Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Snarpri en góðri loðnuvertíð er að ljúka. Í dag voru aðeins fjögur skip eftir á miðunum og er búist að þau verði öll búin með kvótann á morgun. Nítján íslensk skip sinntu loðnuveiðunum að þessu sinni. Viðskipti innlent 12.3.2026 21:00
Eyjamenn grjótharðir við svörtu og hvítu reitina Taflfélag Vestmannaeyja (TV) fagnaði Íslandsmeistaratitli í úrvalsdeild Íslandsmóts skákfélaga eftir sigur á Skákdeild Breiðabliks í lokaumferð mótsins. Þetta er fyrsti stigur TV-inga á ferlinum en félagið á einmitt 100 ára afmæli á árinu. Sport 10.3.2026 15:18
Bjóða upp á tjaldsvæði inni Gestum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum um verslunarmannahelgina mun nú standa til boða að tjalda innandyra. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem þjóðhátíðargestir leita inn fyrir dyr Herjólfshallar með tjöldin meðferðis. Innlent 9.3.2026 12:09
Fyrir Heimaey lætur gott heita í Eyjum Tekin hefur verið ákvörðun um það innan Fyrir Heimaey, sem hefur haft forystu í bæjarmálapólitíkinni í Vestmannaeyjum, að ekki verði boðinn fram listi í bæjarstjórnarkosningum í vor. Innlent 27. febrúar 2026 12:59
Íris kveður stjórnmálin í Eyjum Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Hún segist hafa tilkynnt stjórn Heimaeyjar þessa ákvörðun sína. Mikil spenna er um efsta sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í bænum og Miðflokkurinn er mættur til eyjunnar grænu og fögru. Innlent 27. febrúar 2026 11:06
Trausti vill snúa aftur Trausti Hjaltason vill leiða lista Sjálfstæðisflokksins í Vestmannaeyjum í næstu sveitarstjórnarkosningunum. Hann var bæjarfulltrúi flokksins í tvö kjörtímabil og hefur áður verið varaþingmaður fyrir Suðurkjördæmi. Prófkjör flokksins fer fram 13. mars. Innlent 25. febrúar 2026 20:56
Magnús Kjartan leggur brekkusönginn á hilluna Tónlistarmaðurinn Magnús Kjartan Eyjólfsson aðalsöngvari Stuðlabandsins mun ekki stýra brekkusöngnum í Eyjum í ár líkt og undanfarin ár. Hann segist ekki hafa fundið fyrir neistanum sem til þarf á síðasta ári og því hafa ákveðið að kalla þetta gott í Eyjum, þó hann sé alls ekki hættur í tónlistinni. Lífið 23. febrúar 2026 21:27
Ánægja með bæjarstjórann en Sjálfstæðismenn með mest fylgi Tæplega 70 prósent Vestmannaeyinga segjast ánægðir með störf Írisar Róbertsdóttur bæjarstjóra en þó hyggjast talsvert fleiri kjósa Sjálfstæðisflokkinn en H-listann samkvæmt nýrri skoðanakönnun. Innlent 14. febrúar 2026 12:23
Rannsókn áfram í fullum gangi þrátt fyrir úrskurðina Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum er enn í fullum gangi, þrátt fyrir úrskurð Landsréttar þar sem gæsluvarðhaldskröfum var hafnað. Bráðabirgðaniðurstaða krufningar liggur fyrir. Innlent 6. febrúar 2026 12:15
Enginn rökstuddur grunur um að önnur konan hafi brotið af sér Landsréttur hefur hafnað kröfum Lögreglunnar á Suðurlandi um að tvær konur, sem starfa á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum, yrðu hnepptar í gæsluvarðhald. Þær voru handteknar á mánudag í tengslum við rannsókn andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu. Innlent 5. febrúar 2026 15:59
Lögregla að fá skýrari mynd af andláti konunnar Jón Gunnar Þórhallsson, yfirlögregluþjónn Lögreglunnar á Suðurlandi, segir enn skýrslutökur vegna andláts konu á tíræðisaldri á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landsréttur hefur ekki úrskurðað um gæsluvarðhaldskröfu lögreglunnar en farið var fram á gæsluvarðhald tveggja starfsmanna en því hafnað í héraðsdómi. Innlent 4. febrúar 2026 11:39
Rannsókn hófst eftir tilkynningu starfsmanns Héraðsdómur Suðurlands hafnaði nú síðdegis kröfu lögreglunnar um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestamannaeyjum, sem hafa verið í haldi lögreglu frá því í gær í tengslum við andlát konu á tíræðisaldri. Samkvæmt heimildum fréttastofu hóf lögreglan rannsókn á andlátinu eftir tilkynningu frá öðrum starfsmanni hjúkrunarheimilisins í kjölfar lyfjagjafar. Innlent 3. febrúar 2026 18:32
Kröfunni hafnað og starfsmönnunum sleppt Héraðsdómur Suðurlands hefur hafnað kröfu Lögreglunnar á Suðurlandi um gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum hjúkrunarheimilisins Hraunbúða í Vestmannaeyjum í tengslum við rannsókn á andláti konu á tíræðisaldri. Lögreglan á Suðurlandi ætlar að kæra niðurstöðuna til Landsréttar. Innlent 3. febrúar 2026 16:31
Fjölskyldu konunnar grunaði ekkert Fjölskyldu konu á tíræðisaldri, sem lést á hjúkrunarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum í síðustu viku, grunaði ekki að andlátið gæti hafa borið að með saknæmum hætti fyrr en Lögreglan á Suðurlandi hafði samband við hana um helgina. Lögreglan í Vestmannaeyjum sagði sig frá rannsókn málsins vegna fjölskyldutengsla starfsmanns hennar við konuna. Innlent 3. febrúar 2026 15:33
Fara fram á gæsluvarðhald yfir starfsmönnum Hraunbúða Lögreglan á Suðurlandi hefur farið fram á gæsluvarðhald yfir tveimur starfsmönnum sjúkrastofnunar í Vestmannaeyjum í tengslum við andlát á stofnuninni í síðustu viku. Gæsluvarðhaldskrafan verður tekin fyrir í hádeginu en lögregla vill halda sakborningunum fram á föstudag. Innlent 3. febrúar 2026 11:45
Miðflokkurinn býður fram í Vestmannaeyjum Miðflokkurinn ætlar að bjóða fram lista í Vestmannaeyjum í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þetta verður í fyrsta sinn sem flokkurinn býður fram í sveitarfélaginu en flokkurinn lýsir nú eftir áhugasömum til að taka sæti á lista flokksins í Eyjum fyrir kosningarnar í vor. Innlent 3. febrúar 2026 11:17
Öðru embætti falið að rannsaka andlátið Rannsókn Lögreglunnar á Suðurlandi á andláti á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum hófst um helgina en andlátið bar að í síðustu viku. Ríkissaksóknari fól embættinu að sinna rannsókninni þrátt fyrir að hún ætti að heyra undir Lögregluna í Vestmannaeyjum. Innlent 3. febrúar 2026 09:41
Tveir handteknir í tengslum við andlát í Vestmannaeyjum Tveir eru í haldi lögreglu í tengslum við andlát á sjúkrastofnun í Vestmannaeyjum. Innlent 2. febrúar 2026 20:20
Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Eftir tvö vonbrigðaár í loðnunni bárust loks gleðitíðindi í dag þegar Hafrannsóknastofnun lagði til fimmföldun loðnukvótans. Það þýðir að loðnuvertíðin næstu tvo mánuði gæti skilað þjóðarbúinu 35 til 40 milljarða króna útflutningstekjum, að mati forstjóra Síldarvinnslunnar. Viðskipti innlent 29. janúar 2026 21:42
Spenna vegna nýs mats á stærð loðnustofnsins Sjávarútvegurinn bíður nú í ofvæni eftir nýju mati Hafrannsóknastofnunar á stærð loðnustofnsins. Fréttir sem bárust af loðnuleitinni um helgina juku mönnum bjartsýni um meiri loðnukvóta en urðu líka til þess að hlutabréf sjávarútvegsfyrirtækja hækkuðu í verði. Viðskipti innlent 28. janúar 2026 21:31
Óvissa um framboð bæði Írisar og listans Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar, hefur ekki tekið ákvörðun um það hvort hún gefi kost á sér í komandi sveitarstjórnarkosningum. Þá segir hún ekki hafa verið ákveðið hvort bæjarmálafélagið Fyrir Heimaey tefli fram lista í kosningunum. Innlent 28. janúar 2026 13:56
Íslandsbanki og útgerðarfélög þegar greitt inn í Eyjagöng Félagið Eyjagöng ehf., sem undirbýr gerð jarðganga á milli lands og Eyja, hefur tryggt sér stóran hluta af 200 milljóna króna fjármögnunarmarkmiði sínu. Meðal þeirra sem þegar hafa greitt fyrir hlutafé eru Íslandsbanki, Ísfélagið og Vinnslustöðin. Viðskipti innlent 26. janúar 2026 11:35
Hálfum milljarði ódýrara að keyra vinnsluna á olíu Forsvarsmenn Vinnslustöðvarinnar í Vestmannaeyjum áætla að eftir verðskrárbreytingar og lagningu nýrra rafstrengja myndi kosta allt að hálfum milljarði króna meira á ári að keyra vinnslu félagsins á rafmagni frekar en olíu. Viðskipti innlent 23. janúar 2026 14:26
Veit Inga hvað hún syngur? Byrjum á að slá þessu föstu: Það er enginn málaflokkur þýðingarmeiri í íslensku samfélagi en uppvöxtur, þroski og menntun barnanna okkar. Það er alveg sama hvað okkur tekst vel til á öðrum sviðum – ef okkur mistekst þarna er allt annað unnið fyrir gýg . Skoðun 17. janúar 2026 07:30