Fréttamaður

Dóra Júlía Agnarsdóttir

Dóra Júlía er fréttamaður á Lífinu á Vísi.

Nýjustu greinar eftir höfund

Urður trú­lofuð og mætt aftur á Instagram

Fréttakonan Urður Örlygsdóttir átti rosalega endurkomu á samfélagsmiðilinn Instagram um helgina eftir margra ára fjarveru frá forritinu. Í leiðinni tilkynnti hún stórar fréttir eins og henni einni er lagið.

Fjár­festir og fyrir­sæta selur útsýnisíbúð

Fjárfestirinn og fyrirsætan Inga Eiríksdóttir hefur sett fallega útsýnisíbúð sína á Seltjarnarnesi á sölu. Inga hefur undanfarin ár unnið hjá Crowberry Capital og gegnir stjórnunarstöðu þar. Hún starfaði sömuleiðis sem fyrirsæta í áraraðir í New York. 

Hannaði frægasta brúðar­kjól ársins

Stórstjarnan og popp-prinsessan Dua Lipa giftist leikaranum Callum Turner á Sikiley 6. júní og var um að ræða stærsta stjörnubrúðkaup ársins. Mikil leynd hefur ríkt yfir öllu sem átti sér stað í brúðkaupinu og þá hafa tískuunnendur verið sérstaklega forvitnir að vita hverju Dua Lipa kaus að klæðast. Nú hefur það verið afhjúpað.

„Á endanum snýst þetta um að giftast besta vini sínum“

„Elli hafði í raun bara eina ósk, að það yrði meira gaman og minna formlegt. Þar vorum við algjörlega sammála og það varð eiginlega leiðarljósið í öllu skipulaginu,“ segir flugfreyjan Guðrún Edda Þórðardóttir sem giftist ástinni sinni Erlendi Kristjánssyni blikksmið á Seyðisfirði í rómantísku brúðkaupi á Seyðisfirði núna í júní.

Hips­um­haps rýfur þögnina

„Við erum búin að leggja mikla vinnu í þessa plötu og hlökkum til að deila henni með ykkur. Vonandi hlustið þið með opnu hjarta,“ segir Fannar Ingi Friðþjófsson, jafnan kenndur við hljómsveitina Hipsumhaps. Breiðskífan Algrím hjartans, nýjasta plata sveitarinnar, kom út á öllum helstu streymisveitum í gær, á sjálfan þjóðhátíðardaginn 17. júní.

„Ég er skít­hræddur“

Útvarpsstjörnurnar og tónlistarmennirnir Guðjón Smári og Jóna Margrét skelltu sér í bústað fyrir nokkrum vikum og sköpunargleðin lék lausum hala. Útkoman varð að fullt af nýrri tónlist og þar á meðal fæddist lagið Burt af klúbbnum. Tvíeykið frumsýnir hér tónlistarmyndband við lagið.

Svaf til fóta eftir fyrstu sam­bands­slitin

„Lífið er svo magnað fyrirbæri,“ segir jákvæði orkuboltinn, tónlistarmaðurinn og fyrrum fótboltakappinn Jón Jónsson. Jón hefur lengi verið í hópi frægustu söngvara landsins og vakti upphaflega athygli í aðalhlutverkum í Nemó-söngleikjunum þegar hann var nemi í Verslunarskóla Íslands. Jón hefur komið víða við í tónlistarbransanum og skrifaði meðal annars undir plötusamning við stórt útgáfufélag í Bandaríkjunum árið 2012.

Djömmuðu sem dauðasyndirnar sjö

Áhrifavaldar, tónlistarstjörnur og fyrirsætur snæddu saman kvöldverð í gær í óhefðbundnu þema þar sem dramatíkin var í fyrirrúmi. Meðal gesta voru raunveruleikastjarnan Birgitta Líf, fyrirsætan Helga Þóra, djamm-drottningin Gugga í gúmmíbát og tónlistarkonan Kolfreyja. 

Heitustu tískutrendin í sumar

Litagleði og glamúr lifnar við á sumrin hérlendis og virðast fleiri þora að taka áhættu þegar sólin skín. Ný trend skjótast fram sem eru þó oftar en ekki gömul og endurnýtt, enda tískan þekkt fyrir það að fara í hringi. 

Sjá meira