Sjálfstæðisflokkurinn

Fréttamynd

Saka stjórnina um „ósk­hyggju, af­neitun og í­myndaðan veru­leika“

Forystumenn stjórnarandstöðunnar þjörmuðu að Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra vegna stöðu efnahagsmála í landinu í óundirbúnum fyrirspurnartíma á Alþingi í dag. Formenn Sjálfstæðisflokksins, Miðflokksins og Framsóknarflokksins sögðu stjórnvöld kenna öllu öðru en aðgerðum ríkisstjórnarinnar um aukna verðbólgu. Kristrún segir ríkisstjórnina ætla að „halda sig við planið“ og að ríkisstjórnin ætli ekki að „hlaupa upp til handa og fóta“ vegna einstakra mælinga.

Innlent
Fréttamynd

Fær á­fram tæpa hálfa milljón en staðgengillinn ekkert

Helgi Áss Grétarsson fær áfram tæpa hálfa milljón króna í laun á mánuði sem fyrsti varaborgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins þrátt fyrir að hann hafi sagt sig úr flokknum og gegni engum trúnaðarstörfum lengur. Oddviti flokksins telur óeðlilegt að á meðan fái staðgengill Helga ekkert greitt.

Innlent
Fréttamynd

Drengurinn sem dó

Hinn 24. maí árið 1917 fæddist íslenskum foreldrum drengur. Á ljósmyndum blasir fegurð hans við; ómótstæðilegar bollukinnar; stór augu sem stara af varfærni eins og inn í óskrifaða framtíð; litlir fingur sem læsast um bangsa. Hefði barnið fæðst í dag deildu foreldrarnir eflaust myndunum á Facebook með blíðuhótum á borð við „gullmoli“ og uppskæru læk og heillaóskir.

Lífið
Fréttamynd

Sam­staða um varnar­mál

Í vikunni samþykkti Alþingi einróma nýja stefnu Íslands í varnar- og öryggismálum. Það er fagnaðarefni, þótt tilefnið, hið ótrygga ástand í heimsmálunum, sé það ekki. Ljóst er að okkar nærumhverfi hefur tekið miklum breytingum á undanförnum árum, ekki síst í kjölfar allsherjarinnrásar Rússlands í Úkraínu. Þar er á ferðinni grimmúðlegt og gamaldags landvinningastríð þar sem stórveldi leitast við að innlima landsvæði og undiroka nágranna sína með vopnavaldi.

Skoðun
Fréttamynd

Tveggja turna tal í Reykja­vík

Samfylkingin og Sjálfstæðisflokkurinn myndu báðir fá átta fulltrúa inn í borgarstjórn Reykjavíkur samkvæmt nýrri könnun Gallúp. Enn er borgarstjórnarmeirihlutinn fallinn og hafa bæði Framsókn og Flokkur fólksins þurkast út.

Innlent
Fréttamynd

Til­laga um „hlað­borð lausna“ felld

Tillaga um samstarf við atvinnulífið í málefnum leikskóla og daggæslu var felld í borgarstjórn í dag. Borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins segir að bjóða þurfi upp á „hlaðborð lausna“ til að leysa leikskólavandann.

Innlent
Fréttamynd

„Af öllum vondu málum ríkis­stjórnarinnar finnst mér þetta það versta“

Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, geldur varhug við frumvarpi félagsmálaráðherra um tengingu almannatrygginga við launavísitölu, sem nú er rætt í annarri umræðu á Alþingi. Hún telur að það muni leiða til sjálfvirkrar aukningar útgjalda ríkissjóðs og minni hvata til atvinnuþátttöku. „Ég hef mjög miklar áhyggjur af þessu frumvarpi og af öllum vondu málum ríkisstjórnarinnar finnst mér þetta það versta,“ segir hún.

Innlent
Fréttamynd

Litlar breytingar á fylgi flokkanna

Litlar breytingar eru á fylgi stjórnmálaflokkanna milli mánaða samkvæmt nýrri könnun Gallup. Breytingarnar eru á bilinu 0,1 til 0,8 prósentustig og eru ekki tölfræðilega marktækar. Samfylkingin mælist enn stærsti flokkurinn og Miðflokkurinn næststærstur. Meirihluti styður störf ríkisstjórnarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Ey­gló land­póstur greiðir 45 þúsund krónum meira: „Er ekki venju­legt fólk á lands­byggðinni?“

Fjármála- og efnahagsráðherra segir að honum finnist ekki sanngjarnt að kalla aukin útgjöld konu á landsbyggðinni upp á 45 þúsund krónur á mánuði, vegna nýs kílómetragjalds, skattahækkun. Þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins vakti athygli á máli konunnar í óundirbúnum fyrirspurnatíma á fundi Alþingis í dag og spurði ráðherra hvort fólk á landsbyggðinni væri ekki venjulegt fólk, sem ríkisstjórnin hefði lofað að auka ekki álögur gagnvart.

Innlent
Fréttamynd

Orðaleppar og annað ó­þolandi

Daginn eftir þrítugsafmælið þitt hittirðu vinkonu þína sem fór yfir strikið að vanda, varð sér til skammar og endaði kvöldið illa. Hún segir síðar að hún hafi bara verið „létt“, þótt allir viti betur.

Skoðun
Fréttamynd

Segir af sér þing­mennsku að á­kveðnu skil­yrði upp­fylltu

Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir það létti að hafa unnið sannfærandi sigur í leiðtogaprófkjöri flokksins í Reykjanesbæ í gær. Hann kveðst afar þakklátur og ætlar að sinna þingstörfum og kosningabaráttu fram að sveitarstjórnarkosningum í maí.

Innlent
Fréttamynd

Fram­boð sem byggir á trú á Akur­eyri

Ég er 32 ára þriggja barna móðir. Börnin mín eru 10 ára, 2 ára og 3 mánaða. Eins og margar fjölskyldur á Akureyri finn ég daglega hvernig ákvarðanir sveitarfélagsins hafa raunveruleg áhrif á lífið okkar, hvort við fáum leikskólapláss, hvernig skólastarfi er háttað, hvernig opinber þjónusta er veitt, hvort hér sé húsnæði sem okkur hentar og að hér séu tækifæri og atvinnuöryggi.

Skoðun
Fréttamynd

Að hafa það sem þarf

Á Íslandi eru 62 sveitarfélög og jafn margar sveitarstjórnir, og sveitarstjórar. Á sviði sveitarstjórna eru ákvarðanir teknar sem hafa bein áhrif á lífsgæði og afkomu einstaklinga.

Skoðun
Fréttamynd

Ríkis­stjórnin ræður ekki við verk­efnið

Í marga mánuði höfum við heyrt að planið sé að virka. Við höfum heyrt að verðbólgan sé loksins á niðurleið og ríkisstjórnin hafi náð tökum á ríkisfjármálunum. Staðreyndirnar segja aðra sögu. Verðbólgan mælist 5,2 prósent í janúar. Hún eykst milli mánaða og fer langt fram úr svartsýnustu spám greiningaraðila.

Skoðun
Fréttamynd

„Við eigum ekki að vera hrædd við að taka um­ræðuna“

Ummæli Jens Garðars Helgasonar, varaformanns Sjálfstæðisflokksins, þess efnis hvort ekki sé tímabært að huga að því að Palestínumenn snúi aftur í friðinn heima og taki þátt í uppbyggingarstarfinu, féllu í grýttan jarðveg – heldur betur. Jens Garðar var ekki mjög skekinn þegar ofsafengin viðbrögðin voru borin undir hann.

Innlent
Fréttamynd

Sakar mót­fram­bjóðanda um trúnaðar­brest og kallar eftir próf­kjöri

Þórhallur Jónsson, varabæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins á Akureyri, gefur kost á sér til að leiða lista Sjálfstæðisflokksins á Akureyri í sveitarstjórnarkosningum í vor. Hann kallar eftir því að farið verði í prófkjör og segir trúnaðarbrest að fyrrverandi formaður fulltrúaráðs, sem tók ákvörðun um röðun á lista, bjóði sig nú fram til oddvita.

Innlent
Fréttamynd

Getum við munað

Í mínu lífi hefur pólitík alltaf verið mikið rædd hvort sem það er við matarborðið, í afmælum eða á vinnustaðnum og eftir því sem maður verður eldri og meðvitaðri fer maður að móta betur sínar eigin skoðanir og taka virkari þátt í umræðunni. Það getur verið gott að setja hlutina í samhengi en frá árinu 2010 þegar ég var þrettán ára gamall hafa sömu stjórnmálaöfl verið við stjórnvölinn nær sleitulaust í borginni.

Skoðun
Fréttamynd

Hvernig byggjum við upp há­gæða al­mennings­sam­göngur?

Hágæða almenningssamgöngur byggjast ekki á stærri og stífari kerfum, heldur á snjallvæðingu, sveigjanleika og aðlögun að ferðavenjum fólks. Í þróun samgangna á að fara frá stórum einingum yfir í minni og liprari lausnir þegar tæknin leyfir. Því minni og sveigjanlegri sem einingarnar eru, því betur er ferðalagið sniðið að þörfum farþegans í stað þess að farþeginn þurfi að laga sig að kerfinu.

Skoðun
Fréttamynd

Próf­kjör D-lista í Mos­fells­bæ 31. janúar

Prófkjör D-listans í Mosfellsbæ verður haldið 31. janúar og er það mikilvægur áfangi í undirbúningi okkar fyrir bæjarstjórnarkosningarnar í vor. Prófkör er ekki aðeins val á einstaklingum heldur lýðræðisleg ákvörðun um hvernig frambjóðendur raðast á D-lista fyrir kosningarnar 16. maí nk.

Skoðun
Fréttamynd

Verka­lýðs­hreyfingin úti á túni með sitt tal?

Brynjar Níelsson lögmaður kom inn sem varaþingmaður á Alþingi í dag, þá fyrir Guðlaug Þór Þórðarson, og lét ekki bjóða sér það tvisvar; hann henti sér umsvifalaust í óundirbúnar fyrirspurnir. Brynjar átti erindi við Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra og þá með vísan til fortíðar hans hjá verkalýðshreyfingunni en Ragnar var formaður VR.

Innlent
Fréttamynd

Enga á­kvörðun tekið um Þór­dísi Kol­brúnu

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir segist ekki hafa tekið ákvörðun um að skipa Þórdísi Kolbrúnu Reykfjörð Gylfadóttur sem sendiherra en sögusagnir þess efnis hafa verið á kreiki undanfarið. Hún segir að missir yrði af Þórdísi Kolbrúnu á þingi ef hún hyrfi til annarra starfa.

Innlent