„Sjálfsmyndarkrísa“ í Brussel

Sebastian Starcevic, blaðamaður Politico í Evrópu, er gestur í aukaþætti Vísis að Viðræðum. Hann hefur skyggst á bak við tjöldin og tekið púlsinn á ráðamönnum bæði í Brussel og Reykjavík í kringum atkvæðagreiðsluna 29. ágúst. Sebastian telur að Evrópusambandið sé í eins konar „sjálfsmyndarkrísu“ í breyttum heimi, en það þurfi ekki endilega að vera slæmt. Evrópumenn eru að sögn Starcevic mjög spenntir að fá okkur, meðal annars þar sem þeir telja að það geti verið stór ábati fyrir ásýnd ESB að velmegandi land vilji ganga inn í sambandið. Á meðan Trump lýsir sambandinu sem hnignandi og fjarhægri flokkar á Evrópuþingi leggjast gegn stækkunaráformum – sem flest snúa að fátækari löndum álfunnar – gætu þeir þurft að éta hattinn sinn ef Ísland, sem yrði líklegast nettógreiðandi, kemur inn í sambandið.

3
30:20

Vinsælt í flokknum Vísir að viðræðum