Opnun kaffihússins GÆS
Í Tjarnabíó opnaði kaffihúsið GÆS með pompi og prakt í dag. Hugmyndin að kaffihúsinu varð til hjá nemanda í starfstengdu diplómanámi fyrir fólk með þroskahömlun í Háskóla Íslands. Hann vildi sjá breytingar í atvinnumálum fatlaðs fólks og sjá fleiri spennandi atvinnutækifæri og opnara samfélag.