Þriðjungur borgarbúa vill skipta um ferðamáta Þriðjungur Reykvíkinga sem aka til vinnu vill skipta um ferðamáta og til að mynda nýta sér almenningssamgöngur og hjólreiðar samkvæmt niðurstöðum úr rannsóknarverkefni Reykjavíkurborgar. Að auki kemur þar fram að yfir 90 prósent svarenda flokki reglulega úrgang en flokkunarvenjur ráðist fyrst og fremst af aðgengi að innviðum og þjónustu. 13.9.2026 21:13
Munurinn minnkar í nýrri spá Forskot stjórnarandstöðunnar minnkar samkvæmt nýrri spá SVT í Svíþjóð um úrslit þingkosninga þar í landi. Aðeins 0,2 prósentustig skilja hægri og vinstri blokkina að. 13.9.2026 20:23
Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám Samkvæmt útgönguspám SVT og TV4 í Svíþjóð er fylking Magdalenu Andersson og stjórnarandstöðunnar með naumt forskot á fylkingu núverandi forsætisráðherra, Ulf Kristersson. Svíþjóðardemókratar tapa fylgi miðað við skoðanakannanir síðustu daga. 13.9.2026 18:48
Brotist inn í fyrirtæki í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst í dag tilkynning um innbrot og þjófnað í fyrirtæki í hverfi 101 í Reykjavík. Gerandi er enn ókunnur. 13.9.2026 17:44
Prinsinn hefur nám við Eton-skóla Georg prins, elsti sonur Vilhjálms Bretaprins og Katrínar prinsessu, hóf í dag skólagöngu sína í Eton-skólanum, einum dýrasta heimavistarskóla Bretlands. Hann fetar því í fótspor föður síns og frænda, Harrys hertoga af Sussex, auk margra fyrrverandi forsætisráðherra og rithöfunda. 8.9.2026 21:51
Hafnaði tæpum fimm milljarða þagnarsamningi Musks Rithöfundurinn og áhrifavaldurinn Ashley St. Clair segist hafa neitað að skrifa undir fjörutíu milljóna dala þagnarsamning við auðjöfurinn Elon Musk, barnsföður sinn. Í dag var frumsýnd heimildarmynd um ævi og feril Musks, auðugasta manns heims. 8.9.2026 20:42
Ekki þurfi mikið til að EES-samningurinn rakni upp Ríkisstjórnin er í þrengri stöðu eftir sumarið en hún var fyrir að mati stjórnmálafræðings. Margt bendi til þess að stefni í átakamikinn þingvetur, meðal annars umræðan um Bókun 35 og vendingar í heimsmálum. Niðurstaða þjóðaratkvæðagreiðslu breyti stöðu Íslands gagnvart EES-samningnum og ekki þurfi mikið til að samningurinn rakni upp og verði að engu. 8.9.2026 18:53
Íkveikja í miðborginni Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um íkveikju í íbúðarhúsi í miðbæ Reykjavíkur í dag. Gerandi er enn ókunnur en málið er í rannsókn. Minniháttar skemmdir urðu á húsinu. 8.9.2026 17:44
Ávarp Höllu: „Slíkur missir snertir okkur öll“ Nýafstaðin þjóðaratkvæðagreiðsla og missir sem minni á hvað skipti mestu máli var meðal þess sem var forseta Íslands hugleikið í ávarpi sínu við þingsetningu í dag. Halla Tómasdóttir setti 158. löggjafarþing í dag. 8.9.2026 16:18
Miklar truflanir vegna mótmæla gegn innflytjendum Miklar truflanir urðu á hafnarstarfsemi í bænum Dover í Kent-sýslu í Englandi í dag er svartklæddur hópur fólks hélt mótmæli að því er virðist gegn straumi flóttamanna til landsins. 5.9.2026 23:43