„Tjónið af þessum slóðaskap hleypur á fleiri milljörðum“ Oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík er verulega brugðið eftir fréttaumfjöllun Kastljóss um samninga borgarinnar við olíufélögin. Hún segir ljóst af umfjölluninni að þeir fjármunir sem borgin varð af vegna samninganna séu töluvert hærri en áður var talið. Borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins kalla eftir óháðri úttekt á samningunum. 6.5.2024 21:08
Kveikt í papparusli í Glæsibæ Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út um klukkan 19 í dag vegna reyks við Glæsibæ við Álfheima í Reykjavík í dag. Kveikt var í papparusli í stigagangi en það tókst að slökkva í því með slökkvitæki á staðnum. 6.5.2024 19:12
Mari meyr eftir sigurinn „Bara svona meyr,“ segir Mari Järsk, um það hvernig henni líður eftir að hafa sigrað bakgarðshlaupið í ár. Mari hljóp 57 hringi og yfir 380 kílómetra og sigraði hlaupið eftir að Elísa Kristinsdóttir skilaði sér ekki í mark á 57. hring. 6.5.2024 18:42
Baldur segir niðurstöður nýjustu kannana vonbrigði Halla Hrund skynjar mikinn meðbyr með sínum gildum, Katrín segir fylgið á mikilli hreyfingu og Baldur segir nýjustu tölur vonbrigði. Öll segja þau það frábært að fá tækifæri til að ferðast um landið til að hitta landann. 3.5.2024 14:23
Tilvísunum vegna skekkju á höfuðkúpu ungbarna fjölgað mikið Frá árinu 2018 til 2023 hefur tilvísunum til sjúkraþjálfara á Æfingastöðinni vegna ósamhverfu í hálshreyfingum og skekkju á höfuðkúpu hjá ungbörnum fjölgað úr 123 í 270. Flestum er vísað frá heilsugæslu í ungbarnaeftirliti við tveggja til fjögurra mánaða aldur. 3.5.2024 14:05
Svona gæti bensínstöðvarreiturinn við Ægisíðu litið út Þrjár tillögur hafa nú verið kynntar sem koma til greina um þróun lóðar við Ægisíðu 102 í Reykjavík, gamla bensínstöðvarreitnum. Þrjár arkitektastofur voru valdar til þátttöku. Það eru Gríma arkitektar, Sei studio og Trípólí arkitektar. 3.5.2024 12:33
Heyrist meira af kjaftæði um lyf en vísindalegum staðreyndum Freyja Jónsdóttir, lektor við Lyfjafræðideild Háskóla Íslands, segir ákveðna hópa þurfa að fara varlega þegar þau ferðast erlendis í mikinn hita. Eldra fólk hafi til dæmis minni viðnámsþrótt í miklum hita. Það þurfi að passa upp á sólarvörn og drykki. Það eigi þó alls ekki að hætta að taka lyfin án samráðs við heilbrigðisstarfsmann. 3.5.2024 08:59
Hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir matvælaráðherra segir þingflokk Vinstri grænna hafa áhyggjur af fylgistapi flokksins í nýjasta Þjóðarpúlsi Gallup sem birtur var í gær. Þar kom fram að flokkurinn mælist með 4,4 prósenta fylgi og næði samkvæmt því ekki inn á þing. 30.4.2024 15:35
Engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að hefjast „Það eru engin merki um að kvikuhlaup sé hafið eða að það sé um það bil að hefjast,“ segir Salóme Jórunn Bernharðsdóttir náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands. Staðan sé svipuð og hún hafi verið síðustu daga. 30.4.2024 14:48
Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision Hópur tónlistarmanna kemur fram á samstöðutónleikum með Gasa í Háskólabíó þann 7. maí klukkan 19.30. Á sama tíma keppir Ísland í fyrri undankeppni Eurovision í Malmö í Svíþjóð. Söngkonan Elísabet Eyþórsdóttir, Beta, er ein þeirra sem kemur að skipulagningu tónleikanna. 30.4.2024 11:08