Litlu hlutirnir - Svana Lovísa #5

Í þessum þætti hittum við Svönu Lovísu. Svana Lovísa er vöruhönnuður og eigandi Studio Flamingo. Margir þekkja hana einnig sem bloggara, en í gegnum árin hefur hún gengið í gegnum miklar breytingar, bæði persónulega og faglega. Eftir að hafa upplifað kulnun neyddist hún til að stíga út úr hraðanum sem hafði einkennt líf hennar um árabil. Sú reynsla kenndi henni að hægja á sér, hlusta betur á sjálfa sig og nálgast lífið með meiri meðvitund og gleði. Í dag nýtir hún þá reynslu í öllu sem hún tekur sér fyrir hendur og hefur fundið nýtt jafnvægi á milli sköpunar, vinnu og lífsins sjálfs. Í þessum þætti ræðum við um fegurðina í litlu hlutunum, kulnun, breytingar, sköpunarkraftinn og mikilvægi þess að gefa sér tíma til að njóta litlu hlutanna í lífinu.

320
09:28

Vinsælt í flokknum Litlu hlutirnir