Myndaveisla: Þær voru fjallkonur um land allt í ár Fjallkonurnar í ár, á áttatíu og tveggja ára afmæli Lýðveldisins, voru hver annarri glæsilegri en frá lýðveldisstofnun hefur það verið hefð að kona í hlutverki fjallkonunnar flytji ávarp fyrir hátíðargesti á þjóðhátíðardaginn. 23.6.2026 19:24
„Þeir gáfu mér þessi dýrmætu augnablik til að sveigja úr leið“ Á níunda tímanum í kvöld, mánudaginn 22. júní, skall hurð nærri hælum á göngustíg við Ásgarð í Mosfellsbæ en minnstu munaði að þrír ungir fjallahjólarar keyrðu niður barnungan dreng. Móðir drengsins segist enn vera í hálfgerðu áfalli en að „skyndileg ónotatilfinning“ hafi orðið til þess að hún greip son sinn upp og hljóp með hann af stígnum augnabliki áður en drengir á fjallahjólum birtust ofar á stígnum. Þá segir hún alls ekki vera við þá að sakast enda sárvanti betri merkingar og skilti við stíginn. 22.6.2026 23:32
Segir upphaf hvalvertíðar vera gleðitíðindi: „Peningarnir detta ekki af himnum ofan“ Fyrstu langreyðarnar, sem veiðst hafa við Íslandsstrendur í þrjú ár, eru væntanlegar á land í Hvalfirði í nótt. Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir upphaf hvalvertíðar gleðitíðindi, venjulegt verkafólk geti fengið allt að tvær milljónir króna í laun á mánuði. Þá segir hann að það yrði illa farið fyrir Íslendingum ef „öfgaskoðanir öfgafólks“ færu að hafa áhrif á ákvarðanatökur. 22.6.2026 20:53
Lögreglan þakkar öllum sem komu að verkefninu Tónlistarhátíðin Bergmál fór fram á Þingvöllum um liðna helgi en undirbúningur hátíðarinnar hefur verið mikið ræddur síðastliðnar vikur. Tekist hefur verið á um hvort að skipulag hafi verið með sem bestum hætti en meðal þeirra sem telja svo vera er starfshópur Lögreglunnar á Suðurlandi. 22.6.2026 20:10
Tónlistargoðsögnin Clive Davis er látinn Clive Davis, tónlistarmógúllinn sem gegndi lykilhlutverki í velgengni listamanna á borð við Whitney Houston, Bruce Springsteen og Arethu Franklin, er látinn, 94 ára að aldri. Hann var um áratugaskeið meðal valdamestu manna í bandarískum tónlistariðnaði. 22.6.2026 19:17
Ökumaður vespunnar reyndist vera með allt niður um sig Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði í dag, mánudaginn 22. júní, afskipti af manni sem ók um á vespu en hann reyndist vera undir áhrifum fíkniefna, með fíkniefni á sér, án ökuréttinda og vespan, sem reyndist stolin, var ljóslaus og án skráningarmerkja. 22.6.2026 18:10
Gull og gimsteinar leynast víða Höllu Hrund Logadóttur kannast eflaust flestir Íslendingar við en hún er ein þeirra sem buðu sig fram til forseta vorið 2024 og var í þriðja sæti frambjóðenda þegar upp var staðið. Hún sinnir nú þingmennsku fyrir Framsóknarflokkin en er einnig fyrrverandi Orkumálastjóri, fyrst kvenna, og aðjúnkt við Harvard-háskólann. 20.6.2026 13:00
Nýir útvarpsþættir að norðan: „Ef eitthvað fer illa þá bara fer það illa“ Hallór Kristinn Harðarsonar, betur þekktur sem Dóri K, hefur slegist í hóp útvarpsmanna FM957 og mun hann fara í fyrsta sinn í loftið klukkan 16:00 í dag, laugardaginn 20. júní, beint frá Akureyri. Það þekkja hann eflaust flestir Akureyringar en Dóri er tónlistarmaður, handboltamaður, viðburðarhaldari, athafnamaður og svo mætti lengi telja. 20.6.2026 12:03
Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni Bandaríska leikkonan Anne Hathaway á von á sínu þriðja barni ásamt bandaríska leikaranum, kvikmyndaframleiðandanum og skartgripahönnuðinum Adam Schulman. 19.6.2026 15:45
Bjórinn nefndur eftir lagi hljómsveitarinnar Kaleo Borg Brugghús og Kaleo hafa snúið bökum saman og hefur nú verið gefinn út samstarfsbjórinn, Hey Gringo, sem dregur nafn sitt af samnefndu lagi sveitarinnar af plötunni Surface Sounds frá árinu 2021. Hann fer þó ekki í almenna sölu fyrr en síðar í sumar. 19.6.2026 14:33