Stjórnmál

Stjórnmál

Fréttir frá störfum ríkisstjórnarinnar, Alþingis og stjórnmálum almennt.

Fréttamynd

Opin­beri geirinn „skilar nánast auðu“ í að­lögun hag­kerfisins

Mikil kólnun á íslenskum vinnumarkaði og vaxandi svartsýni atvinnurekenda bendir til þess að hagvaxtarhorfur næstu missera kunni að vera ofmetnar, samkvæmt nýrri greiningu. Á sama tíma og störfum fækkar á almennum vinnumarkaði heldur opinberum starfsmönnum áfram að fjölga, sem veldur því að aðlögun hagkerfisins að minni eftirspurn verður mun harðari í einkageiranum.

Innherji

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Telur starfs­menn hæfa til að meta stjórn­sýslu yfir­manns síns

Fyrrverandi ráðuneytisstjóri umhverfisráðuneytisins stýrir sviði hjá Ríkisendurskoðun sem vinnur nú stjórnsýsluúttekt sem nær til starfa hans fyrir ráðuneytið. Ríkisendurskoðandi telur undirmenn fyrrverandi ráðuneytisstjórans hæfa til þess að fjalla um fyrri störf yfirmanns síns.

Innlent
Fréttamynd

Hugsjónasvelta Reykja­vík

Í borgarstjórn eru teknir til starfa fulltrúar Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknarflokks sem enginn virðist vita hvað vakir fyrir og varla þeir sjálfir. Helstu tillögur þeirra snúa að uppsögnum og niðurskurði og umleitunum á því hvort einkafyrirtæki geti sinnt verkefnum borgarinnar eða jafnvel eignast þau.

Skoðun
Fréttamynd

„Galin vinnu­brögð“

Formaður Sameykis lýsir uppsagnarhrinu dagsins hjá Reykjavíkurborg sem áfalli. Hann segir fólk enn bíða skýringa á síðustu uppsögnum og telur vinnubrögð meirihlutans galin.

Innlent
Fréttamynd

„Fyrst og fremst erfitt“

Hildur Björnsdóttir borgarstjóri segir að uppsögnum í miðlægri stjórnsýslu borgarinnar sé lokið, eftir að stöðugildum þar var fækkað um 74 í dag. Mikið verk sé þó áfram fyrir höndum við hagræðingar í rekstri borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

Hildur svaraði fyrir upp­sagnirnar

Hildur Björnsdóttir, borgarstjóri Reykjavíkurborgar, ræddi við fréttastofu í beinni útsendingu í ráðhúsi Reykjavíkur um uppsagnir og hagræðingar dagsins. Formaður Sameykis ræddi einnig málið og var ekki sáttur með meint samráð.

Innlent
Fréttamynd

Um Staf­ræna heilsu: Karp er best með for­sjá

Upplýsingaóreiða er stórt og vaxandi vandamál í samtíma okkar. Í stuttu máli og einföldu snýst hugtakið um það þegar bornar eru fram rangar eða villandi upplýsingar sem torvelda fólki að greina rétt frá röngu, hvort sem það gerist af ásetningi eða óviljandi.

Skoðun
Fréttamynd

Kostnaður við Ís­lands­ferðir hækkað meira en tvö­falt á við samkeppnislönd

Kostnaður erlendra ferðamanna við að heimsækja Ísland hefur hækkað meira en tvöfalt umfram það sem gerst hefur í helstu samkeppnislöndum frá árinu 2010, en Ísland er núna farið að dragast hlutfallslega nokkuð aftur úr þegar kemur að fjölgun ferðamanna á heimsvísu. Samkvæmt forstjóra Stoða myndi fjögurra prósenta fjölgun erlendra ferðamanna skila ríkissjóði og öðrum opinberum aðilum meiri tekjum en áformað er að afla með nýjum sköttum á greinina.

Innherji
Fréttamynd

Gefur meiri­hlutanum fall­ein­kunn

Formaður stéttarfélagsins Sameykis gefur meirihlutanum í Reykjavík falleinkunn. Hann býst við því að svipuðum fjölda verði sagt upp í dag og í síðustu skipulagsbreytingum borgarinnar.

Innlent
Fréttamynd

„Ljóst að þetta snýst um rekstur borgarinnar“

Oddviti Miðflokksins í borginni segir alltaf erfitt að segja upp fólki en að Miðflokkurinn styðji nauðsynlegar hagræðingaraðgerðir í rekstri borgarinnar. Hann kveðst bundinn trúnaði um efni aukaborgarstjórnarfundar í morgun en heimildir Vísis herma að þar hafi verið ræddar uppsagnir tuga borgarstarfsmanna.

Innlent
Fréttamynd

„Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“

Ingibjörg Isaksen, þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi, segir Loftbrú snúast um að jafna stöðuna milli höfuðborgarsvæðisins og landsbyggðarinnar. Áhyggjuefni sé að ákvörðunum sé slengt fram án aðkomu sveitarfélaganna og landsbyggðarinnar. Hún vilji sjá innviðaráðherra „bakka með þessa ákvörðun“ um krónutölu í stað prósentuhlutfalls.

Innlent
Fréttamynd

Runólfur verður á­fram for­stjóri

Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans, hefur fallist á beiðni ráðherra um að sinna áfram starfi forstjóra og hefur skipun hans verið framlengd til ársloka 2029. 

Innlent
Fréttamynd

Við­reisn – góð stefna dugar ekki ein og sér

Viðreisn var stofnuð á grunni frjálslyndra hugsjóna. Lýðræði, mannréttindi, frelsi einstaklingsins, jafnrétti og ábyrgð eru þar í öndvegi. Við viljum opið samfélag þar sem fólk fær að njóta hæfileika sinna, óháð aldri, uppruna eða efnahag, og við berum virðingu fyrir ólíkum skoðunum.

Skoðun
Fréttamynd

Sóttist ekki eftir þingflokksformennsku

Varaformaður þingflokks Viðreisnar segist ekki hafa sóst eftir því að verða gerð að þingflokksformanni. Aðspurð hvernig hún svari gagnrýni Jóns Gnarr segir hún að engar athugasemdir hafi verið gerðar við stöðu hennar innan þingflokksins að henni vitandi.

Innlent
Fréttamynd

„Við getum ekki öll búið í Reykja­vík“

Sveitarstjóri Múlaþings segir að viðbót við Loftbrú, sem innviðaráðherra greindi frá í gær, sé ekki það sem verið sé að kalla eftir. Ekki geti allir búið í Reykjavík og jafna verði aðgengi íbúa landsbyggðar að þjónustu.

Innlent
Fréttamynd

Hafi ekki fundað form­lega án Harðar heldur snætt há­degis­mat

Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir enga formlega stjórnarfundi Landsvirkjunar hafa verið haldna án Harðar Arnarsonar fyrrverandi forstjóra. Hann segir lögin ekki banna stjórnarmönnum að hittast sem hafi borðað saman hádegismat fyrir fundina. Ágreiningurinn snúist um form en ekki stefnu.

Innlent