Kallar 25 ára þak á verðtryggð lán sýndarmennsku Áform um að takmarka lánstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána við 25 ár eru sýndarmennska, segir Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, segir breytinguna gott fyrsta skref en skoða þurfi áhrif hennar á fyrstu kaupendur og aðra hópa. 14.10.2026 16:01
Ráðist inn í skóla og veist að nemendum eða starfsfólki Fólk hefur farið inn í skóla í Reykjavík og veist að nemendum eða starfsfólki á síðustu vikum, samkvæmt bókun kennarafulltrúa í skóla- og frístundaráði. Ráðið hefur jafnframt áhyggjur af vísbendingum um að öryggisatvik gagnvart starfsfólki séu í sumum tilvikum að verða fleiri og alvarlegri. Formaður Kennarafélags Reykjavíkur segir að endurskoða þurfi hvernig öryggi nemenda og kennara sé tryggt í skólunum. Hún segir samfélagið hafa breyst og kennarar óttast um öryggi sitt. Hún hafi heyrt af skólum þar sem kennslustofum sé læst meðan kennsla fer fram. 14.10.2026 15:10
Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent Gjald fyrir akstursþjónustu eldra fólks í Kópavogi gæti hækkað úr 673 krónum í 1.772 krónur á ferð samkvæmt tillögu sem velferðar- og mannréttindaráð bæjarins hefur samþykkt fyrir sitt leyti. Hækkunin næmi rúmlega 163 prósentum hjá þeim sem falla í hærri tekjuflokk þjónustunnar. 14.10.2026 14:12
Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Seltjarnarnesbær hefur samþykkt tímabundið ráðningar- og yfirvinnubann og lækkun greiðslna til bæjarfulltrúa. Greiðslurnar verða jafnframt tengdar mætingu á bæjarstjórnarfundi. Aðgerðirnar eru liður í því að bregðast við þungri rekstrarstöðu bæjarins. 14.10.2026 11:32
Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Atvinnumannahnefaleikar eiga áfram að vera bannaðir á Íslandi, að mati Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra. Hún hyggst ekki beita sér fyrir lagabreytingum til að heimila þá og vísar til hættu á höfuð- og heilaskaða. 14.10.2026 10:19
Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Ný einkarekin heilbrigðisþjónusta undir nafninu Litli spítalinn er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík. Henni er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu, meðal annars með því að sinna fólki með langvinna sjúkdóma á einum stað. Stefnt er að því að heilbrigðisstarfsfólk verði meirihlutaeigendur. 14.10.2026 07:01
Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari RÚV ákvað að hafa auglýsingahlé reglulega í Vikunni með Gísla Marteini þegar ljóst varð að lenging þáttarins væri komin til að vera. Útvarpsstjóri segir fleiri tónlistaratriði og áhorfendur í sal meðal ástæðna lengingarinnar. Heimilt er að rjúfa eigin framleiðslu RÚV með auglýsingum þegar þátturinn sjálfur nær klukkutíma. 13.10.2026 20:52
Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Áttatíu og sjö foreldrar segjast reiðubúnir að greiða gjald til að fjármagna eftirlit með au pair á Íslandi. Þau mótmæla fyrirhuguðu afnámi dvalarleyfa vegna vistráðningar og segja stjórnvöld eiga að styrkja vernd vistráðinna og framfylgja eftirliti sem hefur verið lögbundið frá árinu 2023. 13.10.2026 13:55
Sýn sakar Rúv um að mata ráðuneytið á röngum tölum Sýn telur að starfsmenn RÚV hafi matað menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytið á sérvöldum og röngum tölfræðigögnum við undirbúning frumvarps um tekjuöflun Ríkisútvarpsins. Félagið segir ráðuneytið ekki hafa haft undir höndum skýrsluna sem það telur samanburð í frumvarpsdrögunum byggja á. RÚV hafi neitað að afhenda hana. 13.10.2026 11:47
Vilja stórhækka vernd íbúðasölufjár í bönkum Peningar sem fólk fær við sölu á eigin íbúð gætu notið mun meiri tryggingarverndar ef bankinn sem geymir þá verður ófær um að endurgreiða þá. Lagt er til að allt að ein milljón evra, eða um 137 milljónir króna, verði varin með þessum hætti í sex mánuði frá innborgun. 13.10.2026 10:40