Fautaskapur sem Andri Lucas svaraði með marki
Andri Lucas Guðjohnsen kom inn á sem varamaður og gulltryggði 3-1 sigur Blackburn Rovers með marki þegar liðið tók á móti Millwall í ensku B-deildinni í dag. Hann stráði salti í sár leikmanns Millwall sem tók harkalega á Íslendingnum skömmu fyrir markið.