Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Umferðarteppa hefur myndast við ný gatnamót Arnarnesvegar og Breiðholtsbrautar. Bæjarstjóri Kópavogs segir ástandið óásættanlegt en Vegagerðin bendir á að um bráðabirgðafyrirkomulag sé að ræða. Full reynsla fáist ekki fyrr en fleiri akreinar hafa verið opnaðar og ljósastýringin tekin í fulla notkun. 17.7.2026 18:33
„Pólitísk ákvörðun“ hvort hraðinn verði 90 eða 110 Framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar segir mögulegt að hækka hámarkshraða á ákveðnum vegköflum í 110 kílómetra, séu þeir hannaðir með tilliti til þess. Tvöföldun vegarins milli Hvalfjarðar og Borgarness er þegar í samgönguáætlun, auk áframhaldandi uppbyggingar Suðurlandsvegar austur að Selfossi. 16.7.2026 13:21
Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum Endalok hins svokallaða hryðjuverkamáls verða til umræðu í kvöldfréttum. Ríkissaksóknari hefur ákveðið að áfrýja ekki sýknudómi Landsréttar til Hæstaréttar. Sveinn Andri Sveinsson, verjandi í málinu, segir von á svimandi hárri skaðabótakröfu frá mönnunum sem sakaðir voru um að leggja á ráðin um hryðjuverk. Landsréttur taldi ummæli þeirra hatursfull og ógeðfelld en ekki sannað að ásetningur hefði búið að baki þeim. 10.7.2026 18:02
Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB Umræða um mögulegar undanþágur Íslands frá sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins hefur vakið viðbrögð á þingum Danmerkur og Hollands. 10.7.2026 13:58
ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Hart var tekist á um Evrópusambandið, sjávarútveg og mögulegar sérlausnir Íslands í aðildarviðræðum þegar Guðlaugur Þór Þórðarson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fyrrverandi utanríkisráðherra, og Dagbjört Hákonardóttir, þingmaður Samfylkingarinnar sem á sæti í utanríkismálanefnd, ræddu málið í Reykjavík síðdegis í dag. 9.7.2026 20:02
Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Í kvöldfréttum okkar förum við yfir helstu tíðindi af leiðtogafundi NATO í Ankara, sem lauk í gær með sameiginlegri yfirlýsingu um samstöðu bandalagsins, sameiginlegar varnir og áframhaldandi stuðning við Úkraínu. Fundurinn litaðist þó einnig af ummælum Donalds Trump um Grænland og stöðu norðurslóða. Albert Jónsson alþjóðastjórnmálafræðingur verður hjá okkur og fer yfir stöðu mála. 9.7.2026 18:02
Trump, hóteldeilur og VestFest í kvöldfréttum Leiðtogafundi Atlantshafsbandalagsins í Tyrklandi lauk í dag þar sem Bandaríkjaforseti fór mikinn og hélt áhuga sínum á Grænlandi til streitu. Forsætisráðherra segir mikla hlýju hafa einkennt fundinn og að vel hafi farið á milli hennar og Donalds Trump. Tómas Arnar fjallar um málið í kvöldfréttum. 8.7.2026 18:00
Ísland skari fram úr ESB á flestum mælikvörðum Ísland stendur heilt yfir mjög vel í samanburði við ríki Evrópusambandsins þegar horft er til lífskjara, kaupmáttar, atvinnuþátttöku, framleiðni og opinberra fjármála. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Konráðs Guðjónssonar hagfræðings hjá Kontext. 8.7.2026 15:39
Raforkueftirlitið fylgist með að lægri raforkukostnaður skili sér til neytenda Raforkukostnaður meðalstórs kúabús gæti lækkað um 480 þúsund krónur á ári eftir breytingar sem Alþingi hefur samþykkt á jöfnun dreifikostnaðar raforku. 8.7.2026 12:01
Gönguljósin á Miklubraut: Bráðalausn eða bið eftir stokknum? Gönguljós á Miklubraut, tafir við Bústaðaveg og Reykjanesbraut og framtíð gatnamótanna við Kaplakrika eru meðal þeirra umferðarhnúta sem kalla reglulega fram gagnrýni ökumanna. 6.7.2026 13:08