet og, síðast en ekki síst, þá elskar hún Ísland og Framsóknarflokkinn – alveg eins og ég.

Skoðun
Fréttamynd

Konur í Fram­sókn sjá að sér

Stjórn landssambandsins Konur í Framsókn segir að viðburður með Lilju Alfreðsdóttur hafi verið skipulagður áður en hún tilkynnti framboð sitt til formanns flokksins. Þá hafi Halla Hrund Logadóttir þingmaður upphaflega átt að vera frummælandi fundarins.

Innlent
Fréttamynd

Kæra freyði­vínsviðburð með Lilju Al­freðs

Framsóknarfélag Akureyrar og nágrennis kærði í dag viðburð sem kvennahreyfing Framsóknar hefur boðað með Lilju Alfreðsdóttur formannsframbjóðanda til siðanefndar flokksins. Fundurinn fer fram nokkrum dögum fyrir flokksþing þar sem næsti formaður verður valinn.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er svo­lítið ó­venju­legt, ég er ekki á þingi“

Lilja Alfreðsdóttir, sem býður sig fram til formanns Framsóknarflokksins, telur að það gæti verið styrkur fyrir flokkinn að hafa formanninn utan þings. Hún segist vera fullveldissinni, er á móti aðild að Evrópusambandinu og vill herða flóttamannalöggjöfina á Íslandi. Þá vill hún einnig ná betri tökum á efnahagsmálum. Fyrst og fremst langar hana að byggja flokkinn upp.

Innlent
Fréttamynd

Lilja sækist eftir því að leiða Fram­sókn

Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varaformaður Framsóknarflokksins og fyrrverandi menningar- og viðskiptaráðherra, ætlar að gefa kost á sér í formannssæti flokksins. Þetta tilkynnti hún á félagsfundi Framsóknarfélags Reykjavíkur sem fram fór á Hilton Reykjavík Nordica í kvöld.

Innlent
Fréttamynd

Willum fer ekki fram og styður Lilju

Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra og núverandi forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands (ÍSÍ), ætlar ekki að gefa kost á sér í formannssæti Framsóknarflokksins. Þess í stað styður hann Lilju Dögg Alfreðsdóttur varaformann.

Innlent
Fréttamynd

Bar­áttan um Fram­sókn muni snúast um sögu­lega stöðu

Fyrsti frambjóðandinn til að tilkynna framboð til formanns Framsóknar steig fram í dag. Tveir til viðbótar liggja undir feldi en flokkurinn velur sér nýjan formann á flokksþingi í febrúar. Stjórnmálafræðingur segir um tímamótaákvörðun að ræða enda hafi flokkurinn aldrei verið í erfiðari stöðu.

Innlent
Fréttamynd

Ingi­björg býður sig fram í for­manninn

Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins, gefur kost á sér til formanns Framsóknarflokksins á komandi flokksþingi Framsóknar í febrúar. Ingibjörg greinir frá framboði sínu á samfélagsmiðlum nú í morgun. Hún segir stöðu flokksins kalla á breytingar og að sjálf sé hún tilbúin til að bretta upp ermar.

Innlent
Fréttamynd

Enn skorað á Willum

Fulltrúaráð Framsóknarfélaganna í Kópavogi hefur samþykkt ályktun þar sem skorað er á Willum Þór Þórsson, forseta ÍSÍ og fyrrverandi ráðherra og þingmann flokksins, að bjóða sig fram til formennsku í Framsókn á næsta flokksþingi sem haldið verður í febrúar.

Innlent
Fréttamynd

Margir skorað á Ingi­björgu í for­manninn

Ingibjörg Isaksen þingflokksformaður Framsóknarflokksins segir ýmsa hafa komið að máli við sig og hvatt hana til þess að bjóða sig fram til formanns flokksins. Hún segist þakklát fyrir traustið og hvatninguna, enn sé langt í flokksþing og of snemmt að segja til um formannsframboð.

Innlent
Fréttamynd

Skora á Lilju eftir hörfun Einars

Stjórn Framsóknarfélags Reykjavíkur skorar á Lilju Dögg Alfreðsdóttur varaformann flokksins að bjóða sig fram til formanns Framsóknar á komandi flokksþingi og leiða flokkinn inn í nýja tíma. Einar Þorsteinsson oddviti Framsóknar í Reykjavík tilkynnti í gær að hann hyggðist ekki bjóða sig fram.

Innlent
  • «
  • 1
  • 2