Dagur rauða nefsins nálgast

Það verður sannkölluð veisla á Stöð 2 á degi rauða nefsins 9. desember. Frá klukkan 19.30 til miðnættis verður sýnt beint frá skemmtun sem haldin er vegna söfnunarátaks UNICEF á Íslandi handa bágstöddum börnum í um heim allan. Sannkallað landslið íslenskra grínista kemur saman og skemmtir þjóðinni með óborganlegu gríni og hvetur hana um leið til að gerast heimsforeldrar. Svo má ekki gleyma rauðu nefjunum en allir eru að sjálfsögðu hvattir til að setja þau á nebbann.

2956
00:28

Vinsælt í flokknum Stöð 2