Fræddust um daglegt líf blindra og hreyfihamlaðra Vísindaskóli unga fólksins á Akureyri er hápunktur sumarsins hjá mörgum en hann er fyrir börn á aldrinum ellefu til þrettán ára. Ýmis námskeið eru á boðstólum og í ár fengu krakkarnir fræðslu um jafnréttismál, málefni norðurslóða, sorpmál og margt fleira. 25.6.2026 23:45
Elon Musk skipað að bera vitni undir eið Elon Musk, auðugasta manni heims, hefur verið gert að vera vitni undir eið í tveimur fyrirhuguðum hópmálsóknum þar sem hann er sakaður um að hafa svikið kjósendur í óvissuríkjum (e. swing states) fyrir forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2024 með því að lofa milljón dollara, ríflega hundrað og tuttugu milljónum íslenskra króna, til þeirra sem ynnu daglega gjafaleiki sína. 25.6.2026 23:10
Hjartað slær í Hafnarfirði: „Við erum búin að sprengja það alveg utan af okkur“ Tónlistarhátíðin Hjarta Hafnarfjarðar sem hefur sett svip sinn á skemmtanalíf höfuðborgarbúa síðustu sumur en í ár eru tíu ár frá því að hátíðin var fyrst haldin. Meðal þeirra sem fram koma á opnunarkvöldi hátíðarinnar þetta árið er hljómsveitin Botnleðja en hátíðin stendur yfir þrjá daga í viku fram að frídegi verslunarmanna. 25.6.2026 22:25
„Miðað við þessi orð þá hef ég miklar áhyggjur“ Ríflega helmingur þeirra sem sagt var upp störfum hjá Reykjavíkurborg í dag, fimmtudaginn 25. júní, eru í stéttarfélaginu Sameyki. Var félaginu tilkynnt fyrirfram um uppsagnirnar en formaður félagsins segir mjög þungt í fólki hljóðið. Þá segir hann að horfa þurfi aftur til ársins 2010 til þess að rifja upp svipaða hópuppsögn hjá borginni. 25.6.2026 21:25
Treystir sér ekki til að ganga í gegnum fjórðu réttarhöldin Saksóknarar í New York hafa fellt niður ákæru á hendur kvikmyndaframleiðandanum og kynferðisafbrotamanninum Harvey Weinstein. Málið hafði þegar verið tekið fyrir þrisvar sinnum, einu sinni leiddi það til sakfellingar sem var hnekkt og tvisvar sinnum komst kviðdómur ekki að niðurstöðu. Aðrar sakfellingar Weinsteins, þar á meðal fyrir annað kynferðisbrot í New York og önnur í Kaliforníu, standa enn. 25.6.2026 20:25
Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Lággjaldaflugfélagið Ryanair hefur verið skikkað til þess að breyta reglum sínum um sætaskipan fyrir fjölskyldur og leyfa foreldrum að sitja við hlið ungra barna sinna án þess að greiða gjald fyrir sætapöntun. Er þetta í kjölfar rannsóknar sem breska samkeppnis- og markaðseftirlitið (CMA) hóf nýverið til að kanna hvort stefna flugfélagsins, sem eftirlitið segir að leiði venjulega til gjalds upp á átta pund, eða þrettán hundruð krónur, hvora leið, sé „ósanngjörn“ samkvæmt neytendalögum. 25.6.2026 19:29
Stúlkan er fundin Sautján ára stúlka sem lögregla lýsti í tvígang eftir í vikunni er fundin. 25.6.2026 19:08
Kastaðist af hjólinu þegar ekið var á hann Lögreglunni barst tilkynning um árekstur á áttunda tímanum í morgun, fimmtudaginn 25. júní, þar sem ekið hafði verið á reiðhjólamann með þeim afleiðingum að hann kastaðist af hjólinu. Þá hafnaði hann á gangstéttarkanti og var fluttur á slysadeild en ekki liggur fyrir hve alvarlega áverka hann hlaut. 25.6.2026 17:57
Áttatíu ára gamalt hitamet slegið í Sviss Áttatíu ára gamalt hitamet hefur verið slegið í Sviss en á fjórum mismunandi veðurstöðvum fór hitinn yfir þrjátíu og sjö gráður en er þetta hæsti hiti sem mælst hefur í landinu í júnímánuði. Í hitabylgjunni sem nú gengur yfir Evrópu hefur hiti víða farið yfir þrjátíu og fimm gráðurnar og er áætlað að allt að fjögurhundruð milljón manns muni upplifa hita yfir þrjátíu gráður í álfunni á næstu dögum. 25.6.2026 17:35
Konungur retróleikja slekkur á straumum: „Ég vissi ekki að maður gæti fengið borgað fyrir þetta“ Leikjarinn, sem hefur verið kallaður konungur retróleikja, byrjaði árið 2011 að spila tölvuleiki í beinni útsendingu oft á viku en sunnudaginn 14. júní boðaði hann sinn seinasta straum. Á þessum ríflega fimmtán árum varð til hópur fólks sem hann þekkti ekki í sjón en talaði við oftar en sumir tala við fjölskylduna sína. Þá voru nokkur skipti þar sem hann hefði geta tekið stökkið, hætt að vinna og haft lífsviðurværi sitt af tölvuleikjastreyminu einu saman. 24.6.2026 21:01