Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Sveitar­stjórnar­kosningar 2026

Fréttir og greinar tengdar sveitastjórnarkosningum sem fram fara 16. maí 2026.


Fréttamynd

„Mið­flokkurinn er ekki að sparka í neina krakka“

Spjótin beindust að Ara Edwald, oddvita Miðflokksins, í oddvitakappræðum Sýnar í kvöld þegar umræðan barst að regnbogafánum í skólastofunni. Ari sagði Miðflokksmenn standa með mannréttindum og benti á að hann ætti sjálfur dóttur og vin sem væru hinsegin.

Innlent
Fréttamynd

Oddvitaáskorunin: Sam­talið alltaf hlýrra

Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2026 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum spurningum.

Lífið
Fréttamynd

Tekist á um fram­kvæmdir við nýjan mið­bæ í Hamra­borg

Oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi sakar meirihlutann í bænum um að hafa flýtt framkvæmdum við nýjan miðbæ til að uppfylla kosningaloforð. Lítið samráð hafi verið haft við íbúa sem kvarti yfir hávaða og raski. Bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokks vísar því á bug en biðlar til íbúa að sýna þolinmæði. Glæsilegur miðbær muni rísa á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

Kjós­endur vilja helst þessa flokka í sam­starf

Kjósendum Viðreisnar í Reykjavík hugnast miklu frekar að mynda meirihluta með vinstri flokkum en hægri flokkum að loknum kosningum samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Flokkurinn gæti verið í lykilstöðu varðandi meirihlutamyndun.

Innlent
Fréttamynd

Segir Krist­rúnu dreifa ó­sannindum um Sjálf­stæðis­flokkinn

Það má heldur betur segja að hiti sé að færast í borgarstjórnarkosningarnar en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni, sakar Kristrúnu Frostadóttur, forsætisráðherra og formann Samfylkingarinnar, um að dreifa ósannindum um Sjálfstæðisflokkinn sem varðar sölu á orkuinnviðum.

Innlent
Fréttamynd

„Mikil­vægt að sjá til þess að það líði ekki yfir neinn“

Kjörstjórnir um allt land eru nú í óðaönn við að undirbúa kjörstaði fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar sem styttist óðfluga í. Óteljandi handtök gera kosningar mögulegar en formaður yfirkjörstjórnar stærsta sveitarfélagsins segir nýja kjörkassa auðvelda þeim lífið.

Innlent
Fréttamynd

Fólk sé orðið leitt á því að sjá sömu flokkana hræra

Fulltrúar Okkar borgar og Góðan daginn segja skipulags- og samgöngumálin í brennidepli í komandi borgarstjórnarkosningum sem og rekstur Reykjavíkurborgar. Framboðin hafa mælst með minnst fylgi í könnunum og samkvæmt þeim vantar nokkuð upp á til þess að þau nái manni inn í borgarstjórn á laugardag.

Innlent
Fréttamynd

Misánægð með þéttingu en stefnan hafi valdið hækkunum

Oddvitar Sjálfstæðisflokks, Framsóknar og Miðflokks telja þéttingu byggðar í miðborginni misheppnaða. Breyta þurfi um stefnu. Oddviti Samfylkingar er ánægður með hvernig til hefur tekist. Fólk hefur áhyggjur þvert á flokka af háu íbúðaverði á svæðinu.

Innlent
Fréttamynd

„Þetta er bara venju­leg tauga­veiklun“

„Þetta er bara venjuleg taugaveiklun og það á að hræða borgarbúa frá því að kjósa Sjálfstæðisflokkinn,“ segir Brynjar Níelsson, sem skipar þriðja sæti lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurborg, um skrif Þórðar Snæs Júlíussonar, framkvæmdastjóra þingflokks Samfylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Bæjar­full­trúi sagst vilja taka hann „bak við hús­vegg og skjóta“

Sviðs­stjóri um­hverfis- og fram­kvæmda­sviðs Reykja­nes­bæjar segir að bæjar­full­trúi og fram­bjóðandi Sam­fylkingarinnar hafi lýst því yfir að hann vildi helst fara með hann „bak við hús­vegg og skjóta“. Orðin hafi Hjörtur Magnús Guðbjarts­son látið falla í heimsókn til ónefnds verk­taka­fyrir­tækis í Reykja­nes­bæ en hann er í öðru sæti á lista Sam­fylkingarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Vill að flokkar sýni á spilin fyrir sveitar­stjórnar­kosningar um sölu á orkuinnviðum

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, segir eðlilegt að flokkar geri kjósendum skýra grein fyrir afstöðu sinni til sölu á orkuinnviðum í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga. Hann segir umræðu um einkavæðingu fyrirtækja á borð við Rarik og Landsnet snerta hagsmuni íbúa víða um land og telur mikilvægt að línurnar liggi skýrt fyrir áður en gengið verður til kosninga.

Innlent