Þjófnaður úr spilakössum rannsakaður
Grunur er um að á fjórðu milljón króna hafi verið stolið í innbroti í Spin 108 sportbar á Grensásvegi í byrjun maí mánaðar. Heimildir fréttastofu herma að innbrotið beri merki um að hafa verið vel skipulagt en lögregla rannsakar nú málið.