Skíðasvæði
1 2 3 4 5 6 … 7 ›
Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Skíðaáhugafólk er eflaust farið að hlakka til vetursins í fjallinu líkt og starfsmenn Bláfjalla. Rekstrarstjóri skíðasvæðanna á höfuðborgarsvæðinu segir stefnt á að opna Bláfjöll fyrir jól en enn hefur ekki fryst nægilega til að hefja snjóframleiðslu. Innlent 25.10.2026 13:41
Hefja snjóframleiðslu á næstu dögum Stefnt er á að hefja snjóframleiðslu í Hlíðarfjalli við Akureyri á föstudaginn. Þar með styttist í að skíðasvæðið verði opnað fyrir almenningi. Innlent 21.10.2026 16:03
Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Fjallabyggð hefur tekið ákvörðun um að hafna öllum umsóknum um rekstur skíðasvæðis í Skarðsdal og ætla að reka skíðasvæðið sjálf. Fulltrúi Sjálfstæðisflokksins í ráðinu mótmælir ákvörðuninni en fulltrúar meirihlutans vísa gagnrýni hans frá og biðja hann að vera samkvæmur sjálfum sér. Innlent 10.9.2026 06:47
Opnum Skálafell Það er barátta í gangi við að opna á ný skíðasvæðið í Skálafelli þrátt fyrir samkomulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þá uppbyggingu. Reynslan af Bláfjöllum undanfarin ár hefur sannað að stórbætt aðstaða og nýjar lyftur skila aukinni aðsókn. Það mælir allt með því að byggja einnig upp skíðasvæðið í Skálafelli. Skoðun 9.9.2026 07:01
Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018. Innlent 3.9.2026 16:21
Óvenjulegu tímabili að ljúka Síðustu daga hefur verið lokað í Bláfjöllum og útlit er fyrir að það verði ekki meira opnað á þessu skíðatímabili. Tímabilið var mjög óvenjulegt og opnunardagar voru ekki nema um þrjátíu talsins enda mikil rigning og svo óveður. En um áttatíu þúsund gestir lögðu leið sína upp í Bláfjöll í vetur. Innlent 27.4.2026 17:59
Slíkur fjöldi ekki sést síðustu fimmtíu ár Metþátttaka er á Andrésar Andar leikunum sem fram fara í Hlíðarfjalli um þessar mundir. Leikarnir eru fimmtíu ára en þoka hefur valdið erfiðum skíðaaðstæðum. Þrátt fyrir það skemmtu keppendur sér konunglega í gær og munu að öllum líkindum gera það áfram næstu daga. Innlent 25.4.2026 11:47
Andrésarleikarnir 50 ára – hálf öld af gleði, samheldni og skíðaarfleifð Það er erfitt að hugsa sér Akureyri án Andrésarleikanna. Í hálfa öld hafa þeir fyllt Hlíðarfjall lífi, bundið saman kynslóðir og orðið ómissandi hluti af vetrarmenningu bæjarins. Saga þeirra á sér skemmtilegt upphaf en hún hófst á kaffistofu í Hafnarstræti 100. Skoðun 22.4.2026 07:02
Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Oddviti Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík segir hugmyndir um bjórsölu í Bláfjöllum til þess fallnar að skapa ánægju og gleði í fjallinu. Sérfræðingur í forvörnum segir um gargandi vitleysu að ræða, fjögur hundruð mál séu brýnni. Innlent 12.4.2026 13:23
„Þetta hlýtur að verða metdagur“ Mikill fjöldi fólks lagði leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag. Brynjar Helgi Ásgeirsson forstöðumaður skíðasvæðisins telur líklegt að um metdag sé að ræða. Innlent 3.4.2026 14:16
Dorrit sprengir skvísuskalann á skíðum Skartgripadrottningin og fyrrverandi forsetafrúin Dorrit Moussaieff nýtur sín á skíðum í sólinni í Aspen í Colorado-fylki þessa dagana. Hún hefur verið dugleg að deila skemmtilegu myndefni á samfélagsmiðlum þar sem hún rokkaði meðal annars stuttbuxur og íslenska lopapeysu. Tíska og hönnun 23.3.2026 16:01
Skíðaferðin til Sviss endaði á spítala á fyrsta degi Á fyrsta degi í skíðaferð í Sviss með vini sínum datt Bjarni Magnússon og slasaði sig á bæði hendi og fæti. Hann segir fjölda hafa dottið á sama stað. Eiginkonan sótti hann til Davos og nú bíður hann þess að komast í síðustu aðgerðina og endurhæfingu. Lífið 10.3.2026 21:56
Áfengissala í brekkunni hafi reynst vel Lögreglan þurfti að grípa inn í við Hlíðarfjall síðustu helgi þegar örtröð myndaðist við bílastæðið. Forstöðumaður skíðasvæðisins segir áfengissölu í brekkunni hafa reynst einkar vel og tekur fram að fjöldi erlendra ferðamanna á svæðinu hafi aukist verulega á síðustu árum. Innlent 27.2.2026 23:16
Metfjöldi gesta tvo daga í röð Um 3.400 manns lögðu leið sína í Hlíðarfjall á Akureyri í dag og nánast jafnmargir í gær. Stjórnendur telja aðsóknina þá mestu frá upphafi talninga og reikna með að helgin verði sú stærsta í sögu skíðasvæðisins. Innlent 21.2.2026 23:18
Svo margir á skíðum að lögreglan skarst í leikinn Sólin skín á snæviþakinn Eyjafjörð og sjaldan ef nokkurn tímann verið jafnmikið að gera í Hlíðarfjalli. Alla og ömmur þeirra langar að komast í brekkuna og umferðin er slík að lögreglan þurfti að skerast í leikinn. Innlent 21.2.2026 12:09
„Helvítið“ breyttist í geggjaðan Austurríkisfíling Stemningunni á skíðasvæðinu í Bláfjöllum í dag var lýst sem geggjuðum Austurríkisfíling eftir að eins og hálfs tíma töf varð vegna bilunar á stólalyftunni. Veðurfræðingur spáir allhvössu veðri á morgun en rekstrarstjóri Bláfjalla gefur lítið fyrir veðurspár og býst við dúndurstemningu í fjallinu um helgina. Innlent 20.2.2026 17:54
Ballið byrjað í Bláfjöllum Rafmagnsbilun sem varð í stólalyftunni Drottningunni í Bláfjöllum í morgun hefur verið lagfærð. Innlent 20.2.2026 14:32
„Svo fær maður svona helvíti á fyrsta opnunardegi“ Stólalyftan Drottningin í Bláfjöllum bilaði í morgun, á fyrsta opnunardegi vetrarins. Verið er að rekja rafmagnsbilun og ómögulegt er að segja til um hversu lengi bilunin mun vara. Enginn var í lyftunni þegar hún bilaði og því er enginn skíðamaður að frjósa. Innlent 20.2.2026 12:16
Opið í Bláfjöllum í dag „Loksins, loksins,“ segir á heimasíðu Bláfjalla en þar er greint frá því að brekkurnar opni í fyrsta skipti í tæpt ár seinna í dag. Þetta eru eflaust gleðifréttir fyrir börn og foreldra í vetrarfríi en það hófst í mörgum skólum í gær. Innlent 20.2.2026 09:38
Ekkert óvenjulegt við kalt og bjart veður Sigurður Þ. Ragnarsson, betur þekktur sem Siggi Stormur, ráðleggur skíðafólki að gera sér ekki upp vonir um snjókomu. Frostið fer að bíta síðar í vikunni en ekki líklegt að það bóli á snjónum. Veður 2.2.2026 23:25
Hátt í sjötíu ár síðan það snjóaði eins lítið Hátt í sjötíu ár eru síðan eins lítil úrkoma hefur mælst á höfuðborgarsvæðinu í janúar líkt og nú. Snjóleysið hefur veruleg áhrif á skíðafólk. Innlent 28.1.2026 23:03
„Hún er í afneitun“ Formaður Skíðasambands Íslands segir Hólmfríði Dóru Friðgeirsdóttur vera í afneitun um alvarleika eigin meiðsla. Fótbrot hennar sé ekki gróið að fullu og samkvæmt læknisráði sé hún ekki hæf til keppni. Ákvörðunin hefði ekki átt að koma henni á óvart. Sport 28.1.2026 11:03
Átta látnir á einum degi vegna snjóflóða Eftir linnulausa ofankomu í austurrísku Ölpunum síðustu vikuna féll í gær fjöldi snjóflóða og hafa átta manns látið þar lífið. Síðdegis í gær hreif snjóflóð þrjá tékkneska skíðamenn í Murtal-héraði í Steiermark. Þeir fundust síðar látnir. Erlent 18.1.2026 15:18
Hægt að skíða í Ártúnsbrekku síðar í dag Opið verður í skíða- og sleðabrekkunum í Ártúnsbrekkunni í dag. Reykjavíkurborg hefur verið í snjóframleiðslu á svæðinu frá því fyrir helgi. Í tilkynningu kemur fram að vel hafi gengið að búa til snjó. Hann sé harðpakkaður og fínt að gera ráð fyrir því þegar brekkan er notuð. Innlent 7.1.2026 14:12
Snjóframleiðslan „fáránlega flott“ í Ártúnsbrekkunni Líklegt er að skíðasvæðið í Ártúnsbrekku verði opnað á miðvikudag. Hafin var snjóframleiðsla á svæðinu síðasta föstudag. Ólíklegt er að opni í Bláfjöllum í vikunni en rekstrarstjóri segir unnið hörðum höndum að því að gera brekkurnar tilbúnar. Þriggja vikna rigningartímabil um hátíðarnar hafi verið starfsfólki mikil vonbrigði. Innlent 5.1.2026 15:42
Snjór í Ártúnsbrekku Litla brekkan ofan við Ártúnsbæinn lætur kannski ekki mikið yfir sér, en engu að síður er hún vagga skíðaíþróttarinnar í Reykjavík. Lengi vel var skíðaiðkun Íslendinga bundin við snjóþung héruð á Vestfjörðum, Norðurlandi og austur á landi, á meðan skíðabúnaður mátti heita óþekktur suðvestanlands. Skoðun 5.1.2026 11:33
Heiðraði fórnarlömb brunans í heimabænum: „Við skíðuðum fyrir þau“ Camille Rast stóð uppi sem sigurvegari í fyrstu alþjóðlegu skíðakeppninni sem haldin var eftir banvæna brunann sem varð í heimabæ hennar í Sviss á gamlárskvöld. Sport 4.1.2026 09:39
Lítið snjóflóð féll á snjótroðara í Hlíðarfjalli Lítið snjóflóð féll á snjótroðara sem var við vinnu í Hlíðarfjalli í gær. Starfsmaður slasaði sig ekki og ekkert tjón varð á troðaranum þegar flóðið féll á hliðina á honum. Brynjar Helgi Ásgeirsson, forstöðumaður Hlíðarfjalls, segir starfsmann hafa komið sér niður af fjallinu eftir flóðið. Innlent 19.12.2025 15:03
Ítalir skylda skíðafólk til að nota hjálm Ítalar hafa samþykkt lög sem gera skíða- og snjóbrettaköppum skylt að nota hjálm á meðan þeir stunda íþróttina. Þeir sem nota ekki hjálminn geta átt von á sekt. Erlent 25.11.2025 18:42
Bregðast ekki við bílastæðavanda við skíðasvæði í Reykjavík Formaður umhverfis- og skipulagsráðs segir ekki til fjármagn til að bregðast við óþægindum sem íbúar í Dalhúsum í Grafarvogi verða fyrir vegna mikillar aðsóknar að skíðasvæðinu í Húsahverfi. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins harma að tillaga þeirra um úrbætur á svæðinu hafi verið felld á fundi ráðsins. Innlent 13.11.2025 22:09