Skriðdrekar Ísraelshers komnir inn í íbúðahverfi í Rafah Ísraelsmenn halda áfram að sækja inn í Rafah og hafa skriðdrekar þeirra nú náð inn í íbúðahverfi í borginni. Áætlað er að 360 til 500 þúsund manns hafi yfirgefið borgina eftir að þeir voru hvattir til að rýma ákveðin svæði. Erlent 15. maí 2024 06:57
Réttlætingar og lygar Ísraels Það er sorglegt að fylgjast með því hversu langt íslensk stjórnvöld leyfa Ísrael að draga sig á asnaeyrunum. Ísrael fjöldaframleiðir lygar til að réttlæta árásir sínar á innviði Gaza og Ísland hefur hingað til tekið orð Ísraels undantekningarlaust sem sannleika og án neinnar gagnrýnnar hugsunar. Skoðun 14. maí 2024 08:00
Fjöldi látinna á Gasa á reiki Sameinuðu þjóðirnar hafa neitað því að áætlaður fjöldi látinna á Gasa hafi minnkað eftir að nýjar tölur voru birtar á vefsvæði samtakanna. Þar stendur nú að 24.686 hafi látist, ekki 35.000 eins og áður hafði verið gefið út. Erlent 14. maí 2024 06:34
Þátttaka Ísraela hafi skemmt mikið Einni umdeildustu Eurovision-keppni sögunnar lauk um helgina. Fararstjóri íslenska hópsins segir augljóst að þátttaka Ísraelsmanna hafi haft neikvæð áhrif á keppnina. Lífið 13. maí 2024 20:31
Aftur barist í norðurhluta Gasa á meðan þúsundir flýja Rafah Til bardaga kom milli Ísraelshers og sveita Hamas í norðurhluta Gasa yfir helgina, á meðan þúsundir flúðu Rafah af ótta við yfirvofandi áhlaup Ísraelsmanna. Erlent 13. maí 2024 07:18
Íslendingar gáfu Króatíu 12 stig og Ísrael 8 stig Króatíska framlagið var í uppáhaldi hjá íslenskum áhorfendum á Eurovision sem haldið var í Malmö í kvöld. Það franska hlaut 10 stig og Ísrael fékk 8 stig frá íslenskum áhorfendum. Lífið 11. maí 2024 23:15
Fyrirskipa þúsundum að yfirgefa Rafah Ísraelsher hefur fyrirskipað þúsundum að yfirgefa Rafah en búist er við því að herinn ráðist þangað inn af fullum þunga á næstunni. Erlent 11. maí 2024 18:05
Kvartar yfir Ísrael og vill að þeim verði vísað úr keppni Bambi Thug, sem flytur lag Írlands í Evrópsku söngvakeppninni í kvöld, hefur lagt fram kvörtun til stjórnenda keppninnar. Hán vill að Ísraelum verði vísað úr keppninni vegna orðræðu um atriði háns í undankeppninni á þriðjudagskvöldið. Lífið 11. maí 2024 14:29
Líklegt að Ísraelar hafi brotið alþjóðalög með bandarískum vopnum Bandaríkjastjórn telur líklegt að ísraelsk stjórnvöld hafi brotið alþjóðleg mannúðarlög með notkun sinni á bandarískum vopnum í hernaði sínum á Gasa. Ekki hafi þó verið hægt að staðfesta það og hún trúi fullyrðingum Ísraela um að þeir fari að lögum. Erlent 10. maí 2024 22:27
Spáir Ísrael sigri í Eurovision Eden Golan frá Ísrael er skyndilega talin næstlíklegust til að bera sigur úr býtum í Eurovision í ár með laginu Hurricane. Eurovision-aðdáandi segir þetta ekki koma á óvart og telur raunar að keppnin verði haldin í Tel Aviv að ári. Lífið 10. maí 2024 21:01
Bashar Murad endurgerir palestínskt lag föður síns Bashar Murad sendir í dag frá sér smáskífuna, Stone, af væntanlegri plötu sem hann er að vinna með Einari Stef. Lagið er endurgerð af lagi sem hljómsveit föður hans gaf út. Lífið 10. maí 2024 08:45
Krefjast þess að HÍ beiti sér með sama hætti gegn Ísrael og Rússlandi Hópurinn Háskólafólk fyrir Palestínu krefst þess að Háskóli Íslands beiti sér fyrir friði á Gasa og taki skýra afstöðu gegn þjóðarmorði og stríðsglæpum. Hópurinn vill að HÍ beiti sér með sama hætti og hann gerði þegar Rússar réðust inn í Úkraínu. Rektor segir árásirnar ekki sambærilegar. Innlent 10. maí 2024 06:47
Ísraelsstjórn vígreif þrátt fyrir viðsnúning Bandaríkjamanna „Ég ávarpa óvini Ísrael og einnig okkar bestu vini og segi; Ísraelsríki verður ekki haldið niðri,“ sagði Yoav Gallant, varnarmálaráðherra Ísrael, eftir að greint var frá því að Bandaríkjamenn hygðust láta af vopnasendingum til landsins. Erlent 10. maí 2024 06:21
Ísrael skyndilega talið líklegt til að vinna Eurovision Hin tvítuga Eden Golan frá Ísrael er talin næstlíklegust til að standa uppi sem sigurvegari í Eurovision í ár með laginu Hurrycane. Ísrael rauk upp í veðbönkum í kvöld eftir að framlagið tryggði sér sæti á úrslitakvöldinu á laugardag. Lífið 10. maí 2024 00:08
Baulað á keppanda Ísrael á æfingu Hótanir hafa borist ísraelska Eurovision-teyminu og keppandinn hefur varla yfirgefið hótelherbergi sitt vegna þessa. Baulað var á hana á æfingu í gær en hún stígur á svið í Malmö í kvöld, á síðara undanúrslitakvöldi keppninnar. Lífið 9. maí 2024 16:30
Skotið á íbúa Rafah og heilbrigðiskerfi Gasa hrunið Reyk lagði yfir landamæraborgina Rafah á Gasaströndinni og sprengingar heyrðust í morgun eftir að Ísraelsher gerði árás á austurhluta borgarinnar. Heilbrigðisstarfsmenn í borginni segja þrjá hafa verið skotna til bana í skriðdrekaárás við mosku í morgun. Erlent 9. maí 2024 13:37
Siðferðileg heilindi Háskóla Íslands á tímum þjóðarmorðs Alda stúdentamótmæla hefur brotist út um allan heim og hafa stúdentar slegið upp tjaldbúðum og skipulagt mótmæli til að vekja athygli á þjóðarmorði Ísraelsríkis á palestínsku þjóðinni. Kennarar og stúdentar hafa verið handteknir, m.a. við Colombia háskóla í New York og Science Po í París. Skoðun 9. maí 2024 10:00
Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah Forseti Bandaríkjanna lýsti því yfir í gær að hann muni stöðva vopnasendingar á sprengjum og skotvopum til Ísrael ef forsætisráðherra Ísrael Benjamin Netanyahu fyrirskipar árás inn á Rafah. Það sagði Biden í viðtali við CNN í gær. Hann sagði Bandaríkin enn munu styðja Ísrael með öðrum hætti. Erlent 9. maí 2024 08:02
Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku Joe Biden Bandaríkjaforseti stöðvaði vopnasendingu til Ísraelsmanna í síðustu viku til að koma í veg fyrir að innihaldið, um 3.500 sprengjur, yrðu notaðar á Rafah. Erlent 8. maí 2024 06:30
Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“ Ísraelsher sendi eldsnemma í morgun skriðdreka inn í Rafah-borg og tugir létust í loftárásum þeirra. Alþjóðastjórnmálafræðingur er svartsýn á að vopnahlé sé í nánd þrátt fyrir yfirstandandi viðræður. Innlent 7. maí 2024 19:49
Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir að gera þurfi þá kröfu á ráðamenn í Bandaríkjunum að þeir beiti ríkisstjórn Ísraels mun meiri þrýstingi um að leggja niður vopn. Það sé besta leiðin til að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs. Erlent 7. maí 2024 16:28
Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld Ekki tókst að selja í öll auglýsingaplássin sem í boði eru á RÚV á meðan fyrri undankeppni Eurovision fer fram í Malmö í kvöld. Færri auglýsingar hafa selst fyrir keppnina en búist var við. Lífið 7. maí 2024 15:29
Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina Ísraelsher stendur nú í aðgerðum í Rafah og hefur tekið yfir landamærastöðina í borginni, sem aðskilur Egyptaland og Gasa. Landamærin virðast vera lokuð eins og er. Erlent 7. maí 2024 06:40
Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela Ísraelsher hóf loftárásir á Rafah-borg á Gasa stuttu eftir að í ljós kom að Ísraelar kæmu ekki til með að samþykkja þá vopnahléstillögu sem Hamas-samtökin samþykktu fyrr í dag. Erlent 6. maí 2024 23:26
Hamas samþykkir vopnahléstillögu Leiðtogar Hamas-samtakanna hafa samþykkt vopnahléstillögu erindreka frá Egyptalandi og Katar. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að Ismail Haniyeh, leiðtogi Hamas, hafi hringt í forsætisráðherra Katar og upplýsingaráðherra Egyptlands í dag og tilkynnt þeim að tillagan hefði verið samþykkt. Erlent 6. maí 2024 16:55
Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“ Ísraelsher segist þurfa að flytja 100.000 manns frá Rafah inn á nærliggjandi svæði, al Mawasi, sem Ísraelsmenn hafa skilgreint sem „mannúðarsvæði“. Þetta hefur Associated Press eftir talsmanni hersins. Erlent 6. maí 2024 06:45
Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann Hluti útsendingarbúnaðar katarska miðilsins Al Jazeera var gerður upptækur þegar lögregla réðst inn á hótelherbergi útsendara í Jerúsalem í dag. Miðlinum hefur verið bannað að starfa í landinu í að minnsta kosti 45 daga. Erlent 5. maí 2024 19:50
Ísrael samþykkir ekki vopnahlé Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að, þó Ísraelsmenn séu tilbúnir til þess að gera hlé á átökunum til að Hamasliðar afhendi þá gísla sem enn eru í þeirra haldi, komi það ekki til greina að binda endanlegri enda á átökin. Erlent 5. maí 2024 13:17
Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr Ríkisstjórn Ísraels ákvað í dag að reka katörsku sjónvarpsstöðina Al Jazeera úr landi. Forsætisráðherra Ísraels segir fréttamenn hennar stríðsæsingamenn. Erlent 5. maí 2024 11:42
Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna Öfgahópur innan Repúblikanaflokksins hefur mótmælt þverpólitísku frumvarpi sem var samþykkt í fulltrúadeildinni á miðvikudag og miðar að því að útrýma hatursáróðri gegn gyðingum. Erlent 3. maí 2024 07:40