Bournemouth - Crystal Palace 3-0
Bournemouth komst upp í sjötta sætið eftir öruggan 3-0 sigur á Crystal Palace. Gestirnir áttu aldrei möguleika og Bournemouth komst yfir eftir aðeins tíu mínútna leik þökk sé klunnalegu sjálfsmark Jeffersons Lerma. Eli Junior Kroupi tvöfaldaði forystuna eftir rúmlega hálftíma leik af vítapunktinum og leiknum lauk 3-0 þökk sé marki Brassans unga Rayan tæpum stundarfjórðungi fyrir leikslok.