Norskur maður grunaður í máli Anne Elisabeth Hagen Norskur maður á sextugsaldri hefur fengið stöðu sakbornings í máli Anne Elisabeth Hagen. Hún, ein ríkasta kona Noregs, hvarf sporlaust af heimili sínu í Lørenskógi í nágrenni Óslóar árið 2018 og hefur verið skráð myrt daginn sem hún hvarf í kerfum lögreglu síðan í janúar 2020. 30.5.2026 18:03
Stjörnustríðs-leynivopnið Marcia Lucas látin Marcia Lucas, sem hlaut Óskarsverðlaun fyrir klippingu á einni af Stjörnustríðsmyndunum í leikstjórn fyrrverandi eiginmanns síns, George Lucas, lést á miðvikudaginn, þann 27. maí, í Rancho Mirage í Kaliforníu. Hún var áttatíu ára þegar hún lést og hefur bandaríski miðillinn Variety eftir lögmanni fjölskyldunnar sem staðfesti að hún hefði látist úr krabbameini. 30.5.2026 00:01
Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Í tilkynningu sem Íslandsbanki sendi frá sér er fólk varað við svikurum sem hafa undanfarið sent út tölvupósta í nafni bankans. Þar er fólk blekkt til að skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og gefa upp öryggisnúmer. 29.5.2026 22:53
Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Þorgerður Katrín utanríkisráðherra segir að veikindi Ingu Sæland muni ekki hafa áhrif á störf ríkisstjórnarinnar og að Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, muni gegna starfi mennta- og barnamálaráðherra í fjarveru hennar. 29.5.2026 22:11
Nei eða já? Af eða á? Þrír mánuðir eru þar til þjóðaratkvæðagreiðsla um aðildarviðræður við Evrópusambandið fer fram. Miklar deilur voru um málið á þingi og búast má við að sumarið litist af umræðum um hvort Ísland gangi í sambandið eður ei. Til að aðstoða landsmenn við að komast að upplýstri ákvörðun hefur fyrirtækið Reon sett í loftið vefinn já eða nei punktur is. 29.5.2026 21:49
Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Maður hefur verið dæmdur í þrjátíu daga skilorðbundið fangelsi og gert að greiða rétt tæpar tvær milljónir fyrir að veitast að ellefu ára dreng sem tók þátt í dyraati á heimili hans. Atvikið átti sér stað í nóvember 2024 en maðurinn kom að brotnu gleri í útidyrahurð sinni og ákvað að leita uppi drengjahóp sem hafði reglulega verið að prakkarast við húsið. 29.5.2026 21:08
Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Eimskip og Sjómannafélag Íslands (SÍ) hafa undirritað samkomulag um að aflýsa verkfalli háseta og bátsmanna á þremur skipum félagsins. Á mánudag, þann 25. maí, hófu hásetar og bátsmenn í Sjómannafélagi Íslands ótímabundið verkfall á stærstu skipum félagsins: Brúarfossi, Dettifossi og Selfossi. 29.5.2026 20:11
Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Sérsveitaraðgerðir standa yfir í Hveragerði og var kona tekin út úr bíl og leitað í farartækinu á bílastæðinu við N1 um klukkan hálf sjö í kvöld. 29.5.2026 19:12
Kaupa Sóma og Þykkvabæ Eitt þekktasta matvælaframleiðslufyrirtæki landsins, Sómi ehf., hefur verið selt til nýrra eigenda. Þá ná kaupin einnig til dótturfélagsins Þykkvabæjar ehf. en það er Framtakssjóðurinn SÍA V, sem stýrt er af Stefni hf., sem hefur nú undirritað samning um kaup á öllu hlutafé í Sóma. 29.5.2026 18:23
Þrjú hundruð kórbörn frumflytja lag Norræna kóramótið Norbusang hefur farið fram í Kópavogi síðustu daga en þrjú hundruð börn og ungmenni frá öllum Norðurlöndunum taka þátt. Á morgun fara fram lokatónleikar í Digraneskirkju klukkan fjögur en þar verður tónverkið Valhoppar vorið frumflutt. 15.5.2026 23:52