Fíkn

Fréttamynd

Á­tök innan SÁÁ eins og „klassísk valda­bar­átta“

Fyrrverandi framkvæmdastjóri SÁÁ líkir átökum innan samtakanna við „klassíska valdabaráttu“ og sakar fráfarandi forstjóra og framkvæmdastjóra lækninga hafa ætlað að sölsa undir sig völd. Hann óttast samt að brotthvarf reynslumikils framkvæmdastjóra muni draga úr gæðum heilbrigðisþjónustu SÁÁ og vonast til að fundin verði leið fyrir hana aftur til starfa, þó með skýrari verkaskiptingu. „En tvo þarf til.“

Innlent
Fréttamynd

Á­stæðan fyrir á­standinu hjá SÁÁ

Forstjóri SÁÁ sagði upp störfum þann 6. ágúst. Hún sætti sig ekki við áherslur stjórnar SÁÁ um forgangsröðun og nýjar áherslur í þjónustu samtakanna. Né heldur sætti hún sig við afskipti stjórnar SÁÁ af innleiðingu samnings við Sjúkratryggingar Íslands.

Skoðun
Fréttamynd

Sagan frá hinni hliðinni

Um ást, fíkn, mörk og augnablikið þegar maður áttar sig á því að maður getur ekki bjargað annarri manneskju – en getur enn bjargað sjálfum sér. Lengi vel velti ég því fyrir mér hvort ég hefði rétt á að tala opinberlega um þetta. Í dag veit ég að mig langar að tala.

Skoðun
Fréttamynd

„Ég er hrein­lega mjög hrædd“

„Það sem er mér kannski efst í huga er hversu margir þurfa að víkja fyrir eina manneskju,“ segir fráfarandi fagstjóri á Vík um formann SÁÁ. „Hún er tilbúin að sitja sem fastast þrátt fyrir að spilaborgin sé að hrynja í kringum hana og hún ætlar samt ekki að fara neitt. Það er í rauninni magnað að sjá hvernig hún telur sér trú um að hún geti endurvakið traust starfsmanna.“

Innlent
Fréttamynd

Í for­gangi sé að ræða við starfs­fólk SÁÁ og tryggja vinnu­frið

Aðalstjórn SÁÁ segir í forgangi að funda með starfsfólki og tryggja „vinnufrið, öryggi og traust“ innan samtakanna. Aðalstjórn lýsir í ályktun yfir stuðningi við framkvæmdastjórn SÁÁ í þeirri vinnu framkvæmdastjórnar sem miðar að því að tryggja að heilbrigðisþjónusta samtakanna haldi áfram. Stjórn ætlar ekki að ræða við fjölmiðla um málið samkvæmt tilkynningu.

Innlent
Fréttamynd

Ein pilla dró Panettiere til dauða

Hayden Panettiere leikkona er sögð hafa tekið eina töflu af oxycodone-pillu sem búið var að menga með fentanýl áður en hún lést. Lögregla vinnur nú að því að hafa uppi á manninum sem grunaður er um að hafa selt henni pilluna.  

Lífið
Fréttamynd

Enn þykknar upp hjá SÁÁ

Stór hluti starfsfólks á meðferðarsviði SÁÁ hefur lýst yfir vantrausti á formann samtakanna og framkvæmdastjórn þeirra. Alvarleg staða sé komin upp og kallað eftir því að tryggt verði með skýrum hætti að stjórn félagsins virði faglegt sjálfstæði heilbrigðisstarfs SÁÁ.

Innlent
Fréttamynd

„Við tökum þessa stöðu mjög al­var­lega“

Landlæknir lítur átök innan SÁÁ mjög alvarlegum augum en starfsemi samtakanna er nú til skoðunar hjá embættinu. Mikilvægast sé að tryggja öryggi og gæði þjónustu að mati landlæknis sem telur uppsagnir áhyggjuefni. 

Innlent
Fréttamynd

Sumir fram­halds­skólar líti fram hjá ung­linga­drykkju

Bjarni Gautur Eydal Tómasson, tómstunda- og félagsmálafræðingur, segir suma framhaldsskóla líta fram hjá unglingadrykkju. Hún hafi aukist síðustu ár. Það sé áríðandi að byggja upp jákvætt félagslíf fyrir ungmenni sem ekki felur í sér drykkju í stað þess að banna hana bara.

Innlent
Fréttamynd

Kýld niður fjallið og hafi svo horft á for­manninn ljúga í fjöl­miðlum

Fráfarandi fagstjóri á Vík, meðferðarstöð SÁÁ, fordæmir vinnubrögð stjórnar SÁÁ og segir fullreynt að heilbrigðisþjónusta sem þessi sé á forræði félagasamtaka. Hún kallar eftir því að stjórnvöld grípi inn í og hefur miklar áhyggjur af framtíð meðferðarstarfsins. Þá segir hún að formaður SÁÁ hafi logið því opinberlega þegar hún sagðist ekki hafa frétt af uppsögn annars stjórnanda.

Innlent
Fréttamynd

Blekking litla sam­fé­lagsins

Sem stjórnarformaður Hugarafls og lögmaður sé ég hvernig mannlegi harmleikurinn sem fylgir geð- og fíknivanda rekst á lagalega og kerfislæga innviði sem eiga að grípa fólk, en bregðast því ítrekað. Við búum í litlu samfélagi sem á að mörgu leyti erfitt með að horfast í augu við raunveruleikann. Það er kominn tími til að draga frá tjöldin, rjúfa meðvirknina og horfast í augu við afleiðingarnar sem blasa við okkur.

Skoðun
Fréttamynd

Lofar að minnast Panettiere á­vallt af virðingu

Vladimir Klitschko, barnsfaðir leikkonunnar Hayden Panettiere, segir fjölskylduna í mikilli sorg. Panettiere hafi yfirgefið þessa jörð allt of snemma og að þó svo að þau hafi ekki verið saman hafi hún verið mikilvægur hluti lífs hans og móðir dóttur þeirra, Kayu. Hann biður um frið til að glíma við sorgina og andlát hennar. 

Lífið
Fréttamynd

Efna til söfnunar í minningu Hennings

Blásið hefur verið til söfnunar fyrir ungt fólk með fíknivanda á Norðurlandi. Foreldrar ungs manns sem sjálfur glímdi við fíknivanda segjast hafa fengið að finna sárt úrræðaleysið á eigin skinni.

Lífið
Fréttamynd

Emmsjé edrú í sjö ár

Sjö ár eru liðin síðan Gauti Þeyr Másson, betur þekktur sem Emmsjé Gauti, hætti að drekka áfengi og hefur hann verið edrú síðan. Það sé ekki ómögulegt að hætta og er hann þakklátur fyrir þá sem hafa hjálpað honum á leiðinni.

Lífið
Fréttamynd

Dregur sig í hlé: „Þessi aumingja kona er að deyja beint fyrir framan okkur“

Bandaríska söng- og leikkonan Ariana Grande ætlar að draga sig úr sviðsljósinu eftir að yfirstandandi tónleikaferðalagi hennar lýkur þann 1. september. Hún hefur sagt aðdáendum sínum frá því að hléið hafi verið skipulagt lengi og sé með engu móti ákveðið í flýti. Grande hefur sætt mikilli gagnrýni undanfarin misseri en meðal annars hefur fólk sett út á það hversu grönn hún sé.

Lífið
Fréttamynd

Hættum að pissa í skóinn í frostinu til að hlýja okkur – klæðum okkur í ullar­sokka

Í umræðunni um afbrot og fíkn er oft rætt um afleiðingar en síður um orsakir. Þegar síbrotamaður er handtekinn eða stór fíkniefnasending gerð upptæk er reynt að telja okkur í trú um að samfélagið hafi unnið sigur. Slíkar aðgerðir skipta vissulega máli og lögregla þarf að hafa burði til að bregðast við skipulagðri brotastarfsemi. En ef markmiðið er að draga varanlega úr afbrotum og fíkn gera refsiaðgerðir lítið sem ekkert gagn.

Skoðun
Fréttamynd

Stærsti veðmálaviðburður sögunnar nær til ungs fólks

Formaður SÁÁ hefur áhyggjur af því að enn fleiri muni ánetjast veðmálum vegna heimsmeistaramótsins í fótbolta og þróa með sér spilafíkn. Veðmálastarfsemi hafi verið venjubundin af stanslausri auglýsingaherferð og umræðu þrátt fyrir skaðlegar afleiðingar.

Innlent
Fréttamynd

„Þeir sem taka pening frá veðmálafyrirtækjum ættu að líta í eigin barm“

Sálfræðingur og tónlistarmaður segir að áhrifavaldar sem auglýsi veðmálasíður verði að líta í eigin barm. Ungir menn eigi auðvelt með að sogast inn í spilafíkn, sem geti síðan leitt til sjálfsvígshugsana. Það orki einnig tvímælis að tónlistarmenn sem syngi um það hve erfitt er að alast upp í kringum fíkn auglýsi sjálfir veðmálasíður.

Innlent
Fréttamynd

„Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“

Inga Sæland, barna- og menntamálaráðherra, blæs á sögusagnir þess efnis að hún hafi farið í áfengismeðferð í byrjun sumars. Hún viðurkennir í samtali við Vísi að hún hafi sjálf heyrt kjaftasögur þess efnis, en að hún hafi aldrei farið á Vog enda skáli hún í sínum kokteil hvenær sem henni detti það í hug.

Innlent
Fréttamynd

„Alltaf litið á þetta sem eitt­hvað sem bráðamóttakan gerir“

Mikael Smári Mikaelsson, yfirlæknir á bráðamóttöku Landspítalans, segir að ef það eigi að vera markmið að fækka komum heimilislausra á bráðamóttöku spítalans þurfi að vera til aðrar leiðir fyrir hópinn til að sækja þjónustu sem sé þeim greið. Hann segir alla eiga að geta leitað á bráðamóttökuna og starfsfólk vilji þjónusta fólk vel og hratt.

Innlent
Fréttamynd

Heim­sótti bráðamóttökuna 292 sinnum á fimm árum

Á fimm ára tímabili kom 621 heimilislaus einstaklingur, tæplega 60 prósent hópsins, á bráðamóttökur Landspítalans, samtals 9.491 sinnum. Flestar komur voru í Fossvogi. Meðalfjöldi koma á hvern einstakling var fimmtán en sá sem kom oftast gerði það 292 sinnum á fimm ára tímabili.

Innlent
Fréttamynd

Reki fyrir­tæki og séu ná­lægt því að missa allt frá sér

„Oft er þetta fólk sem er í vinnu og hefur kannski fyrirtæki og er í miklum umsvifum og er bara um það bil að missa allt frá sér vegna neyslunnar. Hún er dýr og krefst þess líka að fá meira og aftur og þetta verður mikil áþján fyrir einstaklinginn og fjölskyldu hans að sjálfsögðu.“ Þetta segir Valgerður Rúnarsdóttir, framkvæmdastjóri lækninga hjá SÁÁ, um þann fjölbreytta hóp sem sæki sér aðstoðar vegna kókaínfíknar.

Innlent
Fréttamynd

For­eldrar standi eftir „einir, ör­magna og án stuðnings“

Ingibjörg Einarsdóttir, móðir eins drengsins sem fór til Suður-Afríku í meðferð, segist ekki hafa þurft að lesa nýja skýrslu Ríkisendurskoðunar um innleiðingu farsældarlaganna til að vita að barnaverndarkerfið sé að bregðast þeim börnum sem þurfa á mestri aðstoð að halda. Hún segir tíma til að framkvæma frekar en að „skrifa falleg lög“.

Innlent
Fréttamynd

Þurfi að finna Kaffi­stofunni nýjan og góðan stað

Guðný María Jóhannsdóttir, formaður umhverfis- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir þurfa að finna Kaffistofu Samhjálpar nýjan stað þar sem meiri sátt er við nágrenni og samfélag. Þjónustan sé samfélagslega mikilvæg en við flutning hennar hefði mátt vinna málið betur.

Innlent