Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur

Fréttamynd

Willum í stjórn Litla spítalans

Willum Þór Þórsson, fyrrverandi heilbrigðisráðherra, stefnir samkvæmt heimildum Vísis í stjórn Litla spítalans, einkarekinnar heilbrigðisstofnunar sem til stendur að starfrækja við Háaleitisbraut. Núverandi forstjóri Sjúkratrygginga Íslands var skipaður í ráðherratíð Willums.

Viðskipti innlent
Fréttamynd

Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk

Fólk sem hefur verið dæmt fyrir manndráp eða alvarlegar líkamsárásir gæti fengið að annast fatlað fólk samkvæmt frumvarpsdrögum Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Einhverfusamtökin gagnrýna áformin og telja nauðsynlegt að meta áhrif þeirra á öryggi þjónustunotenda.

Innlent
Fréttamynd

Sakar Ölmu um að hafna Litla spítalanum fyrir fram

Það skýtur skökku við að heilbrigðisráðherra afskrifi Litla spítalann í fjölmiðlum á meðan erindi aðstandenda hans er enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands, að mati Rósu Guðbjartsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins. Hún vonast til að einkarekstur þjónustunnar hafi ekki blindað sýn ráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Skandall að menn afpláni ekki í fangelsi vegna pláss­leysis

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir mikilvægt að fangelsið að Stóra-Hrauni fái að rísa því að á Íslandi hafi aldrei verið hannað eða byggt fangelsi sem er öryggisfangelsi. Hún segir Íslendinga eftirbáta annarra Norðurlanda.

Innlent
Fréttamynd

Dómurinn feli í sér til­mæli til þingsins

Nítján lögmenn sem starfa á sviði skaðabótaréttar segja að nýlegur dómur Hæstaréttar feli í sér tilmæli til Alþingis um að uppfæra þurfi skaðabótalög og færa þau til nútímans. Boltinn sé hjá dómsmálaráðherra.

Innlent
Fréttamynd

Komi ekki til greina að hætta við talna­kvarðann

Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki komi til greina að endurskoða áform um breyttan einkunnakvarða.Áform hennar um nýtt einkunnakerfi í grunnskólum þar sem tölustafir verða teknir upp að nýju hafa hlotið töluverða gagnrýni. Málið var rætt á þingi í gær og var Inga Sæland menntamálaráðherra þar gagnrýnd fyrir sín svör.

Innlent
Fréttamynd

20,4 milljarðar til Úkraínu og aukinn stuðningur við Palestínu

Stuðningur Íslands við Úkraínu nam 20,4 milljörðum króna frá upphafi allsherjarinnrásar Rússlands í febrúar 2022 til september síðastliðins. Framlög og samningar um stuðning við Palestínu nema samtals um 1,76 milljörðum samkvæmt samantekt á fjárhæðum í skýrslu forsætisráðherra um framkvæmd ályktana Alþingis frá árinu 2025. Sú fjárhæð nær yfir nokkur ár og felur einnig í sér greiðslur á næstu árum.

Innlent
Fréttamynd

Saka Ingu um skæting og hel­beran dóna­skap

Þingmenn stjórnarandstöðunnar sökuðu ráðherra, og einkum þá Ingu Sæland mennta- og barnamálaráðherra, um skæting og dónaskap á þingfundi í dag. Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, sagðist ekkert skilja um hvað „blúndurnar í stjórnarandstöðunni“ væru að tala um.

Innlent
Fréttamynd

Inga opnar fyrir niður­stöður í PISA

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur tekið ákvörðun um að þau sveitarfélög og grunnskólar sem eftir því leita fái afhentar niðurstöður úr PISA 2025.

Innlent
Fréttamynd

Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra kveðst hafa áhyggjur af því að áhrifamenn í íslensku samfélagi séu orðnir „Rússagælur“ og bendir í því samhengi á Miðflokksmenn og Hannes Hólmstein Gissurarson stjórnmálafræðiprófessor og Ólaf Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseta.

Innlent
Fréttamynd

Fleiri for­eldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaða­bótum

Félags- og húsnæðismálaráðuneytið og Vinnumálastofnun vekja athygli á því að foreldrar sem fóru í fæðingarorlof 2022 til 2025 og störfuðu í öðru EES-ríki geti átt rétt á skaðabótum. Tilefni tilkynningar er dómur Hæstaréttar frá því í september þar sem ríkinu var gert að greiða íslenskum lækni skaðabætur vegna rangrar innleiðingar á reglum EES-samningsins í tengslum við greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði.

Innlent
Fréttamynd

„Ég elska Obbu“

Formaður Viðreisnar segist ætla að taka ummæli Jóns Gnarr um forystuleysi innan flokksins til umhugsunar. Það sé þó ósatt að það andi köldu milli hennar og dómsmálaráðherra. Það sé högg fyrir þingflokkinn að missa Jón. 

Innlent
Fréttamynd

Öflugasta endurhæfingarstofnun Ís­lands verður að fá slagkraft á ný

Halldór heiti ég frá Heiðarbýli í Mosfellssveit. Heiðarbýli er við Varmá rétt ofan við Reykjalund. Sá sem hér skrifar og rétt orðinn fimmtíu kall að aldri er alinn upp við að horfa á fólk í endurhæfingu á Reykjalundi (RL) að rísa upp frá því að geta ekki beitt sér eðlilega, starfað eða sinnt öðrum lífsins hlutverkum (sem geta verið fjölmörg og hverju öðru betra ).

Skoðun
Fréttamynd

Biður Jón af­sökunar

Grímur Grímsson, þingmaður VIðreisnar, biður kollega sinn Jón Gnarr afsökunar á „klaufalegum“ svörum sínum í útvarpsþætti í morgun þar sem hann sagði þingnefnd sem Jón færi fyrir ekki hafa fundað mikið að undanförnu. Nefndin hætti störfum í júní.

Innlent
Fréttamynd

Komi til greina að nýta gervi­greind í námsgagnagerð

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra segir að ekki sé búið að ákveða hvernig fjármagni, sem úthluta á í ný námsgögn, verði varið. Hún opnar á nýtingu gervigreindar við gerð námsgagnanna og segir að framlag stjórnvalda verði hátt í sjö hundruð milljónir þegar uppi verður staðið. 

Innlent
Fréttamynd

Kannast ekki við lýsingar Jóns

Dómsmálaráðherra segist ekki kannast við það að samband hennar og utanríkisráðherra sé stirt, líkt og Jón Gnarr, fyrrverandi þingmaður Viðreisnar, hélt fram í gær. Það sé áfall fyrir flokkinn og ríkisstjórnina að hann kjósi að ganga úr þingflokknum. 

Innlent
Fréttamynd

Kynna vaxtar­plan sem gæti skilað 300 milljarða viðsnúningi í af­komu ríkis­sjóðs

Með markvissum aðgerðum til að efla fimm helstu útflutningsgreinar landsins, sölu ríkiseigna og auknu aðhaldi í opinberum útgjöldum væri hægt að auka hagvöxt um nær helming frá núverandi spám og bæta afkomu ríkissjóðs um hátt í 300 milljarða króna á næstu fimm árum, samkvæmt tillögum sem forstjóri Stoða hefur kynnt hluthöfum. Telur hann að með slíkum aðgerðum mætti jafnframt lækka skuldir ríkissjóðs um helming og draga verulega úr vaxtakostnaði hins opinbera.

Innherji
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin sker niður þjónustu við börn

Árið 2021 samþykkti Alþingi farsældarlögin undir forystu Ásmundar Einars Daðasonar fv. mennta- og barnamálaráðherra með stuðningi úr öllum flokkum. Loforðið var skýrt. Barn sem þarf stuðning á að halda, ber að fá hann snemma, á réttum stað og án þess að fjölskyldan þurfi að berjast við kerfið. Ríkisstjórnin ætlar nú að svíkja það loforð.

Skoðun
Fréttamynd

Þjóðar­öryggi, fæðuöryggi og al­manna­hags­munir

Mikið hefur verið skrifað og rætt um fæðuöryggi, skýrslur skrifaðar og ráðstefnur haldnar. Minna hefur farið fyrir heildstæðum áætlunum eða aðgerðum stjórnvalda sem raunverulega tryggja fæðuöryggi á Íslandi. Þessi staða er umhugsunarverð, ekki síst vegna þess að almenn samstaða virðist vera á meðal þjóðarinnar og einnig á Alþingi um að fæðuöryggi sé mikilvægur hluti þjóðaröryggis og að þjóðaröryggi verði ekki tryggt án fæðuöryggis.

Skoðun
Fréttamynd

Að­gengið gott en gefur ekki upp synjanirnar

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra segir íslenska fjölmiðla hafa afar gott aðgengi að sér. Hvorki kemur þó fram hversu mörgum viðtalsbeiðnum hún hefur hafnað á kjörtímabilinu né hvaða miðlar hafa fengið synjun.

Innlent
Fréttamynd

Jafnlaunavottunin af­numin en starfs­fólkinu fækkar ekki

Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gagnrýnir að starfsfólki Jafnréttisstofu hafi ekki fækkað eftir afnám jafnlaunavottunar. Hún segir Viðreisn hafa talað hátt um hagræðingu hjá ríkinu en látið tækifæri til hennar fram hjá sér fara.

Innlent