Ellefu létust í flugslysi í Frakklandi Ellefu létust eftir að flugvél í notkun fallhlífarstökkvaraskóla hrapaði í bænum Tomblaine í austurhluta Frakklands í dag. Fimm farþeganna um borð voru nemendur sem undirbjuggu sig fyrir sitt fyrsta fallhlífastökk, hinir fimm hafi verið leiðbeinendur í skólanum. 28.6.2026 22:53
Fræsa og malbika Reykjanesbraut í kvöld Í kvöld, sunnudagskvöldið 28. júní og aðfaranótt miðvikudags 29. júní, milli kl. 20:00 og 06:00, er unnið við fræsingu og malbikun á Reykjanesbraut við Sprengisand. 28.6.2026 21:24
Sérsveitarmenn um borð í Þór Þór, varðskip Landhelgisgæslunnar lagði af stað klukkan þrjú í dag frá Reykjavíkurhöfn í átt að hvalveiðiskipum Hvals hf. vegna hótana Pauls Watsons sem beint er að hvalveiðum fyrirtækisins. Fimm sérsveitarmenn auk séraðgerðarmanna Landhelgisgæslunnar eru um borð í skipinu. 28.6.2026 20:28
Fleiri en 1300 látnir vegna hitabylgju í Evrópu Hitamet hafa verið slegin víða í Evrópu síðastliðna daga þar sem hitabylgja geisar um álfuna. Víða er búist við þrumuveðri í kjölfar hitans og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin segir fleiri en 1300 látna vegna veðursins. 28.6.2026 19:16
Einn fluttur á spítala eftir líkamsárás Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í dag. Einn hafi verið fluttur til aðhlynningar og sagður „nokkuð slasaður“. Greint er frá málinu í tilkynningu frá lögreglu en atvikinu er ekki lýst nánar. 28.6.2026 17:52
Segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta Erica Mancel, systir Emeric Mancel, manns sem fannst látinn á hótelherbergi á Edition-hótelinu í fyrra, bar vitni fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur í dag. Erica er mágkona Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni í samráði við Emeric, eiginmann sinn, á hótelinu. Erica segir bróður sinn hafa verið afar stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hafi verið undirgefnar honum. Hún segir bróðurdóttur sína hafa verið greindarskerta og hún hefði átt í erfiðleikum með að búa ein. 24.6.2026 15:06
„Svona getur þetta ekki gengið lengur“ Umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra segir sektarfjárhæðir við utanvegaakstri of lágar og endurspegli ekki alvarleika brotanna. Ekki sé ólíklegt að lagðar verði fram breytingar á ákvæðum náttúruverndarlaga á viðurlögum við slíkum brotum á næsta löggjafarþingi. 24.6.2026 08:44
Slegið á fingur Trumps vegna stríðsreksturs í Íran Öldungadeild Bandaríkjaþings samþykkti í nótt ályktun þar sem slegið er á puttana á Donald Trump forseta Bandaríkjanna og honum sagt að hætta stríðsrekstri í Íran. 24.6.2026 07:19
Úrkoma í flestum landshlutum í dag Í dag má búast við hægri breytilegri átt og rigningu með köflum í flestum landshlutum samkvæmt Veðurstofu Íslands. Þurrt verði á norðvestur hluta landsins. Hiti verður á bilinu 10 til 17 stig. 24.6.2026 06:46
Fluttur á slysadeild eftir að bifreið var ekið á rafskútu Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu barst tilkynning um umferðarslys í Garðabæ þar sem bíl var ekið á rafmagnshlaupahjól. Einn hafi verið fluttur á slysadeild með áverka á fæti. 24.6.2026 06:30