Tónlist

Tónlist

Fréttir af innlendum og erlendum tónlistarmönnum, uppákomum og myndböndum.

Fréttamynd

Stjörnufans hjá Birni á Edition

Sannkölluð tónlistarveisla tók yfir skemmtistaðinn ROOF í síðastliðinni viku þegar Birnir stóð fyrir tónleikum. Ásamt honum þeytti Benni B-ruff skífum og stjörnurnar Flóni og Tatjana komu fram.

Tónlist

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fjarsamband alltaf erfitt

Lífið á Vísi kynnir frumsýningu á tónlistarmyndbandi hjá Álfgrími við lagið Dreymi. Með honum í för eru þau Kolbrún Óskarsdóttir og Hrannar Máni, betur þekkt sem tónlistartvíeykið KUSK og Óviti.

Tónlist
Fréttamynd

Kyn­þokka­fullir með fortíðarþrá

Tónlistarmennirnir Axel Birgisson, betur þekktur sem Big Sexy, og Ingi Bauer voru að senda frá sér þrjú diskólög og tónlistarmyndband. Strákarnir leggja mikið upp úr kynþokka í listformi þeirra og eru sömuleiðis haldnir mikilli fortíðarþrá aftur til áttunda og níunda áratugarins. 

Tónlist
Fréttamynd

Sig­fús Péturs­son Álftagerðisbróðir látinn

Sigfús Pétursson, tenór og Álftagerðisbróðir, lést á sunnudag á sjúkrahúsinu á Sauðárkróki. Greint er frá andláti hans á vef Feykis. Þar kemur fram að hann var fæddur 23. apríl 1943 og hafi verið nýorðinn 83 ára. Útför Sigfúsar verður gerð frá Sauðárkrókskirkju föstudaginn 15. maí.

Lífið
Fréttamynd

Stuðpinnar skáluðu í inn­setningunni

Það var líf og fjör í einstöku teiti tónlistarkonunnar Róshildar um helgina. Hún gefur út plötu á morgun og tók forskot á sæluna með góðum gestum í svokallaðri útgáfu-innsetningu. 

Tónlist
Fréttamynd

Shakira söng fyrir milljónir á Copacabana

Söngkonan Shakira kom í gær fram á ókeypis tónleikum á Copacabana-ströndinni í Rio de Janeiro. Milljónir voru viðstaddar en borgaryfirvöld greiddu fyrir tónleikana. Áður hafa Madonna og Lady Gaga komið fram á ókeypis tónleikum í borginni.

Tónlist
Fréttamynd

Michael nær ekki að fela fílinn í her­berginu

Michael Jackson er stærsta poppstjarna allra tíma og einn söluhæsti tónlistarmaður sögunnar en... hann er líka frægasti meinti barnaníðingur allra tíma. Hvernig tekstu á við slíkt í ævisögumynd? Dregurðu upp hreinskilna mynd af breyskum, marglaga og óvenjulegum manni eða sóparðu því ljóta undir teppið til að skapa helgimynd af einstökum dýrlingi. Ævisögumyndin Michael fer seinni leiðina.

Gagnrýni
Fréttamynd

Bubbi komst ekki í jarðar­för Bjögga

„Ég veit það bara að Ari getur ekki brugðist mér. Það er bara svo­leiðis,“ segir Bubbi Morthens sem gat ekki verið viðstaddur jarðarför Björg­vins Halldórs­sonar en segja má að með sí­gildri eftir­hermu hafi Ari Eldjárn farið nærri því að fylla skarð hans.

Lífið
Fréttamynd

Stór brjóst eru stór

Hin árlega Wireless tónlistarhátíð, sem fara átti fram í sumar í almenningsgarði skammt þar frá sem ég bý í London, hefur verið blásin af. Er það gert í kjölfar þess að rapparanum Kanye West, aðalstjörnu hátíðarinnar, var synjað um rafrænt ferðaleyfi til Bretlands vegna ásakana um að hann sé nasisti.

Lífið
Fréttamynd

Úr­slita­kvöld Euro­vision verður í beinni á Rúv 2

Úrslitakvöld Eurovision í Vín 16. maí næstkomandi verður sýnt í beinni á Rúv 2 vegna kosningavöku sveitarstjórnarkosninganna en undankvöldin tvö, 12. og 14. maí, verða sýnd á Rúv. Ríkissjónvarpsstöðvar Slóveníu, Írlands og Spánar hafa tilkynnt að þær muni ekki sýna Eurovision í ár vegna þátttöku Ísraela í keppninni.

Lífið
Fréttamynd

DJ Krush á Extreme Chill

DJ Krush stígur á svið í Gamla bíói þann 3. september. Viðburðurinn er hluti af Extreme Chill-tónlistarhátíðinni sem fer fram 3.–6. september 2026.

Tónlist
Fréttamynd

Mínusmeðlimir fóru yfir rugltímann: „Ekki drukkið í fimm­tán ár“

„Ég get nú ekki talað fyrir alla en ég sá fyrir mér að ég gæti náttúrulega ekki haldið áfram að vera að gera þetta til þess að vera fullur,“ segir Hrafn Björgvinsson, betur þekktur sem Krummi, í síðasta þætti af Tónlistarmönnunum okkar á Sýn+. Þar fóru meðlimir sveitarinnar yfir það hversu mikið rugl var í raun og veru á þeim á sínum tíma.

Lífið
Fréttamynd

Út­för Björg­vins Hall­dórs­sonar

Útför Björgvins Halldórssonar fer fram í dag og verður gerð frá Hallgrímskirkju. Séra Guðni Már Harðarson jarðsyngur en athöfnin er opin almenningi auk þess sem hægt verður að fylgjast með henni í beinu streymi á Vísi og Sýn.

Lífið
Fréttamynd

Úlfarnir rifu næstum þakið af Austur­bæ

Það ætlaði allt um koll að keyra þegar rapptvíeykið Úlfur Úlfur steig á svið í Austurbæjarbíói síðastliðinn miðvikudag fyrir troðfullum sal af gestum. Stemningin var gríðarleg og þakið við það að rifna af tónleikasalnum.

Tónlist
Fréttamynd

Týndi strax 120 þúsund króna sokkum

Tónlistarmaðurinn Friðrik Róbertsson, betur þekktur sem Flóni, hefur mikinn áhuga á klæðaburði og tísku og hefur fjárfest í ýmsum hátískuflíkum undanfarin ár. Sum kaup hafa verið góð en önnur ekki eins farsæl.

Tíska og hönnun
Fréttamynd

Þjóðþekktir tón­listar­menn koma fram í heima­húsum

Síðasta föstudag í aprílmánuði ár hvert hefst tónlistarhátíðin Hljómey í Vestmannaeyjum. Þá stíga landsþekktir listamenn á stokk og spila fyrir gesti hátíðarinnar í heimahúsum. Hún er nú haldin í fjórða skipti og meðal þeirra sem koma fram eru Valdimar, Jakob Frímann og Bríet.

Tónlist