Fréttamaður

Freyja Þórisdóttir

Freyja er fréttamaður á fréttastofu Sýnar.

Nýjustu greinar eftir höfund

Nú mega yngri en 25 ára ekki leigja golfbíl

Vegna tíðra óhappa á golfbílum í leigu ungra kylfinga hefur aldurstakmark hjá Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar verið hækkað í tuttugu og fimm, en það er átta ára hækkun frá fyrra aldurstakmarki hjá klúbbnum.

Fyrsta ebólu­til­fellið í Evrópu stað­fest

Í Frakklandi hefur fyrsta tilfelli ebólu verið staðfest en læknir sem var nýkominn aftur heim úr hjálparstarfi í Austur-Kongó er smitaður. Er þetta fyrsta staðfesta ebólutilfelli inna Evrópu. Ebólufaraldur hefur geisað í Mið-Afríku ríkinu síðustu vikur en einnig eru staðfest smit í nágrannaríkinu Úganda.

Quarashi hyggst „Do it again“

Hljómsveitin Quarashi hefur sent frá sér nýtt lag en í fyrra, árið 2025, tróð sveitin upp á Lopapeysunni á Akranesi eftir ríflega tíu ára hlé frá sviðsljósinu. Hún lagði upp laupana árið 2005 eftir mikla alþjóðlega velgengni en meðal þeirra meðlima sem hafa tjáð sig um álagið sem fylgdi eru Sölvi Blöndal, einn forsprakki Quarashi.

Fer full af bjart­sýni og von inn á fundinn: „Ég treysti því bara að við getum haldið á­fram á ein­hverjum tíma­punkti“

Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur fellt úr gildi ákvörðun byggingarfulltrúans í Reykjavík um að gefa Samhjálp leyfi til að endurinnrétta húsnæðið við Grensásveg 46 fyrir nýja kaffistofu Samhjálpar. Framkvæmdastýra Samhjálpar segir óljóst hvað niðurstaðan þýði fyrir gesti Samhjálpar en ljóst að hún hafi áhrif á fyrirhugaða opnun kaffistofunnar sem áætluð var seinna í þessum mánuði. Hún segir þó nokkuð ljóst að borgin þurfi að leggjast betur yfir málið.

Nýr í­þrótta­völlur vekur at­hygli í fá­mennri sveit

Nýjum íþróttamannvirkjum er jafnan vel fagnað meðal þeirra sem munu njóta þeirra en við Hrollaugsstaði í Suðursveit er verið er að taka í notkun nýjan fjölnota íþróttavöll. Sveitin er mjög fámenn og eru þar innan við tuttugu heimili og því vekur nýi völlurinn mikla athygli.

Facebook og Instagram liggi niðri vegna bilunar

Samfélagsmiðlarnir Instagram og Facebook virðast liggja niðri en erlendir miðlar hafa greint frá því að um bilun sé að ræða og að villutilkynningar hafi og séu að berast notendum um allan heim.

Taka upp gjald­skyldu við Smára­lind

Forsvarsmenn Smáralindar hafa ákveðið að taka upp gjaldskyldu á bílastæðum við verslunarmiðstöðina en uppbygging á svæðinu og aðsókn í húsið eru meðal þess sem spilaði inn í ákvarðanatökuna að sögn markaðsstjóra Smáralindar.

Allir um­sækj­endurnir metnir jafn hæfir

Þeir fjórir umsækjendur sem sóttu um embætti dómara við Hæstarétt hafa verið metnir jafn hæfir af dómnefnd. Umsækjendurnir eru öll dómarar við Landsrétt en í kjölfar þess að nefndin afhendir ráðherra umsögn sína um umsækjendur er stefnt að því að ákvörðun um skipun liggi fyrir hið fyrsta.

Sjá meira