Búinn að fá sig fullsaddan af þjónustunni hjá Wolt Lögmaður í Reykjavík hefur nýtt sér heimsendingarþjónustu Wolt í síðasta skipti. Mælirinn fylltist þegar stóran hluta af pöntun vantaði í vikunni. Í fyrri pöntun hafði vantaði pítsusneið í pítsukassa. Wolt biðst afsökunar á þessum misbrestum. 12.9.2025 19:02
Ríkisstjórnin þverbrjóti leikreglur vinnumarkaðarins Verkalýðsleiðtogar segja áform um afnám áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar opinberra starfsmanna og tímabundinnar lausnar þeirra fela í sér einhliða skerðingu á réttindum launafólks. Með þessu þverbrjóti ríkisstjórnin leikreglur vinnumarkaðarins. Verkalýðshreyfingin muni verjast skerðingum á réttindum launafólks af hörku. 12.9.2025 15:11
Vilja afnema áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar opinberra starfsmanna Ríkisstjórnin hyggst afnema áminningarskyldu sem undanfara uppsagnar starfsmanna ríkisins og tímabundinnar lausnar þeirra. Einnig stendur til að breyta ákvæðum laga um setningu í embætti, auglýsingaskyldu og greiðsludag launa. 12.9.2025 14:29
Forstöðumenn fangelsa lýsa kerfislægri krísu og segja ástandið óásættanlegt Fangelsismál á Íslandi eru í langvinnri kerfislægri krísu, boðunarlistar í fangelsi lengjast og á sama tíma fyrnast dómar. Þetta segja forstöðumenn tveggja fangelsa, öryggisstjóri Fangelsismálastofnunar, Fangavarðafélag Íslands og Afstaða sem gagnrýna öll stefnu stjórnvalda eftir að fram kom að lækka eigi stofnfjárframlag til byggingar á nýju fangelsi tímabundið um 400 milljónir króna á þessu ári. 12.9.2025 13:59
Verið ættleiddur af Íslendingum Það var áhrifamikil stund þegar Ross Edgley staldraði við í sjónum við Nauthólsvík til að þakka fagnandi margmenninu sem hafði beðið hans með mikilli eftirvæntingu. Eftir 115 daga á sjó, 1.600 kílómetra sundferð í kringum landið og fjölmargar áskoranir hafði honum tekist ætlunarverkið. 8.9.2025 21:55
Vinstriblokkin með meirihluta í Noregi Fylking mið- og vinstriflokka í norskum stjórnmálum mælist með meirihluta í þingkosningunum sem fram fóru í dag. Miðað við fyrstu tölur fá þeir flokkar 88 þingmenn með Verkamannaflokkinn í broddi fylkingar. Aðrir flokkar sem teljast til hægri fá 81 þingmann en 85 þarf til að hljóta meirihluta á norska stórþinginu. 8.9.2025 19:07
Tveir fluttir til aðhlynningar eftir árekstur á Suðurlandsvegi Tveir voru fluttir á Heilbrigðisstofnun Suðurlands eftir árekstur á Suðurlandsvegi nú síðdegis. Ökumaður bifreiðar sem var að keyra Suðurlandsveginn keyrði inn í hliðina á öðrum bíl sem var að beygja inn á veginn með þeim afleiðingum að sá síðarnefndi valt. 8.9.2025 18:20
Óásættanlegt að almennir starfsmenn séu beittir óeðlilegum þrýstingi Afl starfsgreinafélag og Rafiðnaðarsamband Íslands (RSÍ) hafa fengið ábendingar um að stjórnendur álvers Alcoa á Reyðarfirði hafi rætt við óbreytta starfsmenn um kjaradeilu verkalýðsfélaganna við fyrirtækið. Viðræður hafa gengið illa og stendur til að greiða atkvæði um verkfall starfsmanna. Alcoa Fjarðaál segir vonbrigði að viðræður hafi ekki borið árangur. 8.9.2025 15:33
Allt ætlaði um koll að keyra í Borgarleikhúsinu Nýtt leikár hófst í Borgarleikhúsinu í kvöld. Nýr leikhússtjóri segir met hafa verið slegið í sölu á áskriftarkortum þetta árið og fram undan sé viðburðaríkt leikár. 5.9.2025 23:45
Sveitarstjórn reyni að skrá íbúa úr sveitarfélaginu og ógni grundvallarréttindum Íbúar í Grímsnes- og Grafningshreppi gagnrýna sveitarstjórnina harðlega fyrir að reyna að fá lögheimiliskráningu fólks breytt og afskrá það um leið úr sveitarfélaginu. 5.9.2025 23:15