Skíðasvæði

Fréttamynd

Hafna til­boðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf

Fjallabyggð hefur tekið ákvörðun um að hafna öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal og ætla að reka skíðasvæðið sjálf. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu mótmælir ákvörðuninni en fulltrúar meirihlutans vísa gagnrýni hans frá og biðja hann að vera samkvæmur sjálfum sér.

Innlent
Fréttamynd

Opnum Skála­fell

Það er barátta í gangi við að opna á ný skíðasvæðið í Skálafelli þrátt fyrir samkomulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þá uppbyggingu. Reynslan af Bláfjöllum undanfarin ár hefur sannað að stórbætt aðstaða og nýjar lyftur skila aukinni aðsókn. Það mælir allt með því að byggja einnig upp skíðasvæðið í Skálafelli.

Skoðun
Fréttamynd

Kalla eftir á­kvörðun um milljarðaáform í Skála­felli

Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018.

Innlent
Fréttamynd

Ó­venju­legu tíma­bili að ljúka

Síðustu daga hefur verið lokað í Bláfjöllum og útlit er fyrir að það verði ekki meira opnað á þessu skíðatímabili. Tímabilið var mjög óvenjulegt og opnunardagar voru ekki nema um þrjátíu talsins enda mikil rigning og svo óveður. En um áttatíu þúsund gestir lögðu leið sína upp í Bláfjöll í vetur.

Innlent
Fréttamynd

Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimm­tíu ár

Metþátttaka er á Andrésar Andar leikunum sem fram fara í Hlíðarfjalli um þessar mundir. Leikarnir eru fimmtíu ára en þoka hefur valdið erfiðum skíðaaðstæðum. Þrátt fyrir það skemmtu keppendur sér konunglega í gær og munu að öllum líkindum gera það áfram næstu daga.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta hlýtur að verða metdagur“

Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins telur líklegt að um metdag sé að ræða.

Innlent
Fréttamynd

Dorrit sprengir skvísuskalann á skíðum

Skartgripadrottningin og fyrrverandi forsetafrúin Dorrit Moussaieff nýtur sín á skíðum í sólinni í Aspen í Colorado-fylki þessa dagana. Hún hefur verið dugleg að deila skemmtilegu myndefni á samfélagsmiðlum þar sem hún rokkaði meðal annars stuttbuxur og íslenska lopapeysu.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Skíða­ferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi

Á fyrsta degi í skíðaferð í Sviss með vini sínum datt Bjarni Magnússon og slasaði sig á bæði hendi og fæti. Hann segir fjölda hafa dottið á sama stað. Eiginkonan sótti hann til Davos og nú bíður hann þess að komast í síðustu aðgerðina og endurhæfingu.

Lífið
Fréttamynd

Á­fengis­sala í brekkunni hafi reynst vel

Lögreglan þurfti að grípa inn í við Hlíðarfjall síðustu helgi þegar örtröð myndaðist við bílastæðið. Forstöðumaður skíðasvæðisins segir áfengissölu í brekkunni hafa reynst einkar vel og tekur fram að fjöldi erlendra ferðamanna á svæðinu hafi aukist verulega á síðustu árum.

Innlent
Fréttamynd

Metfjöldi gesta tvo daga í röð

Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins.

Innlent
Fréttamynd

„Hel­vítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling

Stemningunni á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í dag var lýst sem geggjuðum Austurríkisfíling eftir að eins og hálfs tíma töf varð vegna bilunar á stólalyftunni. Veðurfræðingur spáir allhvössu veðri á morgun en rekstrarstjóri Bláfjalla gefur lítið fyrir veðurspár og býst við dúndurstemningu í fjallinu um helgina. 

Innlent
Fréttamynd

„Svo fær maður svona hel­víti á fyrsta opnunar­degi“

Stólalyftan Drottningin í Bláfjöllum bilaði í morgun, á fyrsta opnunardegi vetrarins. Verið er að rekja rafmagnsbilun og ómögulegt er að segja til um hversu lengi bilunin mun vara. Enginn var í lyftunni þegar hún bilaði og því er enginn skíðamaður að frjósa.

Innlent
Fréttamynd

Opið í Blá­fjöllum í dag

„Loksins, loksins,“ segir á heimasíðu Bláfjalla en þar er greint frá því að brekkurnar opni í fyrsta skipti í tæpt ár seinna í dag. Þetta eru eflaust gleðifréttir fyrir börn og foreldra í vetrarfríi en það hófst í mörgum skólum í gær.

Innlent
Fréttamynd

Ekkert ó­venju­legt við kalt og bjart veður

Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, ráðleggur skíðafólki að gera sér ekki upp vonir um snjókomu. Frostið fer að bíta síðar í vikunni en ekki líklegt að það bóli á snjónum.

Veður
Fréttamynd

„Hún er í af­neitun“

Formaður Skíðasambands Íslands segir Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur vera í afneitun um alvarleika eigin meiðsla. Fótbrot hennar sé ekki gróið að fullu og samkvæmt læknisráði sé hún ekki hæf til keppni. Ákvörðunin hefði ekki átt að koma henni á óvart.

Sport
Fréttamynd

Átta látnir á einum degi vegna snjó­flóða

Eftir linnulausa ofankomu í austurrísku Ölpunum síðustu vikuna féll í gær fjöldi snjóflóða og hafa átta manns látið þar lífið. Síðdegis í gær hreif snjóflóð þrjá tékkneska skíðamenn í Murtal-héraði í Steiermark. Þeir fundust síðar látnir.

Erlent
Fréttamynd

Hægt að skíða í Ártúnsbrekku síðar í dag

Opið verður í skíða- og sleðabrekkunum í Ártúnsbrekkunni í dag. Reykjavíkurborg hefur verið í snjóframleiðslu á svæðinu frá því fyrir helgi. Í tilkynningu kemur fram að vel hafi gengið að búa til snjó. Hann sé harðpakkaður og fínt að gera ráð fyrir því þegar brekkan er notuð.

Innlent
Fréttamynd

Snjó­fram­leiðslan „fárán­lega flott“ í Ártúns­brekkunni

Líklegt er að skíðasvæðið í Ártúnsbrekku verði opnað á miðvikudag. Hafin var snjóframleiðsla á svæðinu síðasta föstudag. Ólíklegt er að opni í Bláfjöllum í vikunni en rekstrarstjóri segir unnið hörðum höndum að því að gera brekkurnar tilbúnar. Þriggja vikna rigningartímabil um hátíðarnar hafi verið starfsfólki mikil vonbrigði.

Innlent
Fréttamynd

Snjór í Ártúnsbrekku

Litla brekkan ofan við Ártúnsbæinn lætur kannski ekki mikið yfir sér, en engu að síður er hún vagga skíðaíþróttarinnar í Reykjavík. Lengi vel var skíðaiðkun Íslendinga bundin við snjóþung héruð á Vestfjörðum, Norðurlandi og austur á landi, á meðan skíðabúnaður mátti heita óþekktur suðvestanlands.

Skoðun
Fréttamynd

Lítið snjó­flóð féll á snjótroðara í Hlíðar­fjalli

Lítið snjóflóð féll á snjótroðara sem var við vinnu í Hlíðarfjalli í gær. Starfsmaður slasaði sig ekki og ekkert tjón varð á troðaranum þegar flóðið féll á hliðina á honum. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, segir starfsmann hafa komið sér niður af fjallinu eftir flóðið.

Innlent
Fréttamynd

Bregðast ekki við bíla­stæða­vanda við skíða­svæði í Reykja­vík

Formaður umhverfis- og skipulagsráðs segir ekki til fjármagn til að bregðast við óþægindum sem íbúar í Dalhúsum í Grafarvogi verða fyrir vegna mikillar aðsóknar að skíðasvæðinu í Húsahverfi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að tillaga þeirra um úrbætur á svæðinu hafi verið felld á fundi ráðsins. 

Innlent